Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Page 30
28
uðu berklar upp í beinu áframhaldi af mislingunum og leiddu til
dauða. En í mörgum tilfellum munu þeir hafa undirbúið jarðveginn
fyi'ir berkla.
Miðfj. Mislingar bárust í héraðið í maímánuði, en breiddust hægt
út, þar til í ágústmánuði, að þeir dóu út. Voru sumar sveitir alveg
lausar við þá. 1 telpa, 13 ára, dó vir mislingum. Hafði hún verið
heilsuveil.
Blönduós. Mislingar bárust inn í héraðið í maímánuði á 4 stöðum
samtímis með fólki, sem var að koma úr Reykjavík, og náðu þeir all-
mikilli útbreiðslu, svo að heil heimili urðu undirlögð, því að víða hefir
þeim verið varizt til sveita, er þeir hafa gengið áður. Lögðust allþungt
á suma, svo að nokkrir fengu lungnabólgu, og dó úr henni 1 barn á 1.
ári, sem mín var aldrei vitjað til, og bóndi á fimmtugsaldri. Mislinga-
serum var notað prophylalctiskt við suma, t. d. þá berklasjúklinga á
sjúkrahúsinu, sem ekki höfðu áður fengið mislinga, og virtist það
koma að ágætu haldi, því að þeir sjúklingar sluppu allir mjög vel
við veikina, og voru þó nokkrir þeirra komnir yfir fertugt. Ýms heimili
vörðust veikinni og jafnvel heilar sveitir, eins og Svartárdalur og
Blöndudalur.
Sauðárkrólcs. Mislingar gengu hér í kauptúninu og sveitinni frá maí
til september. Voru þeir svo vægir, að jafnvel þeir, sem óskuðu eftir,
að börn þeirra fengju veikina og gerðu tilraunir til þess, g'átu ekki
smitað þau. Þannig slapp allt að þriðjungur barna hér á staðnum
við veikina.
Hofsós. Komu hér í júni, en bárust ekki mikið út. Komu svo aftur
í nóvemberlok og gengu fram yfir áramót. Margt af fullorðnu fólki
sýktist og varð all-þungt haldið.
Ólafsfi. Mislingar bárust hingað um miðjan maí með vermönnum,
sem komu frá Vestmannaeyjum, en breiddust aðallega út í júní. Fáein
tilfelli varð ég var við allt fram í ágústbyrjun. Mislingarnir voru
vægir. Nokkrir sjúklingar fengn kveflungnabólgu, en enginn dó.
Svarfdæla. Bárust til Hríseyjar seint í maí með stúlku úr Reykja-
vík. Seint í júní bárust þeir til Dalvíkur með fjölskyldu frá Aust-
fjörðum, er kom þangað til sumardvalar. Flestir þeirra, er læknis
var leitað til, voru töluvert þungt haldnir. Margir höfðu svæsna
pharyngitis og' laryngotracheitis. Öllum batnaði að lokum, og enginn
fékk lungnabólgu upp úr veikinni. Má tel ja, að sóttin hafi verið fremur
væg, þegar á allt er litið. Miklu þyngra lagðist hún yfirleitt á fullorðna
en börn.
Akureyrar. Mislingar bárust til bæjarins frá Reylcjavík i maímán-
uði, og varð veikinnar vart eftir það alla mánuði ársins til áramóta.
Gekk yfir í tveimur öldum.
Höfðahverfis. Mislingar bárust í héraðið frá Akureyri á einn bæ í
Dalsmynni. Eitthvað gerðu þeir líka vart við sig í Fnjóskadal.
Retjkdæla. Stúlka, sem kom frá Austurlandi, hafði mislinga. Var
henni komið á bæ, þar sem allir höfðu fengið mislinga, og smitaðist
enginn af henni. Stúlka frá Bjarnastöðum í Bárðardal bar mislingana
heim til sin frá Akureyri og sýkti heimilið.