Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Síða 76
74
konunum heilsaðist vel á eftir, nema einni, sem fékk brjóstamein,
er skera varð í. 3 fósturlát komu fyrir, og þurftu 2 konur á eftir út-
sköfun á legi af þeim orsökum. Takmörkun barneigna er nokkur
og dálítil eftirspurn eftir varnartækjum. Ljósmæður geta tveggja
fósturláta, en auk þess leitaði 1 kona á Blönduósi læknis vegna áfram-
haldandi hlæðinga eftir fósturlát. Abortus provocatus hefir enginn
átt sér stað.
Sauðárkróks. Engin fósturlát. Enginn abortus provocatus, en 2
beiðnum um slíkt synjað.
Hofsós. Læknis vitjað 6 sinnum á árinu til sængurkvenna. Hjá einni
placenta accreta partialis. Placenta losuð í snarkasti með hendi að
innan. Hjá annari perineum rifið, og sauinaði ég í svæfingu. Hinar
4 höfðu lélega sótt.
Ölafsfj. 9 sinnum á árinu vitjað til kvenna í barnsnauð. Aldrei
neitt verulegt að. Konum og börnum heilsaðist öllum vel. Einu sinni
var mín vitjað vegna fósturláts.
Svarfdæla. Sóttur til konu með placenta praevia vegna blæðingar,
er hafði byrjað nóttina áður. Blæðing var hætt, er ég kom, og
orificium lokað. Átti heima á öðrum fremsta bænum í Skíðadal. Lét
ég flytja hana, þegar er kostur var, til frændfólks hennar ekki langt
héðan. Þar skoðaði ég hana aftur 29. des., er hún hafði fengið blæð-
ingu á ný. Við mælingu kom í ljós, að hún hafði líka grindarþrengsli,
enda tæpast fullvaxin. Daginn eftir lét ég flytja hana til Akureyrar-
spítala á sjúkrabíl, er fenginn var þaðan, og þar var gerð á henni
sectio caesarea 2 dögum síðar vegna nýrrar blæðingar. Lifðu bæði,
kona og barn, og heilsaðist vel báðum. Hefi fyrir satt, að hér sé um
afar fátítt mein að ræða hjá konum, sem eru þungaðar eða fæða í
fyrsta sinn. Er talið, að pl. pr. komi í mesta lagi fyrir í eitt skipti af
500 fæðingum og 10 sinnum oftar hjá multiparis en nulliparis eða
primiparis, svo að pl. pr. primigravidarum ætti ekki að koma oftar
fyrir en í mesta lagi einu sinni við 5000 fæðingar.
Höfðahverfis. 7 sinnum var mín vitjað til sængurkvenna. Tilefnið
var 4 sinnum, að ljósmóður var ekki vitjað. í einu tilfelli fósturlát.
Reijkdæla. Vitjað til 6 sængurkvenna á árinu. Tilefnið var í 5 af
þessum tilfellum hríðaleysi. 6. tilfellið var þverlega, primipara með
kyphosis. Gerð vending og framdráttur. Barnið dáið.
Húsavíkur. Vegna fósturláta hafa vitjað mín 7 konur á árinu. Allt
giftar konur, fleirbyrjur. Enginn abortus provocatus. Farið fram á
það í eitt skipti, berklaveik kona, en fallizt á að sjá, hvað setti, og
gekk allt vel. Eitthvað mun um takmarkanir barneigna, en því miður
líklega oftar hjá þeim, sem sízt skyldi.
Öxarfj. Fæðingar eru fáar og rytjulegar. Mín var tvisvar vitjað, en
börnin komu í heiminn á sama tíma og ég í hlaðið. Síðastliðin 3 ár
hefir ekkert barn fæðst á Hólsfjöllum. Nú fæddust 2, annað að sögn
með hydrocephalus og var andvana. Hitt 1100 grm. og lifði í 5 daga.
Fleiri skítur var í kringum fæðingar út af lausung, er dró til óham-
ingju. Abortus provocatus var enginn gerður.
Þistilfj. 1 kona dó úr scarlatina. 1 abortus hreinsaður hurt með
fingri. Abortus provocatus enginn.