Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2012, Page 70
H I N S E G I N F É L A G A S A M T Ö K Á Í S L A N D I
Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride
www.gaypride.is – Facebook, Twitter, YouTube
Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride eru sjálfstæð sjálfboða-
liðasamtök sem árlega skipuleggja Hinsegin daga í Reykjavík aðra
helgi í ágúst. Allir sem styðja markmið hátíðarinnar og vilja vinna með
félaginu geta gerst félagar með því að greiða árgjaldið, 1000 kr.
Samtökin ’78 – félag hinsegin fólks á Íslandi
www.samtokin78.is / skrifstofa@samtokin78.is – Facebook
Samtökin ’78 eru elstu og stærstu samtök hinsegin fólks á Íslandi og
undir forystu þeirra hafa unnist miklir sigrar í mannréttindamálum á
liðnum árum. Markmið félagsins er tvíþætt: Að vinna að baráttu- og
hagsmunamálum hinsegin fólks í því skyni að vinna því jafnrétti á við
aðra á öllum sviðum þjóðlífsins, og að skapa félagslegan og menn-
ingarlegan vettvang til þess að styrkja sjálfsvitund þess, samkennd og
samstöðu um sérkenni sín. Í miðstöð félagsins á Laugavegi 3 starfar
fólk að fræðslu og félagsráðgjöf og veitir aðstoð og ráðgjöf. Þar hittist
ungliðahópur einu sinni í viku og þar er vandað almenningsbókasafn
með hinsegin efni, bókum, tímaritum og kvikmyndum.
Q – Félag hinsegin stúdenta
www.queer.is – Facebook
Félag hinsegin stúdenta, Q, var stofnað í janúar 1999. Það heldur
uppi öflugu félagsstarfi meðal ungs fólks og hittist á Q-kvöldum í
félagsmiðstöð Samtakanna ’78. Eitt af markmiðum félagsins er að
vera sýnilegt afl innan háskólasamfélagsins á Íslandi og í forsvari þar
þegar málefni hinsegin fólks ber á góma. Félagið er virkur þátttakandi
í tveimur samtökum ungs fólks í Evrópu, ANSO og IGLYO.
Trans-Ísland
http://trans.is/ transiceland@gmail.com – Facebook
Trans-Ísland var stofnað árið 2007 og hefur að markmiði sínu að skapa
transfólki og fjölskyldum þess menningarlegan vettvang og styrkja
þannig sjálfsvitund þeirra, vinna að laga- og réttarbótum, auka fræðslu
og eiga samstarf við sambærileg samtök hérlendis og erlendis.
Fyrsta miðvikudag hvers mánaðar hittist Trans-Ísland í félagsmiðstöð
Samtakanna ’78.
Íþróttafélagið Styrmir
www.ststyrmir.is / ststyrmir@gmail.com – Facebook
Íþróttafélagið Styrmir var stofnað árið 2006 og er nú ein af blómleg-
ustu grasrótarhreyfingum hinsegin fólks á Íslandi. Í vegum félagsins
æfa konur og karlar fótbolta, sund og blak og boðið er upp á fjölmarga
íþróttaviðburði í hverri viku. Árlega tekur félagið þátt í íþróttamótum á
erlendum vettvangi og nú í vor stóð Styrmir fyrir alþjóðlegu sundmóti
450 þátttakenda í Reykjavík sem vakti mikla athygli.
KMK – Konur með konum
www.kmk.is / kmk@kmk.is – Facebook
Konur með konum, KMK, varð til sem grasrótarhreyfing lesbía laust
fyrir 1990. Tilgangurinn er ekki síst að efla sýnileika lesbía, styrkja
samstöðu þeirra, gefa þeim tækifæri til að skemmta sér á eigin for-
sendum. Stúlkurnar í KMK stunda íþróttir af kappi, einkum blak, og
hafa keppt á alþjóðlegum leikum. Þá halda þær sumarhátíðir og bregða
sér sér í útilegur og veiðiferðir þegar vel viðrar.
MSC Ísland
www.msc.is / msc@msc.is
MSC Ísland var stofnað árið 1985. Klúbburinn hefur sínar klæðareglur,
leður, gúmmí-, einkennis- og gallaföt, og ástæðan er einfaldlega sú að
félagarnir vilja hafa karlmenn karlmannlega klædda og þá heldur ýkt
í þá áttina en hina. MSC Ísland hefur ferðamennsku og fyrirgreiðslu
við erlenda ferðamenn beinlínis á stefnuskrá sinni og er aðili að
Evrópusamtökunum ECMC sem lagt hafa mikið af mörkum til barátt-
unnar fyrir stolti, sýnileika og samábyrgð.
Félag hinsegin foreldra
gayforeldrar@gmail.com – Facebook
Félag hinsegin foreldra eru yngstu samtökin í flóru hinsegin hreyfinga
á Íslandi. Þau hafa það að markmiði að gera lífið skemmtilegra fyrir
börn sín, gefa þeim kost á að kynnast og miðla reynslu af foreldra-
hlutverkinu.
Thanks to the Queer Community
The LGBT comunity in Iceland has joined forces to celebrate Gay
Pride 2012 with festivities in Reykjavík during the second weekend
in August. We would like to thank seven organizations and activ-
ity groups: the Icelandic Queer Organization, Samtökin ’78; The
Asssociation of Queer Students, Q; the women’s group Women with
Women, KMK; the transgender association Trans-Iceland; the leather
men’s club, MSC Iceland; Styrmir Sports Club, and Queer Parents’
Association.
Útgefandi: Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride
Pósthólf 80 – 121 Reykjavík – www.gaypride.is
Ritstjórn: Þorvaldur Kristinsson (ábm.).
Textar: Árni Heimir Ingólfsson, Ásta Kristín Benediktsdóttir,
Birna Hrönn Björnsdóttir, Erlingur Óttar Thoroddsen, Svandís Anna
Sigurðardóttir og Þorvaldur Kristinsson.
Auglýsingar: Eva María Þórarinsdóttir Lange, Jón Sævar Baldvinsson,
Hvíta húsið, Kristín Sævarsdóttir og Þorvaldur Kristinsson.
Ljósmyndir: Aníta Björk Jóhannsdóttir, Bára, Bárður Sigurðsson,
Bragi Bergþórsson, Brjánn Baldursson, Geir Ragnarsson, Jóhann
Páll Valdimarsson, Jón Kaldal, Magnús Ólafsson, Pétur Brynjólfsson,
Pressphoto og fleiri. Hinsegin dagar í Reykjavík þakka Ljósmyndasafni
Íslands, Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Minjasafninu á Akureyri og Jóni
M. Ívarssyni fyrir lán á myndum.
Merki og bolur Hinsegin daga: Aðalbjörg Þórðardóttir.
Hönnun dagskrárrits: Tómas Hjálmarsson.
Forsíða dagskrárrits: Oddvar.
Kærar þakkir – Apríl Smáradóttir, Marta Hildur Richter, Hrafnhildur
Guðmundsdóttir, Kristján Jörgen Hannesson, Sigurður Jónas
Eysteinsson, Sigríður Kristjánsdóttir, Hildur Rósa Konráðsdóttir, Kristín
Júlía Kristjánsdóttir, Michelle Marie Morris, Ásta Sigurðardóttir,
Selma Stefánsdóttir, Gunnar Helgi Guðjónsson, Anna Aðalheiður
Smáradóttir, Listaháskóli Íslands, Þvottahús ríkisspítalanna, Málning
hf. og Cintamani.
Stjórn og samstarfsnefnd um Hinsegin daga í Reykjavík
Fjölmargt fólk leggur hönd á plóg til að gera hátíð Hinsegin daga
að veruleika á hverju ári. Sum sýna þó meira úthald en önnur við
undirbúninginn og vinna hörðum höndum árið um kring áður en
kemur að sex daga stórhátíð.
Í stjórn Hinsegin daga í Reykjavík árið 2012 sitja Eva María
Þórarinsdóttir Lange, formaður, Þorvaldur Kristinsson, varaformaður,
Kristín Sævarsdóttir, ritari, Jón Sævar Baldvinsson, gjaldkeri, og
Guðni Kristinsson, meðstjórnandi. Við hlið þeirra starfar samstarfs-
nefnd að verkefnum ársins. Allir þeir sem gerast félagar Hinsegin
daga og greiða félagsgjöld geta starfað með henni. Þegar hátíðin
nálgast kallar stjórn síðan á nokkur hundruð sjálfboðaliða sér til
aðstoðar. Þar má nefna öflugt lið sölufólks á götum og SEEDS með
um 40 manna liðsafla sem veitir ómetanlega aðstoð.
70