Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2012, Blaðsíða 4
Rokkhljómsveitin BETTY vakti fyrst
athygli meðal homma og lesbía um
miðjan níunda áratuginn, en óvenju-
legir textar þeirra og rokkuð sviðsfram-
koma gerðu þær að cult-grúppu í New
York meðal þeirra sem lifa og hrærast í
því tónlistarlífi sem forðast meginstrauminn
og leitar að alternatífu rokki. Stúlkurnar í
BETTY eru jafnframt einlægar baráttukonur
fyrir betra mannlífi og hljómsveitin hefur
löngum látið til sín taka í mótmælum og
kröfugöngum sem varða jafnrétti kynjanna
og mannvirðingu minnihlutahópa. Svo kom
að því að þær stöllur létu sér ekki lengur
nægja tónleikapallinn heldur þokuðu sér inn
í leikhúsið og urðu þá beinlínis alræmdar,
en í söngleik þeirra, BETTY: Inside Out,
voru þær sjálfar í aðalhlutverki: Amy var
dívan með risaegóið, Elizabeth var róttæki
uppreisnarseggurinn og Alyson var rólega
ofurhetjan. Sýningin varð geysivinsæl og
skaut þeim beint upp á stjörnuhimininn.
Síðan hafa þær kallað fleiri til liðs við
hljómsveitina og sett á svið off-Broadway
sýninguna BETTY RULES sem þær ferðuðust
með um Bandaríkin á sínum tíma. Í okkar
heimshluta eru þær þó sennilega frægastar
fyrir það að hafa komið fram í fjölmörgum
þáttum The L-Word, en þær sömdu eins og
kunnugt er þemalagið við þann fræga fram-
haldsmyndaflokk. Við bjóðum stúlkurnar í
BETTY velkomnar á Opnunarhátíð Hinsegin
daga í Háskólabíói 9. ágúst og á útitónleik-
ana við Arnarhól 11. ágúst.
The New York based alt-rock group BETTY quickly developed a cult following for their unique lyrics and
rocking performances. However, once they brought their act to the stage, in the hugely popular musical
show BETTY: Inside Out, they became notorious. Since then, the always-activist members of BETTY have
starred in their off-Broadway show BETTY RULES and guest-starred on a number of episodes of The L-Word,
for which they also wrote the theme song. We welcome the girls to the Opening Ceremony in Háskólabíó
Cinema Thursday, 9 August, and to the Outdoor Concert at Arnarhóll, Saturday, 11 August.
44
the
notorious
betty