Vinnan - 01.07.1964, Side 3

Vinnan - 01.07.1964, Side 3
ÚTGEFANDl: ALÞÝOUSAMBAND ÍSLANDS Vinsæll verkalýðsleiðtogi 50 ára Kæri vinur! Dagurinn 15. júní er merkisdagur í lífi pmu og þinnar fjölskyldu. Þenn- an dag átt þú hálfrar aldar afmæli, og leyfi ég mér af því tilefni að senda þér innilegustu hamingjuóskir með beztu þökkum fyrir forystustarf þitt í verkalýðshreyfingunni. — Heill þér fimmtugum! Kynni okkar hafa nú staðið í röska tvo áratugi. Og hafa þau öll verið á þann veg, að ég tel þig nú einn minn bezta vin í þessum bæ. Þessvegna eiga línur þessar öðr- um þræði að vera þakklætisvottur frá mér, fyrir góðvild þína í minn garð fyrr og síðar, ráðleggingar þínar og hjálpsemi á erfiðum tímum. Ekki á þetta sízt við um þau árin, er ég var sjómaður og skrifaði stundum um ör- yggismál sjómanna. Þá varst þú al- þingismaður og fluttir m. a. málefni sjómanna á þingi. Mun ég víkja nán- ar að því síðar. Á þessum árum grundvallaðist sú vinátta okkar, sem trautt mun rofna, meðan báðir lifa. Þegar við höfum ræðst við tveir ein- ir, eða meðal verkamanna, hefur tal- ið jafnan sveigst að sameiginlegum hugðarefnum beggja, verkaiýðsmál- unum á sjó eða landi, stundum líka al- mennum þjóðmálum eða bæjarmálum. Því mun ég nú víkja nokkuð að opin- berum störfum þínum, og byrja þá á starfi þínu fyrir sjómannastéttina. Vera þín á Alþingi var allt of stutt. Hvað því olli, veit ég ekki. En verk þín á þeim árum tala sjálf af blað- síðum þingtíðindanna. Því til sönn- unar nefni ég eitt dæmi: Árið 1946 fluttir þú ásamt okkar ágæta verkalýðsleiðtoga, Sigurði Guðnasyni frumvarp til laga um 12 stunda hvíld á togurum. Þessi bar- átta stóð í 10 ár, eða til ársins 1956, Hermann Guðmundsson. að frumvarp þessa efnis varð að lög- um. Þá áttir þú að vísu ekki sæti á Alþingi, en þú hleyptir málinu „af stokkunum," ásamt Sigurði Guðna- syni, og það skiptir mestu máli. Þessa löggjöf vil ég kalla lífgjafa togaraútgerðar á íslandi. Því að þess þykist ég fullviss, að nú fengizt eng- inn á togara, ef vinnutíminn væri, eins og hann var. Ég efa ekki, að þá væru allir okkar togarar bundnir við landfestar eða seldir úr landi. Þeir menn, sem nú vilja stytta aft- ur hvíldartíma togarasjómanna — af- nema vökulögin — vita ekki, hvað þeir gera. Það væri auðvitað óþolandi öf- ugþróun, ef lengja ætti vinnutíma tog- arasjómanna á sama tíma og barizt er fyrir styttingu vinnutímans hjá öll- um öðrum. Engum heiivita manni getur dottið í hug, að tímabært sé að leggja nið- ur togaraútgerð á íslandi, þó að á móti blási í bili. Togararnir afla mik- illa gjaldeyrisverðmæta, og þeir sækja aflafeng sinn yfirleitt á þau mið, sem bátaflotinn nær ekki til, svo sem til Grænlands og á Nýfundnalandsmið. Því er barátta þín á sínum tíma ennþá ómetanleg fyrir þjóðarheildina. Það var líka árið 1946, að þú flutt- ir á Alþingi þingsályktunartillögu um að setja ljóskastara á öll hin stærri fiskiskip okkar. — Þetta var sam- þykkt síðar. Um gildi þessarar sam- þykktar skal ég aðeins taka eitt dæmi: Hinn 31. janúar 1950 fórst b/v Vörð- ur frá Patreksfirði í hafi austur af Islandi. Skipið var yfirgefið síðla dags, myrkur var á skollið. Mér hefur verið tjáð, að hin giftu- samlega björgun mannslífa að þessu sinni, hafi ekki hvað sízt verið ljós- kastaranum að þakka ásamt öruggri meðferð hans af hendi skipstjórans á b/v Bjarna Óiafssyni frá Akra- nesi, en skipstjórinn var Jónmundur Gíslason. Þfví miður tókst ekki að bjarga öllum, en allir þeir, sem með lífsmarki voru, er þeir náðust, björg- uðust. Mér finnst þetta dæmi varpa skíru ljósi yfir þýðingu þessa máls. Mér finnst það sýna, hvers virði þessi til- laga þín hefur reynzt sjómannastétt- inni. Af þessu og mörgu öðru tel ég sannað, að þú sért sannur baráttu- maður og málsvari góðra og göfugra málefna hvort heldur er á sjó eða landi. Og því segi ég: Þingseta þín var of stutt. Nú hefur þú í hartnær aldarfjórð- ung verið leiðtogi okkar Hlífarmanna. Það hlutverk hefur þú rækt með ágæt- um, og hefur það þó síður en svo ver- Framhald á síðu 22.

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.