Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2012, Qupperneq 40

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2012, Qupperneq 40
 GLEÐI GANGAN VILTU VERA MEÐ ATRIÐI? Í gleðigöngu Hinsegin daga staðfestir hin- segin fólk tilveru sína, sýnileika og gleði. Þar sameinast lesbíur, hommar, tvíkynhneigðir og transfólk í einum hópi ásamt fjölskyldum sínum og vinum. Gleðigangan er hápunktur og stolt hátíðarinnar. Hinsegin dagar skipu- leggja hana og ráða alfarið hvaða atriði fá aðgang að henni. Gangan er engu að síður sprottin úr grasrótinni og það eru einstak- lingar og hópar sem móta og setja saman einstök atriði hennar. Nýja gönguleiðin í fyrra mæltist einstak- lega vel fyrir, gangan fékk nýtt og voldugt rými og áhorfendur nutu þess að fylgjast með. Við göngum sömu leið í ár, stillum upp á Vatnsmýrarvegi, göngum Sóleyjargötu, Fríkirkjuveg og Lækjargötu og framhjá Arnarhóli þar sem útitónleikarnir eru haldnir (sjá kort). Mikilvægt er að þátttakendur vandi skreyt- ingar á vögnum sínum. Atriðum í gleðigöng- unni fjölgar ár frá ári og mörg hver hafa verið einstaklega glæsileg. Hinsegin dagar leggja áherslu á það að hvert atriði miðli skilaboðum sem varða veruleika hinsegin fólks á einn eða annan hátt. Skilaboðin geta verið með óteljandi móti og þar skiptir hugkvæmni þátttakenda miklu máli. Bestu atriðin kosta oftar en ekki litla peninga. Í fyrra voru tvö atriði heiðruð með fjárstyrk fyrir framlag sitt, vagnarnir Hinsegin Norðurland og Human Flower. Það er algjörlega óheimilt að auglýsa fyrirtæki eða þjónustu í göngunni án samráðs við stjórn Hinsegin daga. LEIKSTJÓRAR TIL AÐSTOÐAR Hinsegin dagar bjóða aðstoð leikstjóra sem gefa góð ráð til göngufólks. Ræðið hugmyndir ykkar við ráðgjafa okkar og þau benda á leiðir sem kosta lítið en setja flottan svip á atriðin ykkar. Leikstjórarnir eru Ásdís Þórhallsdóttir, asdis.th@gmail.com – 865 2545, og Tyrfingur Tyrfingsson, tyrfingur@gmail.com – 691 5209. Þau hafa mikla reynslu af götuleikhúsi og uppákomum af öllu tagi. SKRÁNING OG ÞÁTTTAKA Þátttakendur sem ætla að vera með formleg atriði í gleðigöngunni verða að sækja um það til Hinsegin daga eigi síðar en 5. ágúst. Nauðsynlegt er að skrá atriði með því að fylla út eyðublað sem finna má á vefsíð- unni www.gaypride.is, og senda það síðan í tölvupósti til göngustjóra á netfangið gongustjori@gmail.com. Nánari upplýsingar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.