Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2011, Síða 26

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2011, Síða 26
Svikarinn er einleikur Árna Péturs Guðjónssonar og byggist að hluta til á Vinnukonunum eftir Jean Genet. Leikritið er brotið upp og notað sem leiðarhnoða í verki sem öðrum þræði fjallar um glímu leikarans við hlutverk sitt, fortíð sína og samtíma. Í sýningunni rikir óreiða og í henni miðri er leikarinn sjálfur þungamiðja verksins. Hann er sá sem leikur og sá sem leikið er á, sá sem kúgar og er kúgaður, sá sem svíkur og er svikinn. Jean Genet voru „svikin“ ofarlega í huga og sem leikritahöf- undur vildi hann svíkja leikarann. Nú er stund hefndarinnar runnin upp og leikarinn fær tækifæri til að svíkja skáldið, stela því sem honum sýnist frá þjófnum Jean Genet. Svikarinn er ávöxtur náins samstarfs þeirra Rúnars Guðbrandssonar og Árna Péturs Guðjónssonar en leikfélagið Lab Loki stendur á bak við hana og býður gestum Hinsegin daga til þess- arar kvöldstundar. Frá fornu fari þekkti Rúnar áhuga Árna Péturs á Jean Genet og átti hugmyndina að verkefninu. Hann freistaði síðan félaga síns, leikarans, til þess að takast á við það og í samvinnu þeirra varð til sýningin sem hér birtist. Árni Pétur var tilnefndur til Grímuverðlaunanna fyrir þetta hlutverk og saman voru þeir Rúnar og Árni Pétur tilnefndir sem leikskáld ársins til Grímuverðlaunanna fyrir leikverkið. Svikarinn var frumsýndur í Reykjavík í febrúar 2011, en er nú endursýndur í tilefni Hinsegin daga í Reykjavík. Aðgangseyrir 1000 kr. VIP- Platinum gildir á sýninguna. The Traitor An actor takes on a journey into Jean Genet’s world, in a monologue based on the French dramatist’s 1947 play, The Maids. In this innovative reworking, the actor plays out his fantasies and frustrations, dreams and desires, fears and hopes, anger and admiration. Actor Árni Pétur Guðjónsson was nominated for the Icelandic Theater Award earlier this year for his performance. Performed in Icelandic at Tjarnarbíó Theater, Sunday, 7 August, at 8 p.m. Admission ISK 1000. VIP-Platinum valid until 7:45 p.m. Leikfélagið Lab Loki: Birna Hafstein og Rúnar Guðbrandsson Höfundar: Árni Pétur Guðjónsson og Rúnar Guðbrandsson. Leikari: Árni Pétur Guðjónsson. Leikstjóri: Rúnar Guðbrandsson. Búningar og útlit: Filippía Elísdóttir Tónlist og lýsing: Garðar Borgþórsson 26 Leiksýning byggð á skáldskap Jean Genet Sýning í Tjarnarbíói, sunnudaginn 7. ágúst, kl. 20 Svikarinn Ljósmynd: Snorri Gunnarsson

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.