Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Síða 9
7
Þingeijrar. Afkoma almennings svipuð og undanfarin ár. Kjör sjó-
manna þó stórum lakari, en afkoma sveitabænda hefir að góðum
mun batnað.
Flateyrar. Afkoma á Flateyri mun hafa verið með betra móti
þrátt fyrir aflaleysi, og bjargaði þar karfavinnslan í ríkisverksmiðj-
unni á Sólbakka, er veitti mikla atvinnu. I Súgandafirði mun af-
koman aftur á móti hafa verið léleg, og er það næsta undarlegt, hvernig
fólk fer að bjargast þar, þegar afli bregzt.
Hóls. Fiskileysi óvenjulegt á þessu ári. Afkoma einstaklinga og
hreppsfélags því með lakara móti.
Ögur. Afkoma bænda betri en næsta ár á undan, en þeir, sem sjó
stunda, urðu all-hart úti. í Súðavík, sem er hið eina sjávarþorp hér-
aðsins, var sumsstaðar mjög þröngt í búi, og-lá við borð, að nokkur
heimili byggju þar við skort á helztu lífsnauðsynjum.
Hesteyrar. Afkoma í betra meðallagi, aðallega fyrir aukna atvinnu
við síldarverksmiðjuna á Hesteyri.
Reykjarfi. Atvinna með bezta móti við síldarstöðvarnar á Eyri og
Djúpuvík. Dálítið fór að bera á pest í sauðfé hér fyrir hátíðar, og er
álitið, að um svonefnda Deildartunguveiki sé að ræða. Nokkuð hefir
verið drepið af fé af þessari ástæðu, og óhug hefir slegið á bændur.
Hólmavíkur. Þeir, sem landbúnað stunda eingöngu, komust allvel
af, og hefir hagur bænda yfirleitt farið batnandi undanfarin ár.
Hafskipabryggjugerð á Hólmavík og síldarsöltunarstöð í sambandi
við bryggjuna bættu stórleg'a afkomu manna þar.
Miðfi. Afkoma mun hafa verið með betra móti yfirleitt. En síðast-
liðið haust og framan af vetri fór að bera á fjársýki þeirri, sem kennd
er við Deildartungu, á allmörgum bæjum, og misstu nokkrir bændur
eða létu drepa margt fé, sumir um helming.
Blönduós. Árferði frekar slæmt. Síðast á árinu kom nýr vágestur
inn í héraðið, borgfirzka fjárpestin eða Deildartunguveikin öðru nafni.
Afkoma yfirleitt góð, afurðir bænda í góðu verði og allmikil vinna
á Skagaströnd við hafnargerð og síldarsöltun.
Sauðárkróks. Efnahagur manna er fremur bágborinn yfirleitt og
fer versnandi. Sveitarþyngsli vaxa hröðum skrefum og eru orðin
gífurleg hér á Sauðárkróki. Fjölgar árlega þeim flokki manna, sem
eru upp á aðra komnir með framfærslu sína og sinna.
Hofsós. Afkoma bænda mjög sæmileg. Það hefir bætt afkomu
þeirra, er við sjóinn búa, að ráðizt hefir verið í hafnargerð á Hofs-
ósi, og allur fjöldinn hafði allgóða atvinnu við það mannvirki.
Ólafsfi. Árferði með lakasta móti. Þorskveiðarnar brugðust svo
að segja algerlega. Það eina, sem hjálpaði, var, að stærri bátarnir fóru
til síldveiða, og veiddu tveir og þrír í félagi um eina herpinót. Fólkið
hefir haft nóg að éta, og með svipuðum aðstæðum býzt ég við, að
svo verði lengst af í Ólafsfirði. Þó að aflalaust sé talið, er allt árið
um kring hægt að fá þar nógan fisk til matar. í Ólafsfirði er sá siður
að selja aldrei fisk til matar, hann fá allir eftir því, sem þeir þurfa með.
Svarfdæla. Þriðja aflaleysisárið í röð og þeirra lang-aflalægst. Hins-
vegar bætti það mikið lir, að síldarafli var með bezta móti og verð
sæmilegt.