Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2011, Blaðsíða 24
24
verið rétt ákvörðun. Sumir segja að neistinn
endist bara fyrstu sex til tólf mánuðina
og eftir það taki við vinna. kannski er það
málið, að ég nenni ekki að leggja vinnuna í
að halda sambandinu við. Það er voðalega
erfitt að vita hvað er rétt í þessum efnum
en ég hef alltaf reynt að koma heiðarlega
fram. maður særir oft djúpt með hreinskiln-
inni, ég veit það, en þegar upp er staðið
held ég að heiðarleiki sé rétta leiðin.
Lesbía – eða hvað?
Eftir að ég hætti með Eydísi ber svolítið á
því að fólk reikni með að ég sé lesbísk og
það er kannski alveg eðlileg ályktun. meira
að segja fólk sem þekkir mig vel heldur að
ég hafi engan áhuga á karlmönnum. Ég er
ekki mikið fyrir merkimiða og hef yfirleitt
aldrei kallað sjálfa mig neitt en fyrst eftir
að ég fór að vera með Eydísi hugsaði ég að
líklega væri ég bara lesbía. Þegar ég fór að
horfa yfir farinn veg sá ég samt að það var
ekkert vit í því. Ég var með karlmönnum af
því að ég var hrifin af þeim og fannst gott
að stunda kynlíf með þeim. Sem einhleyp
kona í dag horfi ég bæði á stelpur og
stráka. Þeir sem þekkja mig gera sér líklega
grein fyrir því smátt og smátt að ég hef ekki
bara áhuga á konum heldur körlum líka en
það er kannski ekki rætt neitt. Það er ekki
eins og ég sé lóða á eftir öllum – ég er bara
manneskja þótt ég hafi kannski orðið oftar
ástfangin á ævinni en margir aðrir.
T h E F L I c K E r I n g F L A m E
Ingunn Snædal is a teacher, translator,
and award-winning poet. She met her
ex-husband, John, in Ireland; she fell
for his beautiful blue eyes, they mar-
ried and lived together for seven years.
They had a daughter, and lived in vari-
ous exotic places before moving back
to Iceland: India, Costa Rica, Spain,
Denmark. On the first day on her new
job as school teacher in Reykjavík she
met Eydís, fell in love, and came out
as a lesbian. It took her a whole year
to convince her new attraction of her
love, but they eventually began a rela-
tionship that lasted for six years. Today,
Ingunn is single, sexually and emotion-
ally attached to men as well as women,
and one of the lessons she has learned
is that although “honesty sometimes
hurts deeply, it is still the only way.”
Eydís og Lára á Hinsegin dögum 2007