Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2011, Blaðsíða 48

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2011, Blaðsíða 48
hinsegin fólks og fatlaðs fólks gagnvart hvort öðru. Fatlandi viðhorf Embla undirstrikar að líffræðilegar skerð- ingar ættu ekki að vera vandamál. Hún segir fötlun ekki meðfædda heldur sé það samfélagið sem skapi hana með því að viðhalda ákveðnum hindrunum og viðhorf- um. Það sé samfélagið sem fatli fólk: „Ég tala oft um fatlandi viðhorf gagnvart fötluðu fólki. Vinir mínir eru t.d. stundum spurðir: Vill hún fá kaffi? Hvað heitir hún? Hvað er hún gömul? Þetta er mjög lúmskt því fólk trúir því að það sé að vera gott en er í raun- inni að sýna fordóma og forræðishyggju með ákveðinni hegðun. Það heldur að við séum börn og alltaf glöð. og þetta háir mér mjög. Það háir mér ekkert svo mikið að vera með líkamlega skerðingu. En það háir mér að geta ekki farið út í búð án þess að einhver klípi mig í kinnina og segi að ég sé krúttleg. Það er það sem gerir mig fatlaða.“ Í raun sama baráttan „Ég finn fyrir því að það eru miklu minni fordómar gagnvart fötluðu fólki í löndum þar sem það hefur háð háværa baráttu fyrir réttindum sínum. Þess vegna er áhugavert að skoða baráttuna út frá réttindabaráttu samkynhneigðra. Vandinn er nefnilega sá sami. Fatlað fólk er álitið vera á lægra plani en aðrir og það átti einnig við um sam- kynhneigða. Birtingarmyndirnar eru kannski ólíkar en það er samt hægt að nota sömu tæknina í baráttunni. Það væri hægt að gera svo margt með því að vinna saman. Við höfum öll reynslu af því að tilheyra minnihlutahópi eða kúguðum hópi í sam- félaginu, reynslu sem hægt er að deila. Einu sinni sagði fólk „kynvillingur“ og það þótti allt í lagi en það hvarflar ekki að okkur í dag. Eins viljum við að það sé sagt „fatlað fólk“, ekki „fatlaðir“, því við viljum náttúr- lega vera fólk. Sumum finnst það flókið en þetta er í raun nákvæmlega sama krafa og sú að hætta að nota orðið „kynvillingur“. krafa um að vera álitin fólk. mér finnst mikilvægt að tengja þessa baráttu við aðra hópa svo að við áttum okkur á því hvers eðlis hún er og að þetta sé í raun sama baráttan. Ég fyllist alltaf orku þegar ég skoða baráttu kvenna og samkynhneigðra því hún hefur skilað svo miklum árangri. Fyrir þrjátíu árum hefði enginn trúað því að ástandið myndi breytast svona mikið. Það er gagn- legt að skoða þessa baráttu í samhengi og nýta hugmyndir og baráttu hvers hóps fyrir sig því þeir eru í raun svo tengdir. Stundum stangast markmið okkar á að einhverju leyti. Femínistar berjast t.d. fyrir því að líf kvenna sé ekki einskorðað við móðurhlut- verkið en fatlaðar konur eru einmitt að berjast fyrir því að fá að vera mæður. Þarna ríkir ákveðin andstæða í baráttumálum en grundvallarhugmyndin er sú sama. Við nálg- Sex ára á Flórída með Guðmundi frænda Felixsyni. 48
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.