Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2011, Blaðsíða 62

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2011, Blaðsíða 62
 H i n s e g i n f é L a g a s a M T ö k á í s L a n d i Hinsegin dagar í reykjavík – Gay Pride www.gaypride.is – Facebook Hinsegin dagar í Reykjavík – gay Pride eru sjálfboðaliðasamtök sem árlega skipuleggja Hinsegin daga í Reykjavík aðra helgi í ágúst. Hinsegin dagar eru sjálfstæð félagasamtök, en ýmis önnur félög og hreyfingar hinsegin fólks eru félagar í Hinsegin dögum ásamt einstakl- ingum sem standa saman að skipulagi hátíðarinnar. allir sem styðja markmið hátíðarinnar geta gerst félagar í Hinsegin dögum með því að greiða árgjaldið, 500 kr. samtökin ’78 – félag hinsegin fólks á íslandi www.samtokin78.is / skrifstofa@samtokin78.is – Facebook Samtökin ’78 eru elstu og stærstu samtök samkynhneigðra á Íslandi og undir forystu þeirra hafa unnist miklir sigrar í mannréttindamálum á liðnum árum. markmið félagsins er tvíþætt: að vinna að baráttu- og hagsmunamálum hinsegin fólks í því skyni að vinna því jafnrétti á við aðra á öllum sviðum þjóðlífsins, og að skapa félagslegan og menn- ingarlegan vettvang til þess að styrkja sjálfsvitund þess, samkennd og samstöðu um sérkenni sín. Í miðstöð félagsins á laugavegi 3 starfar fólk að fræðslu og félagsráðgjöf og veitir aðstoð og ráðgjöf um sam- kynhneigð málefni. Þar er vandað almenningsbókasafn með hinsegin efni, bókum, tímaritum og kvikmyndum. q – Félag hinsegin stúdenta www.queer.is – Facebook Félag hinsegin stúdenta, Q, var stofnað í janúar 1999 af nokkrum stúd- entum við Háskóla Íslands. Það heldur uppi öflugu félagsstarfi meðal ungs fólks á aldrinum 18–28 ára og hittist á Q-kvöldum í hverri viku í félagsmiðstöð Samtakanna ’78. Eitt af markmiðum félagsins er að vera sýnilegt afl innan háskólasamfélagsins á Íslandi og í forsvari þar þegar málefni samkynhneigðra ber á góma. Félagið tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi og er virkur þátttakandi í tveimur samtökum ungs hinsegin fólks í Evrópu, anSo og iglyo. Trans-ísland – félag transgender fólks á íslandi http://trans.is/ transiceland@gmail.com – Facebook Transgender fólk er hinsegin að því leyti, að það breytir kynhlut- verki sínu meira eða minna, og skiptir jafnvel alveg um kynhlutverk, tímabundið eða varanlega. Transgender fólk getur verið gagnkyn- hneigt, samkynhneigt og allt þar á milli. Trans-Ísland var stofnað árið 2007 og hefur að markmiði sínu að skapa transfólki og fjölskyldum þess menningarlegan vettvang og styrkja þannig sjálfsvitund þeirra, vinna að laga- og réttarbótum, auka fræðslu og eiga samstarf við sambærileg samtök hérlendis og erlendis. Fyrsta miðvikudag hvers mánaðar hittist Trans-Ísland í félagsmiðstöð Samtakanna ’78. íþróttafélagið styrmir www.ststyrmir.is / ststyrmir@gmail.com – Facebook Íþróttafélagið Styrmir var stofnað árið 2006 og er nú ein af blóm- legustu grasrótarhreyfingum hinsegin fólks á Íslandi. Í vegum félagsins æfa konur og karlar fótbolta, sund og blak og boðið er upp á fjölmarga íþróttaviðburði í hverri viku. Árlega tekur félagið þátt í íþróttamótum á erlendum vettvangi og hefur átt þar góðu gengi að fagna. kMk – Konur með konum www.kmk.is / kmk@kmk.is – Facebook konur með konum, kmk, varð til sem grasrótarhreyfing lesbía fyrir tveimur áratugum og hefur starfað síðan með nokkrum hléum. Tilgangurinn er ekki síst að efla sýnileika lesbía, styrkja samstöðu þeirra, gefa þeim tækifæri til að skemmta sér á eigin forsendum og kynnast öðrum í hópnum. Stúlkurnar í kmk stunda íþróttir af kappi, einkum blak, og hafa keppt á alþjóðlegum leikum. Þá halda þær sumar- hátíðir og bregða sér sér í útilegur og veiðiferðir þegar vel viðrar. MsC ísland www.msc.is / msc@msc.is mSC Ísland var stofnað árið 1985. klúbburinn hefur sínar klæðareglur, leður, gúmmí-, einkennis- og gallaföt, og ástæðan er einfaldlega sú að félagarnir vilja hafa karlmenn karlmannlega klædda og þá heldur ýkt í þá áttina en hina. mSC Ísland hefur ferðamennsku og fyrir- greiðslu við erlenda ferðamenn beinlínis á stefnuskrá sinni og er aðili að Evrópusamtökunum ECmC, en þau hafa verið ein virkustu alþjóðasamtök samkynhneigðra um áratugi og lagt mikið af mörkum til baráttunnar fyrir stolti, sýnileika og samábyrgð. félag hinsegin foreldra gayforeldrar@gmail.com – Facebook Félag hinsegin foreldra eru yngstu samtökin í flóru hinsegin hreyfinga á Íslandi. Þau hafa það að markmiði að gera lífið skemmtilegra fyrir börn sín, gefa þeim kost á að kynnast og miðla reynslu af foreldra- hlutverkinu. Thanks to the Queer community The queer community in iceland has joined forces to celebrate gay Pride 2011 with festivities in Reykjavík during the second weekend in august. We would like to thank seven organizations and activ- ity groups: the icelandic Queer organization, Samtökin ’78; The association of Queer Students, Q; the women’s group Women with Women, kmk; the transgender association Trans-iceland; the leather men’s club mSC iceland; Queer Parents’ association; and Styrmir Sports Club. Útgefandi: Hinsegin dagar í Reykjavík – gay Pride Pósthólf 80 – 121 Reykjavík – www.gaypride.is ritstjóri: Þorvaldur kristinsson (ábm). Textar: Árni Heimir ingólfsson, Ásta kristín Benediktsdóttir, Erlingur óttar Thoroddsen, Íris Ellenberger og Þorvaldur kristinsson. hönnun: Tómas Hjálmarsson. Ljósmyndir: Bára, Eyþór Árnason, geir Ragnarsson, inga Sólveig, Snorri gunnarsson og fleiri. Auglýsingar: Eva maría Þórarinsdóttir lange, jón Sævar Baldvinsson, kristín Sævarsdóttir og Þorvaldur kristinsson. Bolur hinsegin daga: guðmundur davíð Terrazas. Prentun: Ísafoldarprentsmiðja hf. 62 Stjórn og samstarfsnefnd hinsegin daga í reykjavíkÞau eru fjölmörg sem leggja hönd á plóg til að gera hátíð Hinsegin daga að veruleika á hverju ári. Sum sýna þó meira úthald en önnur við undir- búninginn og vinna hörðum höndum í stjórn og samstarfsnefnd árið um kring, áður en kemur að fjögurra daga stórhátíð. Í stjórn Hinsegin daga í Reykjavík árið 2011 sitja Þorvaldur kristinsson, forseti, kristín Sævarsdóttir, ritari, jón Sævar Baldvinsson, gjaldkeri, katrín jónsdóttir, erindreki, og Eva maría Þórarinsdóttir lange, fram- kvæmdastjóri. Þeim til stuðnings starfar öflug samstarfsnefnd að verkefnum ársins. allir sem þess óska geta tekið sæti í samstarfsnefnd, þar þarf ekkert til nema góðan vilja og samstarfshug. Þau sem meðal annarra hafa komið að vinnu samstarfsnefndar í ár eru: auður Halldórsdóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Ásta kristín Benediktsdóttir, Baldvin k. Sveinbjörnsson, Birna Hrönn Björnsdóttir, davíð Terrazas, Elaine mcCrorie, Erlingur óttar Thoroddsen, Eva jóhannsdóttir, Eyjólfur karl Eyjólfsson, Felix Bergsson, guðmundur lárus guðmundsson, guðni kristinsson, Helga k. Bjarnadóttir, Helga Bryndís Ernudóttir, Hreinn Vídalín, jón kjartan Ágústsson, Ragnar ólason, Sesselja maría mortensen, Sigríður jónsdóttir, Tiina kalan, Tyrfingur Tyrfingsson, Valgerður Þ. E. guðjónsdóttir og Þórarinn Þór. allt þetta fólk tekur síðan forystu í ýmsum „deildum“ hátíðarinnar og ábyrgist meðal annars sölumál, fánaborgir, öryggi hátíðargesta, fjáröflun og auglýsingar, stjórn gleðigöngu, ritstjórn útgáfuefnis og rekstur þjónustumiðstöðvar svo fátt eitt sé nefnt. Þegar hátíðin nálgast kalla stjórn og samstarfsnefnd síðan á mikinn fjölda sjálfboðaliða sér til aðstoðar við að gera hátíðina sem glæsilegasta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.