Vinnan - 01.07.1964, Síða 7
u
uuian
5
Hér sjást fulltrúar verkalýðsfélaganna á Norður- og Austurlandi undirrita samninga sína eftir langt og strangt
samningaþóf. Gerður var einn samningur fyrir 24, er áður giltu. — Samningurinn var síðar samþykktur í félögunum.
— vinnuverndarmál og orlofsréttindi,
svo og nauðsynlegar ráðstafanir í hús-
næðismálum almennings.
Alþýðusambandið býður samstarf
um lausn á þeim miklu vandamálum,
sem við er að glíma í þessum efnum.
Það samstarf verður að byggjast á
réttlátri afstöðu til brýnustu hags-
munamála verkalýðsins, sem varðar
launa- og kjaramál, og að frjáls samn-
ingsréttur sé virtur.
Verkalýðssamtökin vilja vissulega
friðsamlega lausn á vandamálunum,
en þau hljóta að beita sínu mikla sam-
takavaldi, ef réttlátir samningar geta
ekki fengizt um kjaramálin.“
Alþýðusambandið fékk um hæl svo-
hljóðandi bréf:
.„Forsætisráðuneytið.
Reykjavík 21. apríl 1964.
Ríkisstjórnin hefur móttekið bréf
Alþýðusambands íslands, dags. 17.,
þ.m. ásamt ályktun miðstjórnar Al-
þýðusambandsins frá 16. þ.m., og
tilkynnist yður hér með, að ríkis-
stjórnin er reiðubúin að hefja nú
þegar þær viðræður, sem óskað er
eftir í ályktuninni.
Bjarni Benediktsson.
Forseti Alþýðusambands Islands,
hr. Hannibal Valdimarsson,
Laugavegi 18, Reykjavík.“
Viðræður hófust þegar, og varð sam-
komulag um:
1. Að beina þeim tilmælum til
vinnutímanefndar, að hún einbeitti sér
nú að tillögum um styttingu vinnu-
tímans með það fyrir augum, að þær
gætu greitt fyrir lausn mála í sam-
bandi við þessa samninga. Einnig var
vinnutímanefnd falið að gera tillögur
um vinnuverndarmál og orlofsréttindi.
2. Kosin skyldi nefnd skipuð full-
trúum frá Alþýðusambandinu, Vinnu-
veitendasambandinu og ríkisstjórninni
til að undirbúa reglur um verðtrygg-
ingu kaupgjalds.
3. Kosin skyldi nefnd skipuð full-
trúum frá Alþýðusambandinu og rík-
isstjórninni til að gera tillögur til
lausnar húsnæðisvandamálanna.
Voru nefndir þessar síðan kosnar á
miðstjórnarfundi 24. apríl
1 vinnutímanefndinni — sem er
milliþinganefnd kosin af Alþingi —
eru fulltrúar allra þingflokka. For-
maður hennar er Pétur Sigurðsson al-
þingismaður, en í henni eiga einnig
sæti Björn Jónsson, Eggert G. Þor-
steinsson, Ingvar Vilhjálmsson, út-
gerðarmaður og Halldór E. Sigurðs-
son, alþingismaður.
Nefndina um verðtryggingu kaup-
gjalds, skipuðu af hendi Alþýðusam-
bandsins Eðvarð Sigurðsson, Björn
Jónsson og Óskar Hallgrímsson.
Um húsnæðismálin skyldu fjalla f.h.
Alþýðusambandsins Hannibal Valdi-
marsson, Guðjón Jónsson og Ingi-
mundur Erlendsson.
Fulltrúar ríkisstjórnarinnar til við-
ræðna um húsnæðismálin voru Jó-
hannes Norðdal bankastjóri, og al-
þingismennirnir Eggert G. Þorsteins-
son og Þorvaldur Garðar Kristjánsson.
Tóku allar þessar nefndir þegar til
starfa fyrstu dagana í maí.
Þá varð einnig að samkomulagi, aS
skipuð skyldi sameiginleg nefnd til
viðræðu við ríkisstjórnina. Skipuðu
hana þessir menn: Hannibal Valdi-