Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2012, Blaðsíða 30

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2012, Blaðsíða 30
„Ég byrjaði að teikna Marilyn Monroe og Gretu Garbo fyrir mörgum árum. Það gerðist óvart: allt í einu teiknaði ég mynd af Marilyn eftir ljósmynd, gaf vinkonu minni sem hengdi teikning- una upp á vegg. Síðan fór ég að hafa það fyrir sið að teikna Marilyn upp úr bókum sem ég hafði keypt á mörkuðum, eða urðu á vegi mínum á ferðalögum, og af ljósmyndum á Internetinu. Þegar ég skrifaði fyrstu söguna um leikkonurnar fór ég að teikna Gretu upp úr bókum sem ég hafði eignast og lesið ung, en bækur um Gretu voru nú horfnar úr hillum bókabúða, en ekki af Internetinu. Þá hóf ég að búa til þessa bók með sögum og teikningum. Ég lifði mig inn í viðfangsefnið. Stöku sinnum brá ég mér yfir girðinguna og kíkti frá öðru sjónarhorni inn í vinnuherbergið og sýndist mér ég vera að fást við eitthvað sem ég gæti kallað unglingslegt, þá brosti ég út í annað, hló að sjálfri mér og öllum heiminum, klifraði til baka og settist aftur dáleidd og utan við mig niður við vinnuborðið.“ Kristín Ómarsdóttir S Ý N I N G Á T E I K N I N G U M K R I S T Í N A R Ó M A R S D Ó T T U R B O R G A R B Ó K A S A F N R E Y K J A V Í K U R V I Ð T R Y G G V A G Ö T U Þ R I Ð J U D A G I N N 7. Á G Ú S T K L . 1 7 Marilyn og Greta Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Borgarbókasafn taka hönd- um saman við Hinsegin daga í Reykjavík og bjóða til opnunar sýningar á teikningum Kristínar Ómarsdóttur á neðstu hæð Borgarbókasafnsins þriðjudaginn 7. ágúst kl. 17. Á síðasta ári sendi Kristín frá sér bókina Við tilheyrum sama myrkrinu – Af vináttu: Marilyn Monroe og Greta Garbo. Þar birti hún sögur og teikningar sínar af Marilyn og Gretu, og nú birtast þær stúlkur tvíefldar á veggjum Borgarbókasafns. Í tilefni af 50. ártíð Marilyn Monroe 5. ágúst munu leikkonur lesa upp úr bók Kristínar við opnunina og söngkonurnar Ragga Gísla og Lay Low taka lagið. Sýningin stendur til 31. ágúst. Marilyn & Greta The Reykjavik City Library and Reykjavik, UNESCO City of Literature, jointly present an exhibition of drawings by author and artist Kristín Ómarsdóttir from her recent fic- tional book about two Hollywood legends, Marilyn Monroe and Greta Garbo. Kristín’s fascination with the two starlets led her to first draw them and then write about them, which in turn inspired more drawings. Now those drawings are presented to the public and excerpts from the book will also be read at the opening, at Reykjavik City Library, Tuesday 7 August at 5 p.m. 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.