Vinnan - 01.05.1984, Page 33

Vinnan - 01.05.1984, Page 33
og getur því sameinast um ferðalög út frá Gilleleje að eigin ósk. Sem dæmi um verðmismuninn má nefna að í ár kostar þessi ferð aðeins 9,200 en kostaði í fyrra 13. 800. A örstuttum tíma sóttu 892 manns um að komast í þessar ferðir en sæta- framboð okkar var um 500 sæti og þar af voru 405 sæti sem tengdust sumar- húsadvöl. Það er því á valdi félaganna, sem hafa látið af hendi hús, að ákveða hvaða félagsmenn innan þeirra raða fá hús og hverjir verða að láta sér lynda ferð til Kaupmannahafnar án húss, en þau sæti kosta ekki nema 6.500.- Fleiri ferðamöguleikar Þegar ljóst var að svona mikill áhugi var á ferðum til Kaupmannahafnar höfðum við samband við Samvinnu- ferðir og sömdum um ein 200 sæti til viðbótar þann 13. júní, 4. júlí og 26. júlí með vélum Flugleiða. Þessar ferðir getum við boðið á sama verði og rauður apex er boðinn á, eða kr. 9.660. Þá erum við að ná samkomulagi um sæti í ferð til Norður Svíþjóðar þann 14. júlí, en við vitum ekki enn verð og mögu- leika á gistingu, bílaleigubílum o.s.frv. — Hvernig hugsarðu þér fram- kvæmdina næsta ár, miðað við þessar grundvallarbreytingar? — Við stöndum nú frammi fyrir því vandamáli að verða að raða saman fólki í húsin í Danmörku sem kannski ekki þekkist og er ekki í sama stéttar- félagi. Þetta er auðvitað smávægilegt vandamál, en næsta ár kynnu þau félög, sem láta hús af hendi, að fá umráðarétt yfir húsunum í Danmörku og ákveðinn sætafjölda að auki. Félögin myndu sjálf auglýsa hve mikið þau hafa til ráðstöf- unar af sætum og úthluta sætunum án okkar milligöngu. Þetta er enn á um- ræðustigi. Meiri fjölbreytni? — Er ekki hægt að semja við fleiri þjóðir en Dani um skipti á sumarhús- um? — í haust verður haldinn hér árs- fundur Nordisk Folkeferie og þá mun- um við taka málið fyrir. Staðreyndin er sú að Danir eru komnir lengst í skipu- lögðum orlofsbúðum, en við hljótum að geta gert einhverja samninga við Norðmenn og Svía og þá ekki síst Finna, en við höfum mikinn áhug á að efla tengslin við þá. S.J. SMÁAUGLÝSINGAÞJÓIMUSTA VIDGETUM IHT ÞER SPORIN OG AUDVEIDAD DÉR FYRIRHÖFN Við viljum vekja athygli á að þú getur látið okkur sjá um að svara fyrir þig símanum. Við tökum á móti upplýsingum og þú getur síðanfarið yfir þær í góðu tómi virka daga kl. 9—22 OPIÐ: laugardaga 9—14 sunnudaga kl. 18—22 Tekið er á móti myndasmáauglýsingum og þjónustuauglýsingum virka daga kl. 9—17. SÍMINN ER 27022. ATHUGIÐ Ef smáauglýsing á að birtast í helgarblaði þarf hún að hafa borist fyrir kl. 17föstudaga. SMAAUGLÝSINGADEILD, ÞVERHOLT111, SÍMI 27022. • Afsöl og sölutilkynningar bifreiða • Húsaleigusamningar (löggiltir) • Tekið á móti skriflegum tilboðum

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.