Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2011, Page 28

Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2011, Page 28
Reykvíkingar hafa eignast glæsilegt tónlistarhús sem um ókomin ár mun marka svip borgarinnar okkar í menningarlegu tilliti. Hinsegin dagar í Reykjavík óska borgarbúum og öllum þeim sem í húsinu starfa til hamingju með þessa glæsilegu og vönduðu byggingu. að því tilefni er við hæfi að Hinsegin dagar í Reykjavík geri Hörpu að vettvangi hátíðar sinnar eina kvöldstund í ágúst. margir af helstu listamönnum sögunnar hafa hneigst til eigin kyns og það á jafnt við um tónlistina og aðrar listgreinar. Á klassískum tónleikum í Hörpu, föstudagskvöldið 5. ágúst, verður flutt sýnishorn af þeirri stórkostlegu tónlist sem samkynhneigð tónskáld hafa fært heiminum allt frá 17. öld til dagsins í dag. meðal tónskáldanna eru arcangelo Corelli, Pjotr Tsjajkovskíj, Camille Saint-Saëns, Reynaldo Hahn, Francis Poulenc, Benjamin Britten, leonard Bernstein og john Cage. kvöldið fær líka sitt íslenska yfirbragð því að hér verður frumflutt nýtt söngverk eftir tónskáldið Hreiðar inga Þorsteinsson við ljóð eftir Walt Whitman. Einvalalið íslenskra tónlistarmanna sér um flutninginn. Í þeim hópi eru fiðluleikararnir gunnhildur daðadóttir og Sigrún Eðvaldsdóttir, söngvararnir Bergþór Pálsson, Eyjólfur Eyjólfsson, Hafsteinn Þórólfsson og Herdís anna jónasdóttir, Einar jóhannesson klarinettleikari, og píanóleikararnir anna guðný guðmundsdóttir, Árni Heimir ingólfsson og Tinna Þorsteinsdóttir. Tónleikarnir eru haldnir í norðurljósum, sem er einn af sölum Hörpu, og hefjast kl. 20, föstudagskvöldið 5. ágúst. Rétt er að geta þess að hátíðargestir sem ætla sér í hinsegin siglingu sama kvöld munu auðveldlega geta sameinað báða þessa viðburði. aðgangur er ókeypis á tónleikana í Hörpu. C L A S S I C A L P R I D E Reykjavík Gay Pride invites its guests to a concert of classical music by gay com- posers on Friday 5 August at 8 p.m. in the Harpa Concert Hall (Norðurljós Auditorium). Many of the world’s greatest composers have been attract- ed to the same sex, and the concert explores the wealth of classical music written by gay composers from the 17th century until the present day. Among the composers represented are Corelli, Tchaikovsky, Saint- Saëns, Hahn, Poulenc, Bernstein, Britten, and John Cage. Several lead- ing Icelandic musicians will perform in this concert. Free admission. Á H i n S E g i n n ó T U m T ó n l e i k a r í n o r ð u r l j ó s u m , H ö r p u F ö s t u d a g i n n 5 . á g ú s t k l . 2 0 28

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.