Vinnan - 01.07.1964, Qupperneq 13
u
inncin
11
Stjórn og framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags íslands. — Formaður Stjórn-
unarfélagsins, Jakom Gíslason, er á miðri myndinni.
hvetur til þess, að hiiðstæðir samn-
ingar séu gerðir hér á landi til
eflingar heilbrigðu samstarfi milli
vinnuveitenda og launþega og sam-
taka þessara aðila, og til að greiða
götuna fyrir hagræðingaraðgerðum
í einstökum fyrirtækjum.“
Með afgreiðslu þessarar, ályktunar
var starfi ráðstefnunnar raunar lok-
ið.
Undir kvöldverðarborðum 9. júní
fluttu Pétur Sigurðsson, Hannibal
Valdimarsson, Egil Ahlsen og Jon
Andrésen stuttar ræður, en síðan sleit
Jakob Gíslason ráðstefnunni með
ræðu.
Síðan var haldið til Reykjavíkur og
þangað komið nokkru eftir miðnætti
aðfaranótt 10. júní.
Var það sammæli þeirra, er ráð-
stefnuna sátu, að hún hefði í senn
verið athafnasöm og skemmtileg og
tekið viðfangsefnið „praktískum“ tök-
um, sem vektu vonir um, að hún hefði
raunhæf áhrif hagræðingarmálum
hér á landi til framdráttar.
Þann 10. júní var blaðamannafund-
ur. Þá um kvöldið flutti Egil Ahlsen
erindi um hagræðingarmál á fundi, er
Fulitrúaráð verkalýðsfélaganna í
Reykjavík boðaði til, og var þar beint
til fyrirlesarans fjölda fyrirspurna, er
hann svaraði greiðlega. Daginn eftir
fór hann í ferðalag um Þingvöll, Sogs-
fossa og Hveragerði. Skoðaði hann m.
a. orlofsheimilahverfið undir Reykja-
fjalli og virtist vera allhrifinn af þeirri
framkvæmd. — Morguninn eftir fór
Egil Ahlsen fiugleiðis til Noregs.
Alþýðusamband íslands er mjög
þakklátt norska Alþýðusambandinu
fyrir að verða við þeim tilmælum okk-
ar, að heimila Agli Ahlsen að verða
aðalfyrirlesari á þessari ráðstefnu,
sem fjallaði um þau mál, er miklu
varðar, að íslenzk verkalýðshreyfing
kunni glögg skil á. Egil Ahlsen er
mjög vel menntaður maður, og hefur
auk þess öðlazt mikla reynslu og al-
hiiða þekkingu á hagræðingarmálum -
ekki sízt á þsirri hlið þeirra, er að
verkafólki og verkalýðssamtökum
snýr.
Hann er þá líka mjög vel máli far-
inn, lifandi og fjörmikill fyrirlesari,
sem tekst vel að ná tökum á áheyr-
endum og gera þeim flókin efni auð-
skilin.
Að komu Egils Ahlsen var því mik-
ill ávinningur, og þökkum við honum
hjartanlega hingaðkomuna og á-
nægjulega persónulega viðkynningu.
— Alþýðusambandi Noregs þökkum við
samstarfið bæði nú og áður.
-IIIIICII Illllllll IIIIIIIIIII Illlllllllllll
Skatturinn til sænska
Alþýöusambandsins er
í 223 krónur á ári
1 — Skatturinn til Alþýðusam- i
| bands íslands er aðeins 42 krón- i
í ur af körlum og 28 krónur af i
| konum. 1
i Þann 29. nóvember síðastliðinn \
i ákvað framkvæmdanefnd |
I sænska Alþýðusambandsins, að i
i hækka skattinn til sambandsins i
i um 25 aura sænska á mánuði, en i
i það jafngildir íslenkum kr. 2.07. i
i Er þá skatturinn 2.25 sænskar |
i á mánuði, eða ísl. 18,63. Það |
= er sama sem 223.56 kr. íslenzkar i
i á ári. i
i Hér er skatturinn til Alþýðu- i
i sambandsins 42 krónur á ári af f
i körlum, en 28 krónur af kon- i
i um. Enda er skatturinn hér svo i
i lágur, að mikið vantar á, að sam- f
i bandið hafi forsvaranlegan i
f starfsgrundvöll. — Of mikil i
i íhaldssemi í þessum efnum hefn- f
i ir sín, og þarf næsta Alþýðu- i
f sambandsþing hér nauðsynlega i
i úr að bæta. i
VEFNA-Ð4RVORUR FATNA-ÐUR
flad in
★
HEKLU BUXUR
Á DRENGI NR. 4—16 • Á KARLA NR. 48—56
!i
/ / 9
SKOLAVORÐUSTIG 12
: I ■ .....11111111111111 111111