Vinnan - 01.05.1984, Page 12

Vinnan - 01.05.1984, Page 12
Tvö hundruð manns ræða skipulagsmál Vel heppnuð ráðstefna um skipulagsmál vildi ekki stökkbreytingar, en lagði ríka áherslu á breytta starfshætti og stóraukna samvinnu. Dagana 5. til 6. maí efndi ASÍ til stórfundar í Reykjavík tii að ræða skipulagsmál hreyfingar- innar. Á þessum fundi mættu um 200 manns sem starfa innan fisk- vinnslu, iðnaðar og byggingar- iðnaðar. Hópurinn kom fyrst saman í Gamla bíói, þar sem Ás- mundur Stefánsson, forseti ASÍ, ræddi um verkalýðssamtökin í nútíma þjóðfélagi, Þórir Daní- elsson, formaður skipulags- nefndar ASÍ, ræddi spurning- una: Er breytingar þörf? og Hannes Þ. Sigurðsson, sem sæti á í skipulagsnefndinni, ræddi um skipulag verkalýðssamtakanna, hugsanlega kosti. Þegar ráðstefnugestir voru komnir á sína fundarstaði voru haldin stutt framsöguerindi inn- an hvers hóps og eftir það hófust almennar umræður. Að því Ioknu var skipt í starfshópa, sem skiluðu síðan áhti í fundarlok á sunnudag. Næsta hefti Vinnunnar mun fjalla um niðurstöðu hópanna, en að þessu sinni látum við nægja, tímans vegna og rúmsins, að spjalla við þá Helga Guðmunds- son, starfsmann skipulags- nefndarinnar, og Þóri Daníels- son, formann nefndarinnar, um helstu niðurstöður sem fram komu á ráðstefnunni, sem þótti í alla staði vel heppnuð og undir- búin. Myndirnar eru teknar við upphaf ráðstefnunnar um skipulagsmál í Gamla bíói. Ásmundur Stefánsson hélt yfirgripsmikla ræðu um skipulagsmálin. Karl Steinar Guðnason var fundarstjóri og Snorri Konráðsson, ritari. 12 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.