Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Qupperneq 78
76
Mýrdals. Læknis vitjað tvisvar. Annað skiptið framdráttur á seinni
tvíbura, hitt skiptið primipara, óskað eftir deyfingu. Auk þess sóttleysi.
Rangár. 12 sinnum vitjað til kvenna í barnsnauð. Flestar fæðingar
gengu vel. 1 fæðing mjög erfið vegna stórs myoms í uterus. Gerði
vendingu og framdrátt. Barnið dáið nokkrum dögum fyrir fæðingu.
Einu sinnni notuð töng. í hinum tilfellunum venjulega komizt af með
narcosis obstetrica.
Grímsnes. Fæðingar gengu með afbrigðum vel á þessu ári.
Keflavíkur. Læknis vitjað 11 sinnum til sængurkvenna, ýmist til
að herða á sótt eða deyfa, sem fer heldur í vöxt. í Gerðahreppi fædd-
ist 1 barn vanskapað: Vinstri fótur 1V2 cm. styttri, bæklaður fót-
leggur, og vantaði annað öklabeinið.
V. Slysfarir.
Slysfaradauði og sjálfsmorð á síðasta áratug teljast sem hér segir:
1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934 1935 1936
Slys 69 71 611) 88 57 53 112 55 90 102
Sjálfsmorð . . 9 8 7 6 6 4 16 12 8 15
Slysfaradauði var með meira móti á árinu, og eins og vant er, var
sjórinn þar djarftækastur. Læknar gera nú að tilhlutan landlæknis
nánari grein fyrir tildrögum ýmiskonar slysa en áður var venja, og
er það meðal annars til leiðbeiningar þeirri starfseini, sem nú er
hafin, að frjálsu framtaki, tiJ að fræða menn um orsakir hverskonar
slysa og hvernig þeim megi verjast.
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Engin stórvægileg slys. — Háseti á línuveiðara var við
beitingu úti á rúmsjó. Velta var mikil á skipinu, svo að hann hrasaði,
greip með vinstri hönd fyrir sig, en féll, fór þá hægri öxl úr liði. —
Hampþéttari við vélarbát var við vinnu. Kviknaði þá í bikpottinum
af völdum vinds, svo að loginn hljóp í hendur hans. Hann hlaut
bruna á öllum fingrum vinstri handar, er hljóp í blöðrur upp undir
lófa. — Sjóðandi vatn úr katli helltist ofan á hendur og handleggi 4
ára barns, og hlauzt af bruni á 2. stigi. —- Sótarinn hér á Akranesi
var á húsþaki að laga stiga og koma fyrir öðrum stiga, og' datt hann
þá niður á stétt við húsið. Hlaut heilahristing og rifbrot á 3 rifjum.
— Verkamaður var að hlaða fiskpökkum á bifreið. Kom þá fiskpoki
við hann, svo að hann féll úr bílnum. Hlaut heilahristing og mar á
öxl. — Gþmul kona féll á sléttu gólfi. Hlaut af fract. colli femoris.
— Húsfreyja var að mjólka kú. Þegar hún var að fara undir spen-
ana, tók beljan viðbragð og skellti henni í flórinn. Hún hlaut af lux.
humeri. — Verkamaður hljóp ógætilega af bifreið, er eigi var stöðv-
uð, bar fyrir sig hægri hönd og hlaut af brot fyrir ofan úlflið. —
Unglingspiltur sat aftan á bifreið án þess að halda sér. Þegar bif-
reiðin fór fram hjá húshorni, féll hann af og hlaut beinbrot fyrir
1) Þar að auki eitt morð.