Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2011, Síða 62
H i n s e g i n f é L a g a s a M T ö k á í s L a n d i
Hinsegin dagar í reykjavík – Gay Pride
www.gaypride.is – Facebook
Hinsegin dagar í Reykjavík – gay Pride eru sjálfboðaliðasamtök sem
árlega skipuleggja Hinsegin daga í Reykjavík aðra helgi í ágúst.
Hinsegin dagar eru sjálfstæð félagasamtök, en ýmis önnur félög og
hreyfingar hinsegin fólks eru félagar í Hinsegin dögum ásamt einstakl-
ingum sem standa saman að skipulagi hátíðarinnar. allir sem styðja
markmið hátíðarinnar geta gerst félagar í Hinsegin dögum með því að
greiða árgjaldið, 500 kr.
samtökin ’78 – félag hinsegin fólks á íslandi
www.samtokin78.is / skrifstofa@samtokin78.is – Facebook
Samtökin ’78 eru elstu og stærstu samtök samkynhneigðra á Íslandi
og undir forystu þeirra hafa unnist miklir sigrar í mannréttindamálum
á liðnum árum. markmið félagsins er tvíþætt: að vinna að baráttu- og
hagsmunamálum hinsegin fólks í því skyni að vinna því jafnrétti á við
aðra á öllum sviðum þjóðlífsins, og að skapa félagslegan og menn-
ingarlegan vettvang til þess að styrkja sjálfsvitund þess, samkennd og
samstöðu um sérkenni sín. Í miðstöð félagsins á laugavegi 3 starfar
fólk að fræðslu og félagsráðgjöf og veitir aðstoð og ráðgjöf um sam-
kynhneigð málefni. Þar er vandað almenningsbókasafn með hinsegin
efni, bókum, tímaritum og kvikmyndum.
q – Félag hinsegin stúdenta
www.queer.is – Facebook
Félag hinsegin stúdenta, Q, var stofnað í janúar 1999 af nokkrum stúd-
entum við Háskóla Íslands. Það heldur uppi öflugu félagsstarfi meðal
ungs fólks á aldrinum 18–28 ára og hittist á Q-kvöldum í hverri viku í
félagsmiðstöð Samtakanna ’78. Eitt af markmiðum félagsins er að vera
sýnilegt afl innan háskólasamfélagsins á Íslandi og í forsvari þar þegar
málefni samkynhneigðra ber á góma. Félagið tekur þátt í alþjóðlegu
samstarfi og er virkur þátttakandi í tveimur samtökum ungs hinsegin
fólks í Evrópu, anSo og iglyo.
Trans-ísland – félag transgender fólks á íslandi
http://trans.is/ transiceland@gmail.com – Facebook
Transgender fólk er hinsegin að því leyti, að það breytir kynhlut-
verki sínu meira eða minna, og skiptir jafnvel alveg um kynhlutverk,
tímabundið eða varanlega. Transgender fólk getur verið gagnkyn-
hneigt, samkynhneigt og allt þar á milli. Trans-Ísland var stofnað árið
2007 og hefur að markmiði sínu að skapa transfólki og fjölskyldum
þess menningarlegan vettvang og styrkja þannig sjálfsvitund þeirra,
vinna að laga- og réttarbótum, auka fræðslu og eiga samstarf við
sambærileg samtök hérlendis og erlendis. Fyrsta miðvikudag hvers
mánaðar hittist Trans-Ísland í félagsmiðstöð Samtakanna ’78.
íþróttafélagið styrmir
www.ststyrmir.is / ststyrmir@gmail.com – Facebook
Íþróttafélagið Styrmir var stofnað árið 2006 og er nú ein af blóm-
legustu grasrótarhreyfingum hinsegin fólks á Íslandi. Í vegum félagsins
æfa konur og karlar fótbolta, sund og blak og boðið er upp á fjölmarga
íþróttaviðburði í hverri viku. Árlega tekur félagið þátt í íþróttamótum á
erlendum vettvangi og hefur átt þar góðu gengi að fagna.
kMk – Konur með konum
www.kmk.is / kmk@kmk.is – Facebook
konur með konum, kmk, varð til sem grasrótarhreyfing lesbía fyrir
tveimur áratugum og hefur starfað síðan með nokkrum hléum.
Tilgangurinn er ekki síst að efla sýnileika lesbía, styrkja samstöðu
þeirra, gefa þeim tækifæri til að skemmta sér á eigin forsendum og
kynnast öðrum í hópnum. Stúlkurnar í kmk stunda íþróttir af kappi,
einkum blak, og hafa keppt á alþjóðlegum leikum. Þá halda þær sumar-
hátíðir og bregða sér sér í útilegur og veiðiferðir þegar vel viðrar.
MsC ísland
www.msc.is / msc@msc.is
mSC Ísland var stofnað árið 1985. klúbburinn hefur sínar klæðareglur,
leður, gúmmí-, einkennis- og gallaföt, og ástæðan er einfaldlega sú
að félagarnir vilja hafa karlmenn karlmannlega klædda og þá heldur
ýkt í þá áttina en hina. mSC Ísland hefur ferðamennsku og fyrir-
greiðslu við erlenda ferðamenn beinlínis á stefnuskrá sinni og er
aðili að Evrópusamtökunum ECmC, en þau hafa verið ein virkustu
alþjóðasamtök samkynhneigðra um áratugi og lagt mikið af mörkum til
baráttunnar fyrir stolti, sýnileika og samábyrgð.
félag hinsegin foreldra
gayforeldrar@gmail.com – Facebook
Félag hinsegin foreldra eru yngstu samtökin í flóru hinsegin hreyfinga
á Íslandi. Þau hafa það að markmiði að gera lífið skemmtilegra fyrir
börn sín, gefa þeim kost á að kynnast og miðla reynslu af foreldra-
hlutverkinu.
Thanks to the Queer community
The queer community in iceland has joined forces to celebrate gay
Pride 2011 with festivities in Reykjavík during the second weekend
in august. We would like to thank seven organizations and activ-
ity groups: the icelandic Queer organization, Samtökin ’78; The
association of Queer Students, Q; the women’s group Women with
Women, kmk; the transgender association Trans-iceland; the leather
men’s club mSC iceland; Queer Parents’ association; and Styrmir
Sports Club.
Útgefandi: Hinsegin dagar í Reykjavík – gay Pride
Pósthólf 80 – 121 Reykjavík – www.gaypride.is
ritstjóri: Þorvaldur kristinsson (ábm).
Textar: Árni Heimir ingólfsson, Ásta kristín Benediktsdóttir,
Erlingur óttar Thoroddsen, Íris Ellenberger og Þorvaldur kristinsson.
hönnun: Tómas Hjálmarsson.
Ljósmyndir: Bára, Eyþór Árnason, geir Ragnarsson, inga Sólveig, Snorri
gunnarsson og fleiri.
Auglýsingar: Eva maría Þórarinsdóttir lange, jón Sævar Baldvinsson,
kristín Sævarsdóttir og Þorvaldur kristinsson.
Bolur hinsegin daga: guðmundur davíð Terrazas.
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja hf.
62
Stjórn og samstarfsnefnd hinsegin daga í reykjavíkÞau eru fjölmörg sem leggja hönd á plóg til að gera hátíð Hinsegin daga
að veruleika á hverju ári. Sum sýna þó meira úthald en önnur við undir-
búninginn og vinna hörðum höndum í stjórn og samstarfsnefnd árið um
kring, áður en kemur að fjögurra daga stórhátíð. Í stjórn Hinsegin daga í Reykjavík árið 2011 sitja Þorvaldur kristinsson,
forseti, kristín Sævarsdóttir, ritari, jón Sævar Baldvinsson, gjaldkeri,
katrín jónsdóttir, erindreki, og Eva maría Þórarinsdóttir lange, fram-
kvæmdastjóri.
Þeim til stuðnings starfar öflug samstarfsnefnd að verkefnum ársins.
allir sem þess óska geta tekið sæti í samstarfsnefnd, þar þarf ekkert til
nema góðan vilja og samstarfshug. Þau sem meðal annarra hafa komið að
vinnu samstarfsnefndar í ár eru: auður Halldórsdóttir, Ásdís Þórhallsdóttir,
Ásta kristín Benediktsdóttir, Baldvin k. Sveinbjörnsson, Birna Hrönn
Björnsdóttir, davíð Terrazas, Elaine mcCrorie, Erlingur óttar Thoroddsen,
Eva jóhannsdóttir, Eyjólfur karl Eyjólfsson, Felix Bergsson, guðmundur
lárus guðmundsson, guðni kristinsson, Helga k. Bjarnadóttir, Helga
Bryndís Ernudóttir, Hreinn Vídalín, jón kjartan Ágústsson, Ragnar ólason,
Sesselja maría mortensen, Sigríður jónsdóttir, Tiina kalan, Tyrfingur
Tyrfingsson, Valgerður Þ. E. guðjónsdóttir og Þórarinn Þór. allt þetta fólk
tekur síðan forystu í ýmsum „deildum“ hátíðarinnar og ábyrgist meðal
annars sölumál, fánaborgir, öryggi hátíðargesta, fjáröflun og auglýsingar,
stjórn gleðigöngu, ritstjórn útgáfuefnis og rekstur þjónustumiðstöðvar svo
fátt eitt sé nefnt. Þegar hátíðin nálgast kalla stjórn og samstarfsnefnd
síðan á mikinn fjölda sjálfboðaliða sér til aðstoðar við að gera hátíðina
sem glæsilegasta.