Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2011, Page 12
Hún átti hug og hjörtu aðdáenda um allan heim þegar hún söng „Je ne sais quoi“ á Eurovision í
Ósló 2010, og síðan hefur lagið lifað góðu lífi á vinsældalistum og tónlistarrásum víða um heim.
Hera Björk Þórhallsdóttir hefur fengist við margt á tónlistarsviðinu, bæði í klassískum söng, djassi,
poppi og rokki, með sinni einstæðu og fallegu rödd. Hún söng með einum af okkar bestu kórum,
Schola Cantorum, og er ein af hinum íslensku Frostrósum sem hlotið hafa lof fyrir söng sinn. Hún
starfar sem söngvari og söngkennari á Íslandi en eftir ævintýrið í Ósló 2010 hefur hún verið á ferð
og flugi um heiminn til að skemmta. Meðal annars kom Hera Björk fram á New York Pride og New
Orleans Southern Decadence nú í sumar. Þá hefur hún verið valin „The Official Artist of Mr. Gay
World USA 2011“. Við bjóðum Heru Björk velkomna á útihátíð Hinsegin daga við Arnarhól,
6. ágúst.
a t a L e n t t h a t c a n ’ t b e d e s c R i b e d
Icelanders have always known what an amazing performer Hera Björk is, but it wasn’t until she
performed “Je ne sais quoi“ at the 2010 Eurovision Song Contest in Oslo, that the world got a taste
of her powerful voice. The song has had a successful life post-Eurovision, and Hera has travelled
the world in the wake of its success, having even been named The Official Artist of Mr. Gay World
USA 2011. We welcome Hera Björk to the Open Air Concert at Arnarhóll, Saturday, 6 August.
Hera
Björk
12