Vinnan - 01.05.1984, Side 10

Vinnan - 01.05.1984, Side 10
Þurfum að sækja rétt okkar á haustdögum Tryggvi Þór Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri Menningar- og fræðslusambands alþýðu, hélt aðal- ræðuna 1. maí á Akureyri. Hann minntist í fyrstu á stofnun Bárunnar fyrir 90 árum, „en upp af þessum skútukörlum Bárunnar hafa sprott- ið mestu fjöldasamtök á íslandi, Al- þýðusamband íslands,“ sagði Tryggvi, og hann rifjar upp frásögn blaðs af stofnun eins fyrsta verka- lýðsfélagsins: „Hyggilegast að fara hóglega“ „Sjómenn, sem reka atvinnu á þilskip- um og eiga heima í Reykjavík, hafa að sögn gert samtök sín á milli til að krefj- ast hærra kaupgjalds og annarra vildari kosta af hálfu útgerðarmanna en þeir hafa áður haft. - Það mun þó vera hyggilegast fyrir þá að fara hóglega, þar sem það er kunnugt, að þilskipaútgerð- in hefur naumast eða alls ekki svarað kostnaði sum síðustu árin.“ Tryggvi reifar síðan að þessi sami ólundar tónn sé enn við lýði, og enn fái verkafólk sömu svörin, þótt í breyttri mynd sé. Tryggvi hvatti til órofa samstöðu innan hreyfingarinnar, því „tímabund- inn ágreiningur má ekki ógna tilvist samtakanna“. Lokaorð Tryggva voru þessi: Launin þurfa að hækka „Þad hefur e. t. v. tekist að stöðva kjaraskerðinguna. En það er að sjálf- sögðu ekki nóg. Launin þurfa að hækka. Vinnutími margra er of langur. Vinnuaðstaða og aðbúnaður allur á vinnustöðum þarf að vera annar og betri en hann víðast er. Launakerfi, þar sem fólki er ætlað að leggja allt of hart að sér og keppa við vinnufélaga sína, er allt of útbreitt og stór þáttur á íslensk- um vinnustöðum. Þessu er nauðsynlegt að breyta. Menning — listir Við þurfum líka að halda á lofti merki menningar og lista í verkalýðshreyf- ingunni. Það er hlutverk verkalýðsfé- laganna að styðja og standa fyrir starfi af því tagi. Menningarlega reisn hreyf- ingarinnar og félagslegt hlutverk eigum við að rækta og efla. Verkalýðsfélögin standa frammi fyrir því nú, sem áður, að bæta hag félagsmanna sinna. Til þess þurfa þau í fyrsta lagi að meta þá stöðu, sem verka- lýðssamtökin eru í, og leggja á ráðin í samræmi við það. Á mánudaginn kem- ur, 7. maí, er boðað til fundar til þess að ræða stöðuna í kjaramálunum og marka stefnu fyrir næstu mánuði. Ljóst er að verkafólk á íslandi þarf að vera undir það búið að sækja rétt sinn á haustdögum. Þá stöndum við saman og tryggjum árangur baráttunnar. Enginn má troða annan undir Við viðurkennum ekki að þeir sterk- ustu og fljótustu hafi forgang. Við viðurkennum ekki að einum sé hrint til hliðar, svo annar komist áfram. Við viðurkennum ekki rétt eins til að troða annan undir, svo hann hækki sjálfur. Sjómennirnir þrjátíu, sem stofnuðu Báruna fyrir 90 árum, geta orðið okkur leiðarljós. Þeir kusu að standa saman. Það kjósum við einnig nú. Lifi verkalýðssamtökin - lifi 1. maí.“ íf m FÉLAG ISLENZKRA HLJÓMLISTARMANNA útvegar yður hljóðfœraleikara og hljómsveitir við hverskonar tœkifœri Æ Vinsamlegast hringið í 20255 milli kl.14-17 10 VINNAN

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.