Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2012, Síða 54
Það er engin tilviljun að ganga Hinsegin daga
kennir sig við gleði. Hún er staðfesting á stolti sem fæstum okkar
reyndist auðfengið og auðfundið. Með gleðigöngunni fögnum við
sigrum sem unnist hafa í mannréttindabaráttu hinsegin fólks á
Íslandi og látum í ljósi þakklæti til ættingja okkar og vina fyrir
að koma með á bátinn og standa með okkur af heilum hug. Með
sýnileikanum styrkjum við líka það fólk sem vildi svo gjarn-
an brjótast út úr skápnum en sér ennþá ástæðu til að hika.
Það stingur þess vegna í stúf við markmið okkar þegar mannvirðing og jafnrétti eru höfð að háði og spotti. Það hefur gerst hvað
eftir annað hin síðustu ár að gagnkynhneigt fólk, sem verið er að steggja og gæsa fyrir væntanlegt brúðkaup, reynir að troðast
óboðið inn í gleðigönguna, ekki til að sýna samstöðu, heldur er tilgangurinn sá að lýsa niðurlægingu viðkomandi steggs eða
gæsar. „Ha, ha, auminginn, villtist inn í Gay Pride gönguna! Er hann kannski hommi?!“ Myndbandsupptökur af „ævintýrinu“
eru síðan sýndar í brúðkaupsveislunni og hlegið dátt að óförum brúðarinnar eða brúðgumans.
Þátttakendum sem ganga gleðigöngu með mannréttindum, gegn fordómum, er alls ekki bjóðandi að lenda við hlið einhvers
sem sýnir göngunni og þátttakendum þá lítilsvirðingu sem fylgir steggjum og gæsum í brúðkaupshugleiðingum á þessum vett-
vangi. Við bjóðum alla hjartanlega velkomna sem slást í hóp göngufólks af góðum hug – líka fuglana á Tjörninni ef þeim býður
svo við að horfa – en við biðjum ófiðraða steggi og fjaðralausar gæsir um að skemmta sér annars staðar þennan dag.
46
Ef þú getur ekki
sýnt mér virðingu...
“If you can’t respect me,
you’ve got no business being here.“
Homminn Harvey við móður sína í
Torch Song Trilogy
Birna Hrönn Björnsdóttir
Þorvaldur Kristinsson
Kveðja til Hinsegin daga í Reykjavík
Fyrir hönd Sendiráðs Noregs á Íslandi óska ég
Hinsegin dögum í Reykjavík allra heilla á hátíðinni, 11. ágúst 2012.
Að fagna margbreytileikanum snýst ekki um það að hylla einn lífsstíl umfram annan; það snýst
um að stuðla að virðingu fyrir grundvallarréttindum allra manna. Það snýst um kjarna lýðræðis-
hugsjónarinnar, að allir menn njóti sömu mannréttinda án tillits til kynhneigðar eða kynvitundar.
Því vil ég nota þetta tilefni og lýsa yfir einlægum stuðningi við allt það folk sem vinnur að því
við fáum öll notið mannréttinda okkar, án manngreinarálits, rétt eins þeim er lýst
í Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Ég óska ykkur giftusamlegrar og gleðilegrar hátíðar!
Dag Wernø Holter
Sendiherra Noregs á Íslandi
54