Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2012, Blaðsíða 70

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2012, Blaðsíða 70
H I N S E G I N F É L A G A S A M T Ö K Á Í S L A N D I Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride www.gaypride.is – Facebook, Twitter, YouTube Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride eru sjálfstæð sjálfboða- liðasamtök sem árlega skipuleggja Hinsegin daga í Reykjavík aðra helgi í ágúst. Allir sem styðja markmið hátíðarinnar og vilja vinna með félaginu geta gerst félagar með því að greiða árgjaldið, 1000 kr. Samtökin ’78 – félag hinsegin fólks á Íslandi www.samtokin78.is / skrifstofa@samtokin78.is – Facebook Samtökin ’78 eru elstu og stærstu samtök hinsegin fólks á Íslandi og undir forystu þeirra hafa unnist miklir sigrar í mannréttindamálum á liðnum árum. Markmið félagsins er tvíþætt: Að vinna að baráttu- og hagsmunamálum hinsegin fólks í því skyni að vinna því jafnrétti á við aðra á öllum sviðum þjóðlífsins, og að skapa félagslegan og menn- ingarlegan vettvang til þess að styrkja sjálfsvitund þess, samkennd og samstöðu um sérkenni sín. Í miðstöð félagsins á Laugavegi 3 starfar fólk að fræðslu og félagsráðgjöf og veitir aðstoð og ráðgjöf. Þar hittist ungliðahópur einu sinni í viku og þar er vandað almenningsbókasafn með hinsegin efni, bókum, tímaritum og kvikmyndum. Q – Félag hinsegin stúdenta www.queer.is – Facebook Félag hinsegin stúdenta, Q, var stofnað í janúar 1999. Það heldur uppi öflugu félagsstarfi meðal ungs fólks og hittist á Q-kvöldum í félagsmiðstöð Samtakanna ’78. Eitt af markmiðum félagsins er að vera sýnilegt afl innan háskólasamfélagsins á Íslandi og í forsvari þar þegar málefni hinsegin fólks ber á góma. Félagið er virkur þátttakandi í tveimur samtökum ungs fólks í Evrópu, ANSO og IGLYO. Trans-Ísland http://trans.is/ transiceland@gmail.com – Facebook Trans-Ísland var stofnað árið 2007 og hefur að markmiði sínu að skapa transfólki og fjölskyldum þess menningarlegan vettvang og styrkja þannig sjálfsvitund þeirra, vinna að laga- og réttarbótum, auka fræðslu og eiga samstarf við sambærileg samtök hérlendis og erlendis. Fyrsta miðvikudag hvers mánaðar hittist Trans-Ísland í félagsmiðstöð Samtakanna ’78. Íþróttafélagið Styrmir www.ststyrmir.is / ststyrmir@gmail.com – Facebook Íþróttafélagið Styrmir var stofnað árið 2006 og er nú ein af blómleg- ustu grasrótarhreyfingum hinsegin fólks á Íslandi. Í vegum félagsins æfa konur og karlar fótbolta, sund og blak og boðið er upp á fjölmarga íþróttaviðburði í hverri viku. Árlega tekur félagið þátt í íþróttamótum á erlendum vettvangi og nú í vor stóð Styrmir fyrir alþjóðlegu sundmóti 450 þátttakenda í Reykjavík sem vakti mikla athygli. KMK – Konur með konum www.kmk.is / kmk@kmk.is – Facebook Konur með konum, KMK, varð til sem grasrótarhreyfing lesbía laust fyrir 1990. Tilgangurinn er ekki síst að efla sýnileika lesbía, styrkja samstöðu þeirra, gefa þeim tækifæri til að skemmta sér á eigin for- sendum. Stúlkurnar í KMK stunda íþróttir af kappi, einkum blak, og hafa keppt á alþjóðlegum leikum. Þá halda þær sumarhátíðir og bregða sér sér í útilegur og veiðiferðir þegar vel viðrar. MSC Ísland www.msc.is / msc@msc.is MSC Ísland var stofnað árið 1985. Klúbburinn hefur sínar klæðareglur, leður, gúmmí-, einkennis- og gallaföt, og ástæðan er einfaldlega sú að félagarnir vilja hafa karlmenn karlmannlega klædda og þá heldur ýkt í þá áttina en hina. MSC Ísland hefur ferðamennsku og fyrirgreiðslu við erlenda ferðamenn beinlínis á stefnuskrá sinni og er aðili að Evrópusamtökunum ECMC sem lagt hafa mikið af mörkum til barátt- unnar fyrir stolti, sýnileika og samábyrgð. Félag hinsegin foreldra gayforeldrar@gmail.com – Facebook Félag hinsegin foreldra eru yngstu samtökin í flóru hinsegin hreyfinga á Íslandi. Þau hafa það að markmiði að gera lífið skemmtilegra fyrir börn sín, gefa þeim kost á að kynnast og miðla reynslu af foreldra- hlutverkinu. Thanks to the Queer Community The LGBT comunity in Iceland has joined forces to celebrate Gay Pride 2012 with festivities in Reykjavík during the second weekend in August. We would like to thank seven organizations and activ- ity groups: the Icelandic Queer Organization, Samtökin ’78; The Asssociation of Queer Students, Q; the women’s group Women with Women, KMK; the transgender association Trans-Iceland; the leather men’s club, MSC Iceland; Styrmir Sports Club, and Queer Parents’ Association. Útgefandi: Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride Pósthólf 80 – 121 Reykjavík – www.gaypride.is Ritstjórn: Þorvaldur Kristinsson (ábm.). Textar: Árni Heimir Ingólfsson, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Birna Hrönn Björnsdóttir, Erlingur Óttar Thoroddsen, Svandís Anna Sigurðardóttir og Þorvaldur Kristinsson. Auglýsingar: Eva María Þórarinsdóttir Lange, Jón Sævar Baldvinsson, Hvíta húsið, Kristín Sævarsdóttir og Þorvaldur Kristinsson. Ljósmyndir: Aníta Björk Jóhannsdóttir, Bára, Bárður Sigurðsson, Bragi Bergþórsson, Brjánn Baldursson, Geir Ragnarsson, Jóhann Páll Valdimarsson, Jón Kaldal, Magnús Ólafsson, Pétur Brynjólfsson, Pressphoto og fleiri. Hinsegin dagar í Reykjavík þakka Ljósmyndasafni Íslands, Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Minjasafninu á Akureyri og Jóni M. Ívarssyni fyrir lán á myndum. Merki og bolur Hinsegin daga: Aðalbjörg Þórðardóttir. Hönnun dagskrárrits: Tómas Hjálmarsson. Forsíða dagskrárrits: Oddvar. Kærar þakkir – Apríl Smáradóttir, Marta Hildur Richter, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Kristján Jörgen Hannesson, Sigurður Jónas Eysteinsson, Sigríður Kristjánsdóttir, Hildur Rósa Konráðsdóttir, Kristín Júlía Kristjánsdóttir, Michelle Marie Morris, Ásta Sigurðardóttir, Selma Stefánsdóttir, Gunnar Helgi Guðjónsson, Anna Aðalheiður Smáradóttir, Listaháskóli Íslands, Þvottahús ríkisspítalanna, Málning hf. og Cintamani. Stjórn og samstarfsnefnd um Hinsegin daga í Reykjavík Fjölmargt fólk leggur hönd á plóg til að gera hátíð Hinsegin daga að veruleika á hverju ári. Sum sýna þó meira úthald en önnur við undirbúninginn og vinna hörðum höndum árið um kring áður en kemur að sex daga stórhátíð. Í stjórn Hinsegin daga í Reykjavík árið 2012 sitja Eva María Þórarinsdóttir Lange, formaður, Þorvaldur Kristinsson, varaformaður, Kristín Sævarsdóttir, ritari, Jón Sævar Baldvinsson, gjaldkeri, og Guðni Kristinsson, meðstjórnandi. Við hlið þeirra starfar samstarfs- nefnd að verkefnum ársins. Allir þeir sem gerast félagar Hinsegin daga og greiða félagsgjöld geta starfað með henni. Þegar hátíðin nálgast kallar stjórn síðan á nokkur hundruð sjálfboðaliða sér til aðstoðar. Þar má nefna öflugt lið sölufólks á götum og SEEDS með um 40 manna liðsafla sem veitir ómetanlega aðstoð. 70
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.