Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2012, Blaðsíða 17

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2012, Blaðsíða 17
Ásta Kristín Benediktsdóttir Árið 1959 kom út ljóðabók eftir óþekktan íslenskan höf- und sem skýldi sér á bak við skáldanafnið Arnliði Álfgeir. Bókin, sem ber titilinn Kirkjan á hafsbotni, vakti þó nokkra athygli, og eins og gengur með bækur sem gefnar eru út undir dulnefni veltu menn vöngum yfir því hver höfundurinn væri. Það var þó ekki fyrr en 52 árum síðar, í desember 2011, að það varð opinbert að ljóðin – sem lýsa meðal annars harmþrunginni ást og sorg ljóðmælandans vegna þess að hann getur ekki verið með konunni sem hann þráir – eru í raun ekki eftir karlmann heldur konu. Leyndarmálið upplýst Um miðjan desember 2011 barst ljóðabókin Kirkjan á hafsbotni í tal í sjónvarpsþættinum Kiljunni. Bókin hafði þá verið nokkuð þekkt frá því hún kom út, að minnsta kosti meðal einlægs áhugafólks um bókmenntir. Einnig höfðu nokkur ljóð eftir Arnliða Álfgeir birst í safninu Íslenzk ljóð 1954–1963 sem gefið var út árið 1972. Í Kiljunni kom fram að talið væri að skáldið, Arnliði Álfgeir, hefði í raun verið Þórarinn Guðnason læknir sem nú er látinn. Tveimur dögum síðar, 16. desember, skrifaði sonur Þórarins, Freyr Þórarinsson, stutta grein í Fréttablaðið og skýrði frá því að faðir hans hefði ekki verið höfundurinn, held- ur sjúklingur sem leitaði til hans og bað hann um að fara með handritið til útgefanda. Sjúklingurinn taldi sér ekki vera fært að fara sjálfur með handritið, því hann vildi ekki að það kæmist upp hver hann væri. „Það er vegna þess,“ hafði Þórarinn sagt, „að höfundurinn er ekki karl- maður heldur kona, gift þjóðkunnum manni, og hann veit ekkert um ást hennar til annarr- ar konu.“ Freyr segist ekki vita hver konan var, fremur en nokkur annar, því faðir hans hafi farið með þá vitneskju í gröfina. Fyrsta íslenska bókin um ástir kvenna? Vitað er um afar fáar íslenskar bækur sem lýsa ástum kvenna á Íslandi fyrir 1970, þótt vissulega verði að telja líklegt að þær séu til. Slíkar bækur getur verið erfitt að finna, því umfjöllunarefnið er oftar en ekki falið milli línanna, en ljóst er að eitt af verkefnum framtíðarinnar verður að koma auga á sam- kynja ástir og þrár í bókmenntum sem ekki hafa hingað til verið skilgreindar hinsegin. Dagný Kristjánsdóttir skrifar um lesbíur í íslenskum bókmenntum í greininni „Hinsegin raddir“, sem birtist í Skírni haustið 2003, og bendir þar á að ekkert íslenskt heiti hafi verið til yfir samkynhneigð kvenna fyrr en seint á 20. öld. Þótt ýmsar konur í íslenskum miðaldasögum séu „karlmannlegar“, ýmist vegna klæðaburðar eða óvenju mikils sjálf- stæðis, tekst Dagnýju ekki að benda á neinar íslenskar bókmenntir um samkynhneigðar konur eða ástir kvenna fyrr en á 8. áratug 20. aldar. Þá voru það gagnkynhneigðir karl- menn sem tóku að sér að skrifa um veru- leika lesbía, svo sem Guðlaugur Arason í skáldsögunni Eldhúsmellur (1978) og Jökull Jakobsson í Feilnótu í fimmtu synfóníunni (1975). Á níunda og tíunda áratugnum hófu loks skáldkonur með Vigdísi Grímsdóttur og Kristínu Ómarsdóttur fremstar í flokki að skrifa bækur um hinsegin veruleika kvenna. Sé saga Freys Þórarinssonar um höfund- inn á bak við dulnefnið Arnliði Álfgeir sönn − sem engin ástæða er til að draga í efa − má segja að Kirkjan á hafsbotni sé komin út úr skápnum sem lesbísk ljóðabók. Hún er þá ein allra fyrsta íslenska bókin sem fjallar um ástir kvenna og þar af leiðandi afar merkilegur hluti af íslenskri bók- menntasögu. „Aldrei get ég orðið, það sem aðrir vilja sjá“ Það er á engan hátt undarlegt að lesandi Kirkjunnar á hafsbotni reikni umhugsunarlaust með því að skáldið sé karlmaður. Ekki aðeins er dulnefn- ið karlkyns heldur vísar ljóðmælandi endurtekið til sjálfs sín sem karlmanns: „Ég sit í hrauninu – sjálfur í álögum,“ segir hann og enn fremur: „Ég var einn“. Síðast en ekki síst er ástin fyrir- ferðarmikið þema í bókinni og yfirleitt er ljóst að sú ást beinist til konu – og þau gagnkynhneigðu samfélagsvið- mið sem við lifum og hrærumst í gera vissulega fyrst og fremst ráð fyrir því að konur séu elskaðar af körlum og öfugt. Kirkjan á hafsbotni skiptist í fimm hluta, hvern með sínu þema. Í fyrsta hlutanum eru ýmis ljóð er fjalla um ást, frið, fegurð, ævintýri og drauma. Annar hluti sker sig frá hinum fjórum því þemað þar er stríð og friður og pólitísk ádeila gegn stríði er greinileg. Í þriðja hluta eru ljóðin flest ástar- játningar og ávörp ljóðmælandans til konu eða kvenna. Í fjórða hluta ræður sorg og missir ríkjum; konan sem ástin beinist til er horfin og ástin er dauðadæmd. Í fimmta og síðasta hluta bókarinnar eru ljóðin einnig ástarljóð til konu en kominn er annar og kristinn undirtónn sem minnir á köflum á píslarvætti. Þegar ljóðabókin er lesin með það í huga að skáldið sé kona er augljóst að megin- þema hennar er „sú ást sem ei vogar að Bókin sem kom út úr skápnum Kirkjan á hafsbotni K I R K J A N Á H A F S B O T N I Þanið segl á sokknum sæ, strönd þeirra ferða, er aldrei hlutu byr. Turn hennar er hinn djúpi brunnur nætur, hvar þorstanum vaxa varir til að berja vínið, sem brýtur sér kaleik af steinum og æðar um orðsins hljóm. Myndin, sem fegurðin skar úr auga þíns kviku, er altaristaflan. Í kirkjunni á hafsbotni kristallast gröfinni líf, því að dauðinn er ástin, sem eilífðin ber til tímans. Um hverfanda hvel fer hún sigð, er safnar að hausti fræjum þeim, er fæða sólunni vorið. Segl varð mér sá brotsjór, er sáði skipi mínu í skeljar framandi sæva. Því að kirkjan á hafsbotni er óskabyrinn, er safnar öllum þeim ferðum, sem þú aldrei fórst, und vængi ónumdra stranda. 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.