Vinnan


Vinnan - 01.05.1984, Qupperneq 27

Vinnan - 01.05.1984, Qupperneq 27
„Hef haft mikið gagn af fræðslunni hér44 Færeyingurinn Jogvan D. Poulsen frá Sandur í Færeyjum var meðal þeirra sem sóttu 3ju önn Félagsmálaskólans nú í aprílmánuði. Jogvan þekkir vel til mála hér á íslandi, því hann var hér sjómaður og auk þess er hann af íslenskum ættum í móðurætt. — Amma mín hét Jóhanna Árnadóttir og var frá Litlu-Breiðuvík á Eskifirði, ættuð frá Karlsskála. Hún og kona Jó- hannesar Paturssonar voru systkina- börn. Ég er því íslenskur í aðra ættina og á margt frændfólk á Islandi. Ég kom fyrst til íslands 18 eða 19 ára gamall, mitt í stríðinu, að mig minnir árið 1942. Við komum á trillu og rérum frá Fáskrúðsfirði. Parna voru einir 8 færeyskir bátar þetta sumar og seldum við aflann um borð í færeyskar skútur sem síðan sigldu með aflann. En það gekk ekki vel þetta sumar. Við misstum mörg skip sem voru í siglingum, þau voru ýmist skotin niður eða sigldu á tundurdufl. Við urðum að hætta sigl- ingum með fisk til Englands og ég kom mér heim aftur. — Ég kom samt hingað sumarið eftir og gerði þá út frá Neskaupstað, var á snurvoð með manni sem heitir Gísli Bergs. Ég var hjá honum tvö sumur en síðar sótti ég sjó frá Höfn í Hornafirði, Þorlákshöfn og víðar. — Af hverju komstu svona oft hing- að? — Mér líkaði afar vel að vera hér, og fannst gott að vinna með íslendingum. Svo voru það ættartengslin sem drógu mig hingað. — Hvenær hófstu störf fyrir verka- Iýðshreyfinguna í Færeyjum? — Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á verkalýðsmálum og var einn þeirra sem stofnaði verkalýðsfélagið heima á Sandi árið 1961. Við höfðum áður reynt að stofna félag, en það hafði ekki tekist. Við sem bjuggum þarna vorum flestir sjómenn og þurftum að fara til starfa í aðrar verstöðvar, þannig að það var erfitt um félagslíf. Ég var formaður félagsins fyrstu árin, en varð síðan að segja af mér vegna þess hve ég var mik- ið í burtu. Ég byrjaði að vinna aftur í landi um 1970, og þá var ég aftur kos- inn formaður félagsins og hef verið það síðan. Ég hef einnig setið í stjórn Föroyar Arbeiderfélag, sem er samsvarandi og ASÍ. Það var stofnað árið 1925 og nú eru 38 félög aðilar að FA og félags- menn um 7.500. - Hvernig hefur þér svo líkað vistin á Félagsmálaskólanum? - Afar vel og ég hef haft mikið gagn af þessari fræðslu hér. Ég hef verið á samskonar námskeiðum í Danmörku og heima í Færeyjum. Við stofnuðum okkar MFA árið 1982 og heitir það Upplýsingafélagsskapur verkamanna. Fræðsla á borð við þá sem við höfum fengið hér er mjög nauðsynleg, því verkafólk veit almennt of lítið um rétt- indi sín og störf. Ennþá finnst mér allt of margir sem ekki skilja þýðingu þess- ara námskeiða. Sá sem vill læra getur haft mikið gagn af slíkum námskeiðum. — Nú eru að mörgu leyti mun betri lífskjör í Færeyjum í dag en við njótum hér á íslandi. Hefðirðu áhuga á að vinna hér, miðað við launin sem eru í boði? Verkamannalaun 56 færeyskar, þ. e. um 168 íslenskar — Nei, en það var mikill munur á kjör- um ykkar og okkar fyrstu árin sem ég starfaði hér. Við komum líka til íslands vegna atvinnuleysis heima fyrir. Fyrir stríð áttum við fyrst og fremst skútur. Láglaunakönnun Niðurstöður láglaunakönnunar kjararannsóknar- nefndar hafa verið gefnar út í bókarformi. Bókin fæst hjá kjararannsóknarnefnd Borgartúni 22 Rvk. og kostar kr. 300. Bókina er einnig hægt að panta gegnum síma. KJARARANNSÓKNARNEFND VINNAN 27

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.