Vinnan - 01.05.1984, Blaðsíða 6
Traust samstaða um
verkefnin framundan
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, hélt aðalræðu dagsins í Egilsbúð
á Neskaupstað. Hann hóf ræðu sína á að minna á að þrátt fyrir allt
teldumst við enn til efnaðri þjóða. Okkur hætti til að taka velmegun
og velferð þjóðfélagsins sem sjálfsagðan hlut og gleyma því að mikill
meirihluti jarðarbúa býr enn við skort og ófrelsi. Ásmundur lýsti
síðan ástandinu hér síðustu árin og varnarbaráttu verkalýðshreyf-
ingarinnar, aðdraganda samninganna og samningsgerðinni. Um frá-
vik frá heildarsamkomulaginu sagði Ásmundur:
„Einstök félög innan ASÍ felldu hins
vegar samningana og gengu til sérvið-
ræðna við atvinnurekendur. Dagsbrún
í Reykjavík var þar stærst. Þegar félög
velja að fara aðra leið en gert er í heild-
arsamningi er ástæðan trúlega yfirleitt
tvíþætt. Annars vegar ýmiskonar sér-
staða þess hóps sem í hlut á og hins
vegar önnur baráttustaða en almennt
er. Hvort tveggja þetta mun hafa átt við
að þessu sinni. Eg sé ekki að um efnis-
ágreining sé að ræða og fæ því ekki séð
að atburðir síðustu mánaða muni leiða
til hnökra í samstarfinu í framtíðinni.
Eg er þess fullviss að innan verkalýðs-
hreyfingarinnar er traust samstaða um
þau verkefni sem framundan eru.
í opna skjöldu
Einn þáttur í gagnrýni á samningana í
vetur kom mér illilega í opna skjöldu.
Það er sú eindregna fordæming sem úr
óvæntum áttum mætti þeim félagslegu
úrbótum sem gerðar voru í tengslum
við samningana. Hið ótrúlegasta fólk
lýsti því yfir að þessi mál hefði átt að
leysa með aukinni kauphækkun. Ég tel
það óraunhæft tal að ætla að leysa
vandamál einstæðra foreldra, barn-
margra fjölskyldna með lágar tekjur
eða öryrkja og aldraðra með almennri
kauphækkun. Það er naumast rökrétt
að reikna með því að einstæðum for-
eldrum sé greitt hærra kaup en giftu
fólki eða barnmörgu fólki hærra en
barnlausu. Ég tel þá fordæmingu sem
hér kom upp fráleita og hættulega fé-
lagslega afsiðun, fyrirlitningu á þeim
sem við erfiðleika eiga að stríða. Þeir
sem sterkar standa verða að veita þeim
veikari stuðning. Verkalýðsbaráttan er
ekki bara barátta um kaup og kjör.
Samkennd okkar með þeim sem erfið-
ast eiga gerir tilkall til þess að við
gleymum þeim ekki. Okkur er skylt að
sýna samhjálp í verki en láta ekki orðin
standa eftir sem skrautmælgi á tylli-
dögum."
Hin einfalda þjóðfélagssýn
Ásmundur ræddi um hina hörmulegu
óreiðu sem hefur ríkt í íslensku efna-
hagslífi og sagði m. a.:
„Lausnarorðið er að gera þá ríku
ríkari og þá fátæku fátækari. Lágtekju-
fólk má ekki fá krónurnar, því það er
eins víst að það eyði þeim í mat. Þeir
ríku eru taldir líklegri til þess að leggja
sitt fé í uppbyggingu atvinnureksturs.
Þessi einfalda þjóðfélagssýn er ekki lík-
leg til þess að skila árangri til frambúð-
ar. Kjaraskerðing er ekki líkleg til þess
að beina fjárfestingum á réttar brautir
og kjaraskerðing er ekki Iíkleg til þess
að bæta rekstrarfyrirkomulag í íslensk-
um fyrirtækjum. Ef árangur á að nást
þarf grundvallarviðhorfið að breytast.“
Uppbygging í stað
kjaraskerðingar
Ásmundur minnti á samþykkt ASÍ og
BSRB um efnahagsmál, sem samin var
og birt áður en núverandi ríkisstjórn
var mynduð, en ríkisstjórnin hafði sam-
ráðstilboðið að engu.
„Atvinnuástand er nú mjög í hættu,
bæði vegna þess mikla samdráttar fisk-
afla, sem við stöndum frammi fyrir og
eins vegna þess tekjusamdráttar sem
stjórnvöld hafa leitt yfir almenning. Ef
ekki verður gripið til raunhæfra að-
gerða getur almennur atvinnumissir
blasað við.
Reynsla nágrannalandanna sýnir
okkur ótvírætt að það er auðveldara að
detta í atvinnuleysisgryfjuna en ná sér
upp úr henni aftur. í flestum löndum í
kringum okkur er um 10. hver maður
atvinnulaus. Það samsvarar því að tíu
til tólf þúsund manns væru atvinnu-
lausir á Islandi. Það er meira en tvö-
faldur fjöldi allra vinnandi manna í
Austurlandskjördæmi öllu. Hjá því
ástandi verðum við að komast, og til
6 VINNAN