Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Blaðsíða 47
45
Ólafsvíkur. Þrátt fyrir mislingana eru ekki skráð nema 3 ný til-
felli. Annars eru fleiri grunsamir. Pirquetpróf var gert á 143 börnum í
Ólafsvík og á Sandi. Tölur mjög svipaðar nú og í fyrra. Alls bséttust
við 5 börn, sem nú voru en -e- í fyrra. Af þeim voru 2 í Ólafsvík,
en 3 á Sandi. Annað barnið í Ólafsvík á berklaveika móður, en hitt
barnið á heiina þar við hliðina.
Dala. Hefi reynt að vanda betur skoðun grunsamra og nota þau
hjálparmeðul, sem ég get um hönd haft (berklapróf, blóðsökk, smá-
sjárrannsókn). Held, að veikin sé ekkert að ná sér á strik aftur.
Berklapróf, sem gert var á öllum skólabörnum, bendir heldur ekki
til þess. Vitað er, að flest börnin, sem positiv voru, hafa einhverntíma
verið samvistum við berklaveikt fólk, sem flest er nú talið albata, er
á berklahælum eða dáið. Væri fróðlegt og æskilegt vegna berklavarn-
anna að halda þessum berklaprófum áfram á hverju ári, því að í
héraði sem þessu hlýtur af þeim að mega fá talsverðan stuðning við
rannsóknir á útbreiðslu berklaveiki. Án mjög miklu meiri fyrirhafn-
ar og tímaeyðslu mætti og færa prófin svo út, að þau næðu til allra
barna í sýslunni frá 1—15 ára aldurs.
Reykhúla. Mjög lítið um berkla í héraðinu undanfarin ár.
Bildudals. Ég tel víst, að berklaveiki sé hér alltaf í rénun og hafi
verið svo í mörg ár. Vafalaust eru þó einhverjir berklaveikir menn
í héraðinu, auk þeirra, sem í sjúkrahúsum dvelja, en þeir eru þá
ekki meira sjúkir en það, að þeir geta g'eng'ið til vinnu sinnar og \4tja
ekki læknis. Við Pirquetpróf skólabarna kom í ljós, að af 61 barni
voru 11 positiv eða 18%. Þar af í Bíldudalsskóla 21%, en í skólum
Ketildalahrepps 13%. Þar af öll börnin 3, sem smituð eru, í einum
og sama skóla, Selárdalsskóla. Þar berast böndin að 2 bæjum og þó
einkum að öðrum þeirra. Þar eru og hafa verið nokkur gamalmenni,
sem nú eru dauð, geta vel hafa verið smitberar, en hafa aldrei verið
skoðuð. í Bíldudalsskóla má rekja feril smitunarinnar hjá flestum
börnunum til sjúklinga, sem farið hafa á sjúkrahús og koma ekki
hingað aftur.
Þingeyrar. Með meira móti skráð. Sérstaka eftirtekt vakti eitt
heimili. Húsbóndinn, sterkbyggður og kröftugur maður, kom nú
fyrst til athugunar og var þá mjög illa útleikinn með berkla og
kavernur í báðum lungum, háan hita og síðar hæmopthysis. Hefir ef-
laust verið búinn að vera veikur ekki skemur en eitt ár, en gengið
að vinnu við og við með hitasótt. Kom af síldveiðum þannig útleik-
inn, er hann fyrst leitaði læknis. Við athugun reyndust tvær dætur
7 og 8 ára, Pirquet -þ, en konan og tveir synir, 1 og 10 ára, Pirquet -í-.
Skömmu síðar veiktust báðar telpurnar af tb. primaria. Heimilið fá-
tækt og lélegur aðbúnaður. Eldri telpan dvaldi á heimilinu og tók
fljótum bata. Sú yngri hefir dvalið á sjúkrahúsi síðan og er nú í
hröðum endurbata. Eigi verður upplýst, hvar maður þessi hefir smit-
azt. Móðir hans hafði tendovaginit. tuberc. fyrir ca. 20 árum. Hefir
upp frá því verið alhraust. 22 ára gamall sjómaður var sendur hingað
á sjúkrahús i ársbyrjun með tuberc. pulm. duplex. Var hann talinn
til heimilis hér í héraðinu, en hafði lengi dvalið annarsstaðar og var
sendur hingað frá Flateyri. Mun hann þar hafa smitað nokkuð af