Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Qupperneq 32
30
mislingarnir þitr yfir og voru ekki nijög þungir, en nokkrir menn
fengu slæma kveflungnabólgu upp úr þeim. Af þeim, sem lungnabólgu
fengu, dó 1 maður í Þórshöfn, og' er hann talinn dáinn úr misling-
um. Sveitunum varð strax mjög illa við gestinn og reyndu að verja
sig' eftir megni, og var þó sérstök áherzla lögð á að verja heimili,
þar sem þungaðar konur voru, og þeim sumpart komið burt úr Þórs-
höfn til dvalar í sveit. Tókst alveg að verja þær. En út í sveitirnar
komust mislingarnir þó dálítið. 1 Hvammi í Þistilfirði dó gamall
maður úr þeim, og var strákaheppni Þistilfirðinga ótrúleg, að misl-
ingarnir skyldu ekki fara þar um allt, því að bílstjóri frá Hvammi
flutti fólk til fermingar að Svalbarði og fór þar inn í kirkjuna troð-
fulla, kyssti kunningjana o. s. frv., og lagðist um kvöldið í misling-
um. Auk Hvamms komust mislingarnir á 2 bæi í Þistilfirði, á Langa-
nesi fáa bæi og nokkra á Strönd. Mér virtust mislingarnir ekki mjög
slæmir hér, þegar tekið er tillit til þess, að æði margir fullorðnir
fengu þá.
Vopnafj. Bárust hingað um mánaðamótin apríl—maí með innan-
héraðsmanni um fimmtugt, sem farið hafði snögga ferð til Reykja-
víkur. Hafði maður þessi lengst af dvalið á heiðarbýlum og því ekki
fengið mislinga áður. Eftir heimkomuna var hann á ferðalagi um
sveitina og sýkti beint frá sér 6 heimili, eða alls milli 40—50 manns.
Mislingarnir gengu síðan yfir mest allt héraðið mánuðina maí—ágúst
og munu hafa sýkt nokkuð á 3. hundrað manns, eftir því sem næst
verður komizt. Nokkur heimili í sveitinni vörðust mislingunum alveg
í þetta sinn. Veikin virtist all-þung, líklega svipuð og' árið 1907. Lagð-
ist þyngst á fólk á bezta aldri, eða frá 15—40 ára. Á gömlu fólki
var hún ekki sérlega þung. Lengstur meðgöngutími frá smitun til
útbrota var ca. 17% sólarhringur. Er sá tími fullkomlega sannaður.
Ekki virtust mislingarnir alltaf jafn smitandi. Maður frá afskekktum
bæ var staddur á bæ úti í sveit, er þar bar að garði manninn, sem
kom með mislingana frá Reykjavík og nú var að veikjast. Smitaðist
nú hinn fyrr greindi maður ásamt öðrum, er á heimilinu voru staddir.
Fór maður þessi nú heim til sín og veiktist þar af mislingum. Lá hann
í miðbaðstofu, sem allt heimilisfólkið gekk um. Ekki smitaði hann
þó nema systur sína eina. Af henni smitaðist síðan allt hitt heimilis-
fólkið. Voru þau tvö þannig komin á fætur, er þriðji flokkurinn lagð-
ist, og' kom það sér næsta vel fyrir heimilið, sem er afskekkt og átti
því óhægt með að fá hálp að. Maður sá, er flutti mislingana inn í
héraðið, gisti á Hofi nóttina áður en hann kom að næsta bæ, Felli,
og smitaði alla þar. Á Hofi smitaði hann aðeins einn mann, en sá
bjó ferð hans úr hlaði og kvaddi hann síðastur manna. Meðgöngu-
tími hans var 17% sólarhringur, svo sem að framan getur. 2 mann-
eskjur dóu úr mislingunum, að því er ætla má, og var önnur barn
á 1. ári. Síðara tilfellið var kona, rúmlega tvitug, Hvin var vanfær og
ól barn á kvefstiginu.
Hróarstnngu. Mislingarnir náðu aldrei verulegri útbreiðslu, vegna
þess að menn gættu yfirleitt hinnar mestu varúðar, að því er snerti
samgöngur við sýkta staði. Kom það sér betur, því að hér eru all-
mörg heimili, þar sem enginn hefir fengið mislinga, allt upp í gamal-