Vinnan - 01.05.1984, Blaðsíða 22

Vinnan - 01.05.1984, Blaðsíða 22
bóta í stað óskertrar tekjutryggingar. Einnig teljast skilyrðin uppfyllt þó fólk undir 25 ára aldri eða eldra dvelji á heimilinu óákveðinn tíma enda sé ekki um að ræða að það eigi sér þar lögheimili. Hér gæti t. d. verið um það að ræða að námsfólk dvelji hjá ellilífeyrisþega eða hann leigi út herbergi. Heimild til að fella niður ársfjórð- ungsgjald af síma nær einnig til þeirra ellilífeyrisþega sem eiga heima í leiguíbúðum sveitarfélaga eða leigja á annan hátt, þeirra sem eiga heima í vernduðum íbúðum og á dvalar- heimilum - enda uppfylli þeir að öðru leyti ákvæði reglugerðar. Pótt fólk hafi þessi réttindi skapar það á engan hátt forgangsrétt til að fá síma umfram aðra umsækjendur. Umsóknareyðublöð liggja frammi á póst- og símstöðva Umsóknareyðublöð liggja frammi á póst- og símstöðvum um allt land og sjá þær stofnanir um að undanþága fáist og eru því umsóknirnar lagðar þar inn. Fasteignagjöld I lögum um tekjustofna sveitarfélaga er ákvæði þess efnis að sveitarstjórnum sé heimilt að fella niður fasteignaskatt af efnalitlum ellilífeyrisþegum og lífeyris- þegum sem ekki hafa verulegar tekjur umfram ellilífeyri. Efnalítið eldra fólk Það er því háð vilja hverrar sveitar- stjórnar hvort þessi heimild.er nýtt eða ekki. Sjálfsagt er að fara þess á leit við viðkomandi sveitarstjórn ef menn telja sig falla undir ákvæði laganna. Allflest sveitarfélög fara eftir heim- ildinni ef sótt er um. í Reykjavík eru settar ákveðnar viðmiðunarreglur ár hvert og kemur undanþága af sjálfu sér þar eð framtalsnefnd Reykjavíkur- borgar yfirfer öll skattframtöl ellilíf- eyrisþega í umboði borgarráðs og veitir undanþágu eða lækkun fasteignaskatts eftir settum reglum miðað við tekjur. Heimildin til lækkunar á fasteigna- skatti nær ekki til annarra gjalda á fast- eignaseðli en fasteignaskattsins. / Utvarp og sjónvarp Þeir ellilífeyrisþegar, sem njóta upp- bótar á lífeyri, geta fengið undanþágu frá því að greiða afnotagjald af útvarpi og sjónvarpi. Fólk verður að búa eitt og hafa einungis sjálft afnot af þessum fjölmiðlum til að fá gjöldin felld niður. Vottorð um að fólk njóti uppbótar á lífeyri fást hjá Lífeyrisdeild Trygginga- stofnunar ríkisins og í umboðum henn- ar úti á landi. Fetta vottorð skal sent Innheimtustofnun útvarps og sjónvarps Laugavegi 176 105 Reykjavík Umsókn verður og að fylgja með. Starfsmenn almannatrygginga senda bæði umsókn og vottorð ef um er beðið. Veistu... að fleiri en ætla mætti veita eldra fólki afslátt af ýmiss konar vöru og þjónustu. Veistu... að Leikfélag Reykjavíkur og Þjóðleik- húsið veita ellilífeyrisþegum afslátt á miðaverði. Veistu... þar sem strætisvagnaferðir eru í þétt- býli er ellilífeyrisþegum veittur afslátt- ur af farmiðum eða þá þeir geta ferðast ókeypis. Veistu... að Akraborgin veitir ellilífeyrisþegum afslátt af fargjaldi. Veistu... að ellilífeyrisþegar fá afslátt af vega- bréfi. Veistu... að flugfélög veita afslátt af fargjöldum með vissum skilyrðum. G.R. 22 VINNAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.