Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2011, Side 52
jól brugðum við okkur til akureyrar til að
kaupa gjafir til hátíðarinnar. löngu seinna
frétti ég að allar línur hefðu verið glóandi
eftir heimsóknina, að guðbrandur Hlíðar
hefði komið í bæinn „með þennan fallega
sænska dreng“. mér hlýnar ennþá þegar ég
hugsa til þess að hafa einu sinni verið kall-
aður fallegur sænskur drengur á akureyri.
Seinna tóku við fáein ár í Svíþjóð en
aftur fluttumst við til Íslands og störfuð-
um árum saman á rannsóknarstofu mjólk-
ursamsölunnar sem guðbrandur stýrði,
því nú hafði ég lært gerlafræði til að geta
unnið með mínum manni. Hér hef ég verið
síðan og hér vil ég vera.
Konurnar vilja ekki sitja hjá þér
Foreldrar guðbrands voru gott fólk. Þau tóku
mér frá fyrsta degi eins og syni sínum og
allir hans ættingjar áttu eftir að reynast mér
vel. Ég mætti aldrei vondu viðmóti á Íslandi
– fyrr en árið 2007. nokkru áður var ég
byrjaður að hanna altaris- og messuklæði
því þar fékk ég útrás fyrir sköpunarþörfina
og fyrstu munina gaf ég langholtskirkju til
minningar um manninn minn. af því tilefni
var viðtal við mig í morgunblaðinu þar sem
ég sagði frá þessari iðju minni og ástum
okkar guðbrands.
karlmanna. allt þetta batt okkur sterkum
böndum. En hann var átján árum eldri en
ég og að sama skapi stjórnsamur í sam-
bandinu. Hann vildi móta unga manninn
að sínum vilja. guðbrandur var í rauninni
af annarri kynslóð en ég og fannst hann
verða að fara ógurlega dult með það að við
værum par. auðvitað leyndi það sér ekki,
við bjuggum saman og vorum alltaf saman.
Ári eftir okkar fyrsta fund vildi hann svo
að við settum upp hringana og bað mig
að verða sinn. og ég sagði já, nema hvað,
hann gerði þetta svo fallega.
Við fórum fyrst til gullsmiðs og keypt-
um minn hring og svo yfir í næstu götu til
annars gullsmiðs til þess að velja hringinn
hans guðbrands. að kaupa þá báða í
sömu verslun kom ekki til mála, engan
mátti gruna neitt. Þegar heim kom opnaði
guðbrandur Biblíuna, lagði hringana á hana
og svo settum við þá upp. Þetta var 23.
nóvember 1957 og í mínum augum er það
vígsludagurinn okkar.
Á Sauðárkróki
Svo var það árið 1958 að guðbrandi var
boðin staða dýralæknis í Skagafjarðarum-
dæmi og um sama leyti lést bróðir hans
sviplega. Hann vildi heim til að vera nálægt
fólkinu sínu og sagði mér það, „en þú getur
ekki komið með,“ bætti hann við. Ég lét
kyrrt liggja, en næsta dag hafði eitthvað
gerst innra með honum því að hann spurði
hvort ég gæti hugsað mér að koma til
Íslands og verða aðstoðarmaður hans á
Sauðárkróki. Hvort ég gat! En hafði ekki
hugmynd um hverju ég var að játa.
okkar fyrsta ferð út í sveit var farin til
að hjálpa kú sem ekki gat borið. Í ljós kom
að fóstrið lá dautt inni í henni og nú varð
að bjarga kúnni. Til að leysa málið þurfti
að saga fóstrið í sundur með þar til gerðum
tækjum og ná því út. guðbrandur gekk til
verka en leit svo allt í einu á mig og sá
hvernig mér leið. „Farðu nú út, Herder,“
sagði hann og ég hlýddi. Svo hugsaði ég
málið við fjósdyrnar. Ég hafði verið í sveit
hjá ömmu minni í Svíþjóð en aldrei komið í
fjós. Þegar ég fann lyktina í dyrunum sagði
ég við sjálfan mig: nei, þetta megið þið
eiga fyrir mér, og sneri við. En hér varð ég
að taka ákvörðun. annaðhvort færi ég út á
krók, tæki tannburstann minn og héldi til
Svíþjóðar – eða aftur inn í fjósið. og ég fór
inn. Eftir þetta gat ég horft upp á hvað sem
var og verið guðbrandi sú hjálp sem hann
þarfnaðist
.
glóandi símalínur
guðbrandur var afskaplega vinsæll dýra-
læknir og óþreytandi við að miðla Skagfirð-
ingum af þekkingu sinni á skepnum. Hann
var í eðli sínu mikill kennari. Enda mætti
okkur ekkert nema velvilji í Skagafirði,
alls staðar vorum við velkomnir og varla
haldin sú veisla að við værum ekki boðnir.
En auðvitað var horft á mann. Ég hafði
haft með mér talsvert af tískufötum frá
Stokkhólmi en nú voru haftaár á Íslandi og
lítið um slík föt, enda voru allar gardínur
á fleygiferð þegar ég gekk um göturnar á
króknum. Í heila viku sýndi ég klassískan
dans á Sæluviku og mætti á hestamanna-
mót í mínum fínustu reiðfötum. Þegar ég
áttaði mig á því að fólki varð starsýnna á
mig en hrossin spurði ég guðbrand hvort
við gætum ekki bara farið heim. Hann hristi
höfuðið og ég lét mig hafa það. Rétt fyrir
52
Herder Andersson í Stokkhólmi
Herder hefur samið tíu skáldsögur og þrjár
þeirra hafa komið út í Svíþjóð. Hann hannar
sjálfur bókarkápurnar svo fjölhæfur sem
hann er.