Vinnan


Vinnan - 01.05.1984, Qupperneq 9

Vinnan - 01.05.1984, Qupperneq 9
Ríkisstjórnin hefur farið með ófriði Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar og aðalræðu- maður 1. maí í Reykjavík hóf ræðu sína á þessa leið: „Pað er einhver spenna og urgur að formaður Dagsbrúnar skuli fá að tala hér í dag og um það hafa verið myndaðar alls konar tröllasögur — þær hirði ég ekki um að ræða“ Guðmundur fjallaði síðan um þá staðreynd að „í öllum stærstu sigrum íslenskra erfiðisvinnumanna hefur Dagsbrún verið í fararbroddi.“ Friður? Ófriður? „Ég hef verið spurður að því undan- farna daga hvort Dagsbrún ætli að rjúfa friðinn 1. september. Frið um hvað? Dagsbrún vill rjúfa friðinn um að það sé þolað bótalítið að kaup verkafólks lækki um rösk 25%. Við viljum engan frið um það að kaup fyrir unna klukku- stund sé hér lægst á Vesturlöndum. Dagsbrún vill engan frið um að mánað- arkaup verkamanna sé 12-13 þúsund krónur dagvinna, og ég tala nú ekki um þegar búið er að skerða álag eftirvinnu þannig að það nái aðeins um 20% álagi á dagvinnu. Ríkisstjórnin biður um frið - sjálf hefur hún farið með ófriði. Hún setti lög sem bönnuðu samninga ákveðinn mánaðarfjölda og gaf út lög sem bönn- uðu allar vísitölugreiðslur á kaup. ís- lensk fyrirtæki hafa aldrei grætt jafn- mikið samkvæmt eigin reikningum, það voru nokkur fyrirtæki í Reykjavík sem sýna á reikningum sínum fyrir 1983 yfir 100 miljónir króna í hreinan ágóða. Ríkisstjórnin hefur látið setja lög, þar sem skattfríðindi fyrirtækja eru aukin- og auknar afskriftir heimilaðar allt að helming. - En skattar á launafólki eru hækkaðir - vitanlega vilja fyrirtækin frið um þessi skattfríðindi sín - um þennan gróða sinn.“ Guðmundur spurði síðan hvernig því stæði að vöruverð lækkaði ekki í kjölfar minni launagreiðslna og skatt- fríðinda. Guðmundur ítrekaði einnig að „við fyrsta tækifæri munum við leggja til atlögu gegn þeim óviðunandi kjörum er almennt verkafólk býr nú við. Og öll 1. maí nefndin í Reykjavík svarar í ávarpi dagsins þannig: Fyrsta áfanga í baráttu verkalýðshreyfingar- innar fyrir endurheimt kaupmáttar er lokið. Næsti áfangi er 1. september. Þetta eru skýr svör.“ Vaxandi stéttaskipting Guðmundur fjallaði því næst um aukið launamisrétti og vaxandi stétta- skiptingu í landinu og nefndi, að karl- menn verði að berjast með oddi og egg við hlið kvenna, sem notaðar eru sem ódýrt vinnuafl. „Ég held að menn hafi gott af að hafa í huga atburð sem skeði í átökum Dagsbrúnar í vetur. Dags- brúnarmenn í Mjólkursamsölunni höfðu náð fram sínum kröfum, en þeir neituðu öllum samningum fyrr en konur, vinnufélagar þeirra, höfðu fengið sama kaup á öllum sviðum. Og það tókst. Þetta er að starfa í anda jafn- réttis og bræðralags." Guðmundur ræddi síðan stöðu verkalýðsfélaganna og framlag hins einstaka félagsmanna, sem væri undir- staðan að lifandi starfi og skipti sköpum um styrk verkalýðshreyfingar- innar og stöðu. Guðmundur fjallaði næst um baráttu verkafólks í öðrum heimshlutum og nauðsyn þess að berjast við hlið ann- arra gegn kjarnorkuvígbúnaði. „Hlut- laust og friðlýst ísland, sem beitir sér fyrir friði og afvopnun er það ísland sem nyti trausts og virðingar í heimin- um.“ Lokaorð Guðmundar voru: „Heit- um því á þessum degi 1. maí að gera hann að bjarma nýs dags fyrir bættum kjörum alþýðufólks í landinu — við skulum fylkja okkur saman til þessarar baráttu undir merki rísandi sólar.“ VINNAN 9

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.