Vinnan - 01.07.1964, Page 24
22 ________________________________
um skurðum og farið að jafna landið
og búa það til ræktunar.
Verður þess þá ekki langt að bíða —
sennilega í ágústmánuði — að þess-
um áfanga verksins ljúki og orlofs-
heimilið taki til starfa.
Eigi getur það þó orðið að öllu í því
sniði, sem fyrirhugað er, fyrr en byggð
hefur verið sú aðalbygging, sem verða
skal þjónustumiðstöð orlofsheimila-
hverfisins í heild.
Verkaiýðsleiðtogi 50 ára
Framhald af 1. síðu.
ið auðvelt. Ég vil segja, að það gangi
kraftaverki næst, hvernig þér hefur
tekizt að sameina sundurleita krafta
innan félags, og þó hefur þú og Hlíf
oft orðið að klífa þröng einstigi og
sækja fast á brattann í kaupgjalds-
og kjarabaráttunni, því að atvinnu-
rekendavald Hafnarfjarðar hefur svo
sannarlega oft verið erfitt til viðun-
andi samningagerða.
En einmitt við þessa erfiðleika útá-
við og innávið hafa hæfileikar þín-
ir sem forustumanns verkalýðsfélags
komið skýrt í Ijós. Það er áreiðan-
lega ekki öllum gefið að sameina afl
Hlífar eins og þér hefur tekizt. Ég
tel þig oft hafa svnt, að þú sért sann-
ur iýðræðissinni.
Þá má ekki heldur fram hjá því
ganga, að þú hefur einnig nokkuð á
annan áratug verið einn af áhrifa-
mönnum íþróttahreyfingarinnar í
landinu — verið framkvæmdastjóri
Iþróttasambands íslands.
Hafa íþróttamenn á orði, að þetta
starf hafir þú rækt af stakri trú-
mennsku, óbrigðulum ötulleik og mik-
illli lipurð í öllu samstarfi, enda alltaf
endurkjörinn einróma til starfans, og
talar það eitt út af fyrir sig skýru
máii.
Hermanni Guðmundssyni er vissu-
lega margt til lista lagt. Segja má, að
allt leiki í höndum hans. Fagurt hand-
bragð er á öllu, sem hann gerir. Rit-
höndin er sérkennileg og persónu-
leg. Auglýsingar Hlífar nálgast oft að
vera listaverk. Teikningar þínar gleðja
oft augað. Og listiiegt fannst mér
handbragðið á togaralíkönunum sem
þú gerðir hérna á nýsköpunarárunum,
þegar þau glæsilegu ákip voru að
koma til landsins.
Eða koma á heimili Hermanns Guð-
mundssonar og konu hans, Guðrúnar
Erlendsdóttur, að Langeyrarvegi 5.
Húsið það er ekki stórt að fiatarmáli,
ekki háreist, og ekki lætur það mikið
yfir sér séð frá götunni.
----------- Uinnan -----------------
En þegar inn er komið, blandast
ongum hugur um, að húsráðendur
eru ríkir af smekkvísi og hafa þrosk-
að fegurðarskyn. Þar má sjá, hvað
hægt er að gera til híbýlaprýði af
litum efnum. Hver smáhutur ber
smekkvísi vitni. Hver hutur er á rétt-
um stað, og þar gætir hreinlætis í
orðsins fyilstu merkingu.
Og það, sem bezt er af öllu: Hér
ríkir sönn hjartahlýja og lífsham-
ingja. Inn í þá mynd koma 3 mann-
vænleg og elskuleg börn þessara
sæmdarhjóna.
Þegar velja skal mann til starfa fyr-
ir verkalýðsfélag, ber auðvitað fyrst
og fremst að hafa í huga, að maður-
inn sé hæfur til starfans. Það skiptir
miklu, að hver sá, sem mikilvægu
hlutverki gegnir, sé starfi sínu vaxinn.
Þá skal maður metinn eftir viija-
festu, dugnaði og sérstaklega trú-
mennsku í starfi, því að svo bezt fær
íslenzkur verkalýður sigurpálmann í
hendur, að slíkir mannkostir séu virt-
ir.
Því lýk ég þessum orðum til þín,
Hermann Guðmundsson, með þeirri
ósk, að svo lengi sem starfskraftar
þínir leyfa, fái hafnfirzkir verkamenn
að njóta stjórnsemi þinnar og hæfi-
leika á komandi árum sem hingað til.
Með orðinu verkalýð á ég við verka-
fólk og sjómenn, því að sjómenn og
verkamenn eru bræður, — allir í sama
bát — og eiga því ávallt að vera bjarg-
vættur hvor annars, þegar rétt er á
málin litið. Og þú ert góður mál-
svari hvorrartveggja, hvar sem þú ferð
og kemur, og hvar sem þú talar þeirra
máli.
Hermann Guðmundsson; Vinarbréfi
og afmæliskveðju er lokið. Þú verður
að fyrirgefa, að svona skrifa ég og
svona tala ég. Hjá því verður ekki
komizt.
Með Hlífarkveðju, kæri vinur.
Hafnarfirði, 1. júlí 1964
Markús B. Þorgeirsson
Hóplíftryggingar
Framhald af 2. síðu.
aðeins ákveðinn einstaklingur, er líf-
tryggður.
Stærð hópsins getur verið mjög mis-
munandi, allt frá 20 manns og upp í
tugi þúsunda. Þannig eru t. d. um 30
þúsund málmiðnaðarmenn tryggðir í
einum hóp hjá sænsku Samvinnu-
tryggingunum.
Við dauðsfall borgast ákveðin upp-
hæð, sem samið er um til eins árs.
Hóplíftryggingin er því hrein áhættu-
trygging og er því alltaf hægt að halda
tryggingarupphæðinni í góðu samræmi
við verðgildi peninganna. Fyrir okkur
er þetta þýðingarmikið atriði, vegna
þeirrar upplausnar, sem ríkir í efna-
hagsmálum þjóðarinnar.
Iðgjaldið vegna hóplíftryggingar er
greitt fyrirfram fyrir eitt ár í einu,
og sér hópurinn um innheimtu þess
og afhendir það tryggingafélaginu því
að kostnaðarlausu, og miðar þetta að
því að lækka iðgjaldið.
Aðeins eitt tryggingaskírteini er gef-
ið út fyrir allan hópinn, og sparast þar
mikill kostnaður í samanburði við aðr-
ar tryggingar. Aðal kostur hóplíftrygg-
inganna umfram aðrar áhættutrygg-
ingar er líka sá, að þær eru ódýrari.
Ódýrastar allra líftrygginga.
Ekki er hægt að líta á hóplíftrygg-
ingar sem fullkomna lausn á trygg-
ingaþörfinni. Tryggingarupphæðin er
sú sama fyrir alla í hópnum. Hún get-
ur því varla farið langt umfram lág-
marksþarfir. Það verfður því miklu
frekar að líta á hóplíftryggingarnar
sem grunntryggingu, er allir hafa
þörf fyrir. Hver og einn verður því
að bæta við öðrum tryggingum, eftir
því sem þarfir og aðstæður gefa til-
efni til.
Útbreiðsla líftrygginga er furðulega
lítil hér á landi og ekki í neinu sam-
ræmi við það, sem gerist í öðrum
menningarlöndum. Af þessu leiðir
stórkostlegt öryggisleysi fyrir einstakl-
ingana, og í heild er það beinlínis
þjóðfélagslegt vandamál. Verðbólg-
an hefur gert mönnum íllfært eða
ókleift að líftryggja sig. Ekki minnkar
heldur tryggingaþörfin á verðbólgu-
tímum og getur hver og einn skygnzt
í eigin barm.
Hóplíftryggingar geta verið verulegt
atriði til lausnar tryggingavandamáls-
ins. Háþróaðar þjóðir, eins og Banda-
ríkjamenn og Svíar, hafa fundið mik-
ilvægi þessara trygginga. Við þurfum
ekki síður á þeim að halda.
Kristján Sturlaugsson
Verkalýðsskólar
Brezka sveitastjórnarsambandið hef-
ur ákveðið að stofna skóla í sambandi
við 75 ára afmæli sitt. Þessum verka-
lýðsskóla hefur verið valinn staður
við „Dillon Hill“ rétt fyrir sunnan
London.
Hann var vígður 25. maí af fram-
kvæmdastjóra sambandsins William-
son lávarði.
Talið er, að skóli þessi sé í aðal-
atriðum sniðinn eftir Runöskólanum í
Svíþjóð.