Vinnan - 01.05.1984, Blaðsíða 19

Vinnan - 01.05.1984, Blaðsíða 19
,, Félagsmálaskólinn er nauðsynlegur, en við þurfum að gera stórkostlegt fræðslu- átak úti í félögunum ...“ málum og ég tel nauðsynlegt að skólinn sé nýttur eins og hægt er og efldur eins og hægt er. Þetta er gagnleg og góð stofnun. Jón: Menn einblína of mikið á Fé- lagsmálaskólann sem slíkan. Skólinn er vissulega mjög nauðsynlegur þáttur í starfseminni en það sem okkur vantar miklu, miklu fremur eru námskeið út í félögunum til að virkja fólkið í félög- unum. Það er sú fræðsla sem við eigum nú að leggja áherslu á, og ég legg til að við ákveðum sérstakt fræðsluár, fræðsluátak. Ég er ekki að rýra skól- ann, því hann er nauðsynlegur, en við þurfum að gera stórkostlegt fræðslu- átak úti í félögunum. Svavar: Skólinn er mjög góð stofnun og þörf. Námsefnið er mjög gott og við höfum mikið gagn af að fara í gegnum það. Þó eru sterkustu áhrifin sem ég hef orðið fyrir hér þau að hitta fólk af öll- um landshornum og úr mörgum starfs- greinum. Ég held að allir þeir sem hér eru hafi fengið aukinn skilning á nauð- syn samstöðu innan hreyfingarinnar. Sigmundur: Já, ég er sammála því sem Jón var að segja um eflingu fræðslu hjá félögunum, ekki síst í framsögn og ræðumennsku, því það eitt hjálpar fólki að vinna saman. En það getur orðið erfitt að fá fólk til að sækja námskeiðin, og þyrfti eflaust að reka töluverðan áróður fyrir gildi fræðslunnar. Hann Svavar er eiginlega búinn að segja það sem ég vildi sagt hafa um Félagsmála- skólann. Ég vil þó bæta við að það er auðséð að þegar þeir, sem hér hafa verið, koma heim í félögin reynast þeir stórum virkari en áður en þeir fóru, og mesta breytingin er hjá þeim sem klára hér 1.önn. Óli: Skólinn er liður í þessu fræðslu- starfi sem við erum að ræða, en samt ekki nema hluti af því. En áróðursvél atvinnurekenda stefnir að því að gera okkur erfitt fyrir í fræðslumálum með því að draga njður Iaunin. Afleiðingin er sú að við þurfum að vinna lengri vinnudag til að hafa fyrir nauðþurftum og þá verður minni tími til að sinna fræðslu. Þetta spinnur saman. Það þarf að skapa fólkinu tíma svo það geti sinnt fræðslumálum. Jón: Mig langar að nefna hér hug- mynd sem við höfum aðeins verið að ræða, og það er að við hefðum fleiri brautir á 3ju önn, þannig að menn geti farið oftar en einu sinni á 3ju önn og valið milli námsefna. Kjartan: Það er í samningum að heimilt er að senda trúnaðarmenn einu sinni á ári á námskeið á launum, og mér finnst að Félagsmálaskólinn eigi að fá sama sess. Einstaka vinnuveitendur greiða laun meðan fólk er í skólanum, t. d. minn vinnustaður, en ef þetta yrði samningsbundið yrði skólinn eflaust betur sóttur. Svavar: Ég vil minna á að MFA býð- ur upp á námskeið sem við getum feng- ið inn í félögin og það er kannski okkar skylda, sem hér höfum verið, að stuðla að því að félögin notfæri sér þessi til- boð. Óli: Ég hlýt að benda á þá staðreynd að forsvarsmenn margra félaga hafa ekki séð ástæðu til að fara í Félags- málaskólann. Ég vil benda þeim á að námsefni og kennslutæknin er alltaf að breytast og þeir ættu kannski ekkert síður en við erindi hingað. Nefnd til undir- búnings kröfugerð Sjötta þing Landssambands iðnverka- fólks samþykkir, að skipa 10 manna nefnd, með einum fulltrúa frá hverju félagi og einum frá sambandinu, til að endurskoða samningana og undirbúa kröfugerð. Nefndin taki til starfa strax og félög- in hafa tilnefnt fulltrúa. Stuðningur við SÓKN Eftirfarandi tillaga var samþykkt: „6. þing Landssambands iðnverka- fólks haldið að Hótel KEA Akur- eyri 30.-31. mars lýsir yfir stuðningi við félagsmenn Sóknar í baráttu þeirra fyrir bættum kjörum og bar- áttu þeirra fyrir dagvistun barna til jafns við hjúkrunarfólk." Flutnings- menn voru Sigurbjörg Sveinsdóttir og Sigríður Skarphéðinsdóttir. Ráðstefna um tölvu- og tækniþróun Sjötta þing Landssambands iðnverka- fólks, haldið á Akureyri 30. og 31. mars 1984, samþykkir að haldin verði ráðstefna um áhrif tölvu- og tækniþró- unar í iðnaði. Ráðstefnan verði haldin í byrjun árs 1985. Hvert félag skal bera allan kostnað af þeim fulltrúum, sem það sendir á ráðstefnuna. VINNAN 19

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.