Vinnan - 01.07.1964, Síða 10
lyktunin lokaafgneiðs^u, og var þá
þegar ákveðið að senda hana forsætis-
ráðherra með tilmælum um, að þegar
yrðu teknar upp viðræður milli ríkis-
stjórnarinnar og verkalýðssamtakanna
um tilraun til stöðvunar verðbólguþró-
unar, og um réttlátar og óhjákvæmi-
legar launa- og kjarabætur. í þess-
um viðræðum skyldi höfuðáherzla lögð
á að verðtrygg-ja kaupið, varðveita og
auka kaupmátt launa, svo að unnt
yrði að gera varanlegri kjarasamninga
og tryggja vinnufrið.
í öðru lagi var lögð áherzla á
styttingu vinnudags án skerðingar
heildartekna. Og enn skyldi lögð á-
herzla á ýmis réttinda- og hagsmuna-
mál alþýðufóiks, svo sem vinnuvernd
og aukin orlofsréttindi.
Að lokum var lögð þung áherzla á,
að gert yrði myndarlegt átak í hús-
næðismálum almennings.
Um lausn kjaramála á þessum
grundvelli bauð miðstjórn Al-
þýðusambandsins samstarf við ríkis-
stjórnina, og svaraði ríkisstjórnin
þessu tilboði um hæl játandi.
Síðan hafa viðræður staðið að kalla
má sleitulaust, unz þeim lauk s.l. nótt.
Þessar viðræður hafa farið vel og
drengilega fram. Aðilar hafa gengið
hik- og krókalaust að þeim málsat-
riðum, sem þýðingu höfðu. Hvorugur
aðilinn gerði tilraun tii að dyljast
fyrir hinum. Umræðurnar einkennd-
ust af hreinskilni, og það greiddi fyr-
ir árangri.
Sett verða lög um hækkun kaups
samkvæmt vísitölu, og bann við dýr-
tíðarbótum á kaup afnumið.
Verkafólk, sem unnið hefur 6 mán-
uði hjá sama atvinnurekanda, fær
greidda samningsbundna frídaga —
um 12 á ári.
Fyrsta skref er stigið til styttingar
vinnudagsins, án skerðingar heildar-
tekna og loforð gefið um áframhald-
andi styttingu vinnutíma í áföngum.
Nær styttingin þá til fleiri og fleiri
starfshópa, unz hún verður almenn.
Lögbundið orlof verkafólks verður
lengt úr 18 dögum í 21 virkan dag,
og orlofsféð hækkað úr 6% í 7%.
f húsnæðismálunum verða þessar
ráðstafanir gerðar:
Tvö hundruð og fimmtíu milljónir
verða lagðar fram til að fullnægja
þeim umsóknum, sem nú bíða óaf-
greiddar hjá Húsnæðismálastofnun
ríkisins. Fjáröflun til húsnæðismála-
kerfisins verður meira en tvöfölduð.
Lán út á hverja íbúð hækkar úr 150
þúsundum í 280 þúsund. Nokkur við-
bótarlán verður hægt að veita meðlim-
----------- linncui----------------
um verkalýðsfélaganna. Lánstíminn
lengist úr 15 og 20 árum í 25 ár. Fyrsta
árið verður afborganalaust. Vextir
4% með vísitölukjörum. Þessar ráð-
stafanir eru mikilsverðar og ná, eins
og sum önnur atriði samkomulagsins,
langt út fyrir raðir verkalýðssamtak-
anna. En mesta þýðingu hafa þessar
aðgerðir tvímælalaust fyrir unga fólk-
ið.
Þetta er það helzta, sem felst í hinni
sameiginlegu yfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar, Alþýðusambandsins og Vinnu-
veitendasambandsins, sem undirrit-
uð var í nótt. — Mæla þessir aðilar með
því, að samningar milli verka-
lýðsfélaga og atvinnurekenda verði nú
gerðir á þessum grundvelli. Og er
viðurkennt, að heimilt sé að breyta
samningsákvæðum til samræmis og
lagfæringar á ýmsan hátt. — Hefur í
dag verið lokið víðtækum samningi
á þessum grundvelli við verkalýðsfé-
lögin á Norður- og Austurlandi, en
ógerðir eru samningar sunnan og
vestanlands. Verður að treysta á, að
atvinnurekendur sýni víðsýni í þeirri
samningagjörð innan hins markaða
ramma.
Margir hafa sjálfsagt orðið fyrir von-
brigðum yfir því, að laun hinna lægst
launuðu skuli ekki hækka. En þá verð-
ur kauphækkunum verkafólks a. m. k.
ekki um kennt, ef dýrtíð skyldi nú enn
vaxa og verðbólga magnast. — Víst
fengum við, í viðræðunefnd Alþýðu-
sambandsins, minna fram, en við vild-
um. En þannig er það í öllum samn-
ingum. Og lengra komumst við ekki.
Að mínu áliti var þetta bezta leiðin,
sem um var að ræða. Ég mæli heils-
hugar með þessu samkomulagi, og það
gera meðnefndarmenn mínir allir. Það
gildir næstu 12 mánuði. Ég vona og
óska, að það gefi góða raun. — Að
þeim tíma liðnum verðum við reynsl-
unni ríkari. Þá er það að lokum ósk
mín og von, að samningar þeir, sem nú
hefjast, gangi greiðlega og lykti far-
sællega, svo að friður góður ríki í landi,
þegar hin mikla hátíð af tilefni 20
ára lýðveldis á Islandi, gengur í garð.
Góða nótt.“
Verður verkfalls ‘Áttur
lögfestur í Júgóslavíu?
Samkvæmt áreiðanlegum uþþlýs-
ingum stendur nú til, að verkfalls-
réttur verði aftur lögfestur í Júgóslav-
Árás á hagsmuni
sjómanna
Sá einstæði atburður, er Hákon Guð-
mundsson, oddamaður í yfirnefnd
Verðiagsráðs sjávarafurða, úrskurðaði
gegn afstöðu allra annarra yfirnefnd-
armanna, að fiskverð skyldi óbreytt
standa, vakti að vonum mikla og al-
menna ólgu meðal útgerðarmanna og
sjómanna.
Bárust mótmæli víða að bæði frá
útgerðarmönnum og sjómönnum, og
miðstjórn Alþýðusambandsins hélt
samdægurs fund um málið. Voru þar
allir á einu máli um, að þetta seinasta
gerðardómshneyksli væri ein alvarleg-
asta árásin, sem sjómannastéttin hefði
orðið fyrir. — Gerði miðstjórnin svo-
hljóðandi ályktun um málið:
„Miðstjóm Alþýðusambands íslands
mótmælir eindregið úrskurði odda-
manns yfirnefndar Verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins um óbreytt fiskverð.
Telur miðstjórnin, að úrskurður
þessi sé hvorki byggður á viðhlítandi
rannsókn á söluverði og sannanlegum
vinnslukostnaði fiskframleiðslunnar,
né á neinu sanngjörnu mati á fram-
lagi sjómanna til verðmætis aflans.
Það er raunar viðurkennt í forsend-
um oddamanns, að engin fullnægj-
andi rannsókn hefur farið fram á rétt-
um sölu- og vinnslukostnaði.
Að þessu sinni hefur verið brotin
niður sú venja, sem Verðlagsráð hef-
ur byggt starf sitt á, að taka jafnt
tillit til áætlaðs kostnaðar við vinnsl-
una og við fiskveiðarnar, og brúa síð-
an bilið að jöfnu, ef söluverð hefur
ekki nægt til að greiða allan þannig
áætiaðan kostnað.
Lagaskýringu oddamanns í máli
þessu teljum vér ekki hafa við rök
að styðjast. Lögin gera ráð fyrir, að
oddamaður ráði úrslitum í verðlags-
málum sjávarútvegsins með nefndar-
hluta á annanhvorn veginn á bak við
sig. En hér varð hann viðskila við báða
nefndarhluta, og er þannig þriðji og
minnsti minnihluti yfirnefndar. Verð-
ur ekki á það fallizt, að ákvörðun í
þessum grundvallar kjaramálum sjó-
manna og útgerðar verði gefnar í vald
einum manni til ákvörðunar, e. t. v.
lítt eða ekki kunnugum sjávarútvegi.
Telur miðstjórnin, að það geti orð-
ið sjávarútveginum til mikils ógagns,