Vinnan - 01.05.1984, Blaðsíða 17

Vinnan - 01.05.1984, Blaðsíða 17
Póllandi. Þótt ASÍ hafi metið stöðuna eins og hún gerði, og með nokkrum rétti, þá felldu iðnaðarmenn á mínum vinnustað samningana, allir nema raf- virkjar. Þeir voru líka felldir í Aburð- arverksmiðjunni. Svavar: Ég held að það sé rétt hjá Sigmundi að margir misskildu þessa undirskriftasöfnun. Þeir tóku hana sem mótmæli gegn ríkisstjórninni, en ekki eins og til var ætlast sem könnun innan verkalýðshreyfingarinnar. Þessi skoð- anakönnun stóð mjög skamman tíma, þannig að þátttakan var í rauninni mjög góð miðað við þann stutta tíma sem hún stóð. Oli: Þessi undirskriftasöfnun sannar það sem ég tók fram áðan að hún sýnir máttleysi í áróðri ASÍ. Þetta stóð allt of stuttan tíma og ekki var hægt að sinna verkefninu eins og þörf var á, og það sýnir skipulagsleysi innan hreyfingar- innar. Launaramminn var skipulagður af atvinnurekendum og samið undir járnhæl þeirra, þótt látið væri í veðri vaka að samningar ættu að vera frjálsir. Ef atvinnurekendur eða ríkisvaid benda á leiðir út úr vanda þjóðfélags- ins, eins og mörg dæmi eru um í fjöl- miðlum, er ekki nóg að verkalýðs- hreyfingin gagnrýni þessar ábendingar heidur þarf hún líka að benda á aðrar leiðir. Hinn almenni maður er hættur að taka mark á sífelldri gagnrýni ef ekki er um ieið bent á aðrar og betri leiðir sem verkalýðshreyfingin vill stuðla að. ÓIi: Ef láglaiinabœlumar verða fram- kvæmdar þannig að tekið sé úr einum vasanum'og látið í hinn, þá þýðir það kjaraskerðingu hjá sumum en ekki launauppbót. Hvað gerist 1. september? Sigurjón: Hvað gerist svo 1. septem- ber? Ef verkalýðshreyfingin heldur rétt á spilunum næstu mánuði verður þá ekki mun meiri skilningur og samstaða meðal manna þegar samningsleiðir opnast á ný 1. september? Kjartan: Það verður sjálfsagt meiri skilningur á samstöðu 1. september, en ég er hræddur um að með þeirri stefnu sem ríkisstjórnin hefur í efnahagsmál- um og fiskveiðimálum að aðstæður fólks verði lítið betri en núna. Ég hef persónulega enga trú á því að ástandið verði orðið það gott í september að fólk fáist til átaka, en ég vona samt að svo verði. Ég ætla ekki að fara að mæla ríkisstjórninni bót, en ég held að fólk langi til að sjá, þrátt fyrir alla kjara- skerðinguna, hvað kemur út úr dæmi ríkisstjórnarinnar. Fólk var orðið þreytt á verðbólgunni, það eru alveg hreinar línur. Jón: Ég tel persónulega að 1. sept- ember verði ekki vendipunkturinn í þessum málum. Þá stendur fyrir dyrum Alþýðusambandsþing og ég tel að við eigum að nota tímann fyrir þingið og á þinginu til að þjappa mönnum saman og komast betur inn í málin. Það er stærsti vettvangurinn sem við höfum til þess. Ég vil vekja athygli á þeirri breyt- ingu sem virðist orðin á samningsstöð- unni gagnvart VSI. Þeir semja við ASÍ og segja að þetta sé lokatilboð, en svo þegar einstök félög eru búin að ríða á vaðið með breytingar á þeim samning- um, þá er VSÍ reiðubúið að breyta því einnig í rammasamningi. Þetta getur kannski gefið okkur sterkari stöðu 1. september. Svavar: Ég er sammála því sem Jón segir um 1. september, ég held að það verði ekki svo afgerandi dagur hjá okkur. Hvernig stendur verðbólgu- dæmið þá? Atvinnuástandið? Hvernig stendur dæmið um endurskoðun ým- issa sérákvæða félaga sem á að vera lokið fyrir 31. ágúst? Ég vona samt að í kjölfar þessara kjarasamninga muni samstaðan eflast og hún verði meiri 1. september en hún var í febrúar. Sigmundur: Það má líka benda á að 1. september er fólk nýkomið úr sum- arfríum. Ég sé því ekki núna að 1. sept- ember verði afgerandi vendipunktur, nema eitthvað mjög óvænt gerist. Óli: I samningunum var samið um, að það kæmi fjármagn frá ríkisvaldinu til þeirra lægst launuðu. Ennþá liggur ekki fyrir hvernig þetta verður fram- kvæmt. Afkoma okkar getur oltið á hvort hér verði bara um tilfærslur að ræða - að það verði tekið úr öðrum vasanum og látið í hinn. Þetta getur beinlínis þýtt kjaraskerðingu hjá sum- um en ekki launauppbót. Það er þegar búið að veikja samstöðu verkafólksins með því að gangast undir þetta men, það er búið að niðurlægja það með því að gangast undir það að halda áfram að greiða niður verðbólguna. Það er búið að draga úr fólki kraft. Samkvæmt VINNAN 17

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.