Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2011, Síða 53

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2011, Síða 53
 Ég er nefnilega mikill trúmaður. móðir mín var kirkjurækin og öll hennar ætt og aldrei þurfti að reka mig í sunnudags- messuna, ég fór þangað af löngun. Hefði ég átt þess kost þá hefði ég ábyggilega lesið til prests. mér liður alltaf vel í kirkju og ekki spillir fyrir ef presturinn klæðist einum af höklunum mínum. Ég var vanur að mæta í hádegisstund í langholtskirkju á miðvikudögum. Þar safnaðist eldra fólkið saman til hugvekju og síðan var boðið upp á súpu og sam- verustund. Eftir blaðaviðtalið brá svo við að enginn tók undir þegar ég heilsaði eða yrti á mig, og þegar ég settist með súpuna mína við borð stóð fólk upp og færði sig. nokkru seinna var gamla fólkinu boðið í jólahlaðborð í kirkjunni og þar mætti ég auðvitað því ég ætlaði ekki að láta þetta á mig fá. Samverustundin hófst á hugvekju og ég hafði sest á bekk í miðri kirkju þegar tvenn hjón komu og settust þar líka. En stóðu svo allt í einu upp og ruddust út úr bekknum til að finna sér annað sæti. Þegar karlinn sem fór síðastur tróð sér framhjá mér hvæsti hann á mig: „konurnar vilja ekki sitja hjá þér.“ Þótt ég nyti stuðnings og velvilja séra jóns Helga, sóknarprestsins míns sem ég á margar góðar stundir að þakka, þá var þetta mál aldrei rætt til fulls, því miður. Samt er opinská samræða eina leiðin til að vinna á fordómunum, það verður að draga þá upp á borð. og eftir þetta fór ég aldrei aftur í þessar hádegisstundir. Hvað sem hvatningu guðspjallanna líður þá eru takmörk fyrir því hvað maður býður oft fram vinstri kinnina þegar maður er sleginn á þá hægri. Af annarri kynslóð auðvitað hafa skipst á skin og skúrir. Erfiðast var að lifa með þeirri tilhneigingu mannsins míns að sveipa sambandið þögn og ósýnileika. Það átti nú ekki við mig að fela mig og ég get heldur ekki leynt því svo glatt hver ég er. Uppruninn skipti líka máli, ég var af alþýðufólki og án bakhjarla sem mér fannst ég þurfa að taka tillit til. Ég stóð og féll með sjálfum mér. En guðbrandur var úr fjölskyldu virtra borgara sem allir landsmenn könnuðust við, „Socialgrupp i“ kalla þeir það í Svíþjóð, og það hefti hann mikið hugsa ég. Hann vildi til dæmis ekki að nafnið mitt stæði á dyrabjöllunni og síminn var lengst af bara á hans nafni. Það var hann sem bauð í veislur, ekki við tveir. Þetta særði mig oft en ég hélt friðinn því ég þekkti tilfinningar hans til mín þrátt fyrir allt. nútíminn á kannski erfitt með að skilja svona lagað, en maðurinn minn var einfald- lega af annarri kynslóð en ég og nýir tímar náðu aldrei til hans. Ég varð aftur á móti fyrir áhrifum af tíðarandanum og fannst það alveg stórkostlegt þegar unga fólkið reis upp og gerði hreint fyrir sínum dyrum. Ég átti eftir að blanda mér í þann hóp og segja opinberlega frá mínu lífi og af því er ég stoltur. Ekki grunaði mig átján ára að ég ætti eftir að feta í fótspor allans Hellmann. En sannleikurinn er sá að laumuspilið kallar ekkert yfir okkur nema sársauka. Ástfangnir og nýtrúlofaðir. Guðbrandur Hlíðar og Herder Andersson í Stokkhólmi árið 1957. Gerlafræðingurinn Herder. 53

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.