Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Blaðsíða 177
175
hafi síðan borizt í hann. Heimili Arna fékk nijólk frá Neðribæ á tiina-
bilinu áður en hann veiktist. Hann hefði þannig hæglega getað sýkzt
frá smitbera í Neðriliæ.
Hinn möguleikinn, að sýklaberi sé á vestri bæjunum, virðist í fljótu
bragði iniklu sennilegri. Þar voru 4, sein höfðu fengið taugaveiki, 2
í Garðshorni II, 1 í Baldurshaga og 1 á Sælandi. Sælandsheimilið
hefir aldrei sótt vatn í Garðshornsbrunninn og liggur ekki sérlega
nærri honum. Baldurshagi liggur alllangt í burtu, og er vandséð, hvers
vegna Garðshornsbrunnurinn þyrfti frekar að smitast af þvi, að þang-
að væri sótt vatn frá Baldurshaga en Útgarðabrunnurinn. Að því leyti
standa báðir brunnarnir jafnt að vígi. Allar líkurnar mundu þá benda
að Garðshorni II. Bæði hjónin hafa fengið taugaveiki. Konan M. F.-
dóttir, hefir tvisvar fengið gulu og hefir eymsli á gallblöðrustað.
Sýkingin 19,‘11 gæti einnig skýrzt frá henni, sýkingin 1934 ef til vill
sömuleiðis. Eins og áður er tekið fram, gera staðhættir sýklaburð i
brunninn frá Garðshoni mjög auðveldan. Sýkingar, sem enn er eftir
að skýra frá, gætu einnig skýrzt frá M. F.dóttur.
Til þess að hægt sé að skera úr um, hvaðan upphaflega smitunin í
þessum faraldri stafi, er eins og séð verður af framansögðu, óumflýj-
anlegt að finna smitberann með bakteriologiskri rannsókn.
Næsta sýking varð 6. apríl, eða hér um bil tveimur mánuðum eftir
að síðustu sjúklingar úr fyrri faraldrinum voru komnir á fætur. í
þetta skipti veiktist skóladrengur ofan at Flateyjardal, G. að nafni.
Hann bjó og borðaði í Neðribæ og mun hvergi hafa komið nema þar
og til M. F.-dóttur í Garðshorni II. Hann var fluttur heim til sín á
þriðja degi. 19 dögum siðar veiktist 10 ára gamall drengur í Barna-
slcólaltjallaranum, J. G-son. Hann hafði setið við sama borð og G. í
skólanum og hefir án efa smitazt af honum. ,1. lá til 4. júní. 28. maí
veiktist G. S.son, Baldurshaga. Hann hafði verið i vinnu í Neðribæ 20.,
23. og 25. maí og þá borðað þar. Hann hafði mikið vos þessa daga, og
gæti það ef til vill hafa stytt meðgöngutíma hans. Sömuleiðis kom
liann oft að Garðshorni og þáði þar kaffi. Hann lá einn mánuð. 28.
júní veiktist Á. H.dóttir, Bjargi, 10 ára og síðar 3 börn í barnaskóla-
kjallaranum. Hvert þessi smitun hefir verið sótt, er ekki fullljóst, en
með þeim heilbrigðisháttum, sem í eynni eru, og með þeim miklu sam-
göngum, sem eiga sér stað á þessum tíma árs, er ekki óeðlilgt, að
smitun geti borizt rnilli heimilanna, þegar sjúklingar eru í eynni á
annað borð. Þó vil ég sérstaklega geta þess, að smitun gæti auðveld-
lega skýrzt frá Garðshorni II, ef þar væri smitberi.
Það virðist augljóst, að í Flatey hlýtur að vera sýklaberi, sem tæp-
lega getur verið yngri en frá 1924. Smitunin er vel hugsanleg frá ein-
um smitbera, þrátt fyrir það, hve tilfellin eru dreifð. Þar hjálpar
óþrifnaðurinn að sjálfsögðu mjög til. I eynni er ekki til eitt einasta
salerni, er verðskuldi það nafn, nema í barnaskólanum. Allsstaðar
gengur fólk erinda sinna í fjósin eða fjöruna, þegar gott er veður. Að
vísu er til eitt salernisskrífli niður við fiskhúsin, en það er svo að
segja ónothæft.
í Sigtúni er gömul for og yfir henni trépallur. Þar ofan á er negldur
50 kg. svkur-kassi með gati að ofan og hlemm yfir. Þetta er notað á