Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2012, Side 10
TÓNLEIKAR Í NORÐURLJÓSUM, HÖRPU, FÖSTUDAGINN 10. ÁGÚST KL. 20:30
Á H I N S E G I N N Ó T U M
TRÍÓ KRISTJÖNU STEFÁNSDÓTTUR
ÁRNI HEIMIR INGÓLFSSON KYNNIR
Á hátíð Hinsegin daga í Reykjavík 2011
var efnt til klassískra tónleika í Hörpu
undir yfirskriftinni „Á hinsegin nótum“
við húsfylli og dúndrandi fögnuð gesta.
Í ár er athyglinni beint að hinsegin
söngleikja- og djasstónskáldum.
Kristjana Stefánsdóttir syngur lög
eftir Cole Porter, Leonard Bernstein,
Stephen Sondheim, Jerry Herman,
Rufus Wainwright og fleiri. Tómas
Jónsson leikur á píanó og Valdimar
Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa, en Árni Heimir
Ingólfsson segir hinsegin sögur af tónskáldunum og
sköpunarverkum þeirra.
Kristjana Stefánsdóttir er okkar fremsta söngkona í íslenskri
djasstónlist. Hún nam söng við Konunglega tónlistarháskólann í Haag í
Hollandi og hefur síðan sent frá sér fjölmargar geislaplötur sem notið hafa
mikilla vinsælda. Þar er skemmst að minnast Better Days Blues árið 2008.
Kristjana hefur hlotið margvíslega viðurkenningu fyrir list sína og nokkrum
sinnum verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Hún hefur haldið
tónleika víða um lönd, m.a. á meginlandi Evrópu, í Japan og Bandaríkjunum.
Kristjana hefur löngum farið ótroðnar slóðir í listsköpun sinni, hún er ekki
aðeins söngkona og söngkennari, hún hefur einnig starfað sem tónlistarstjóri í
leikhúsi, tónskáld og ljáð trúðnum Bellu líf í Borgarleikhúsinu í Reykjavík.
MIÐAVERÐ: 2000 KR. Til sölu á www.midi.is og í miðasölu Hörpu
LÖGIN ÚR LEIKHÚSINU
A Q U E E R B R O A D W A Y S O N G B O O K
The “Queer Classical” concert in Harpa was among the highlights of last year’s Reykjavík Gay Pride. This year’s we
invite our guests to “Queer Broadway” concert in the Harpa Concert Hall (Norðurljós) on Friday 10 August at 8.30 p.m.,
featuring the outstanding work of queer Broadway and jazz composers. Iceland’s diva of jazz, Kristjana Stefánsdóttir,
performs songs by Cole Porter, Leonard Bernstein, Stephen Sondheim, Jerry Herman,
Rufus Wainwright and others. She is joined by pianist Tómas Jónsson and bass-
ist Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson, as well as musicologist Árni Heimir
Ingólfsson who will provide queer anecdotes about the composers
and their works.
ADMISSION: 2000 ISK, on sale at www.midi.is.
VIP Platinum valid