Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Side 82
80
í bæjardyrunum, fór síðan upp á loft. 2 smádrengir komu þar að,
er byssan var. Fór þá annar að handleika hana með þeim árangri,
að skot lenti í kviði drengsins.
Reykjarjj. Fract. costae: Gamall maður datt á þóftu í bát. ■— Fract.
malleoli medialis: Ungur maður ætlaði að stökkva á bifreið, sein var
á ferð, féll við og varð með fótinn undir framhjóli bílsins. — Lux.
menisci medialis: Stvrimaður á togara flýtti sér niður stiga af stjórn-
palli, en feslist með fótinn í stigarim, féll við og hékk á fætinum. —
Vulnus contusum á höfði: 2, hæði orsökuð af steinkasti úr fjalli. —
Lux. humeri dextr. et digiti II man. sin.: Gömul kona datt í myrkri
á grýttum og bröttum fjallvegi. — Ambustiones 2:1) Barn á 1. ári rak
báðar hendur niður í skál með sjóðandi mjólk, brenndist mikið
upp á úlnlið á báðum hönduin. 2) Tveggja ára drengur datt í pott
með sjóðandi vatni, brenndist mikið og alldjúpt á báðum fótum.
Hólmavíkur. 3 handleggsbrot. 1 liðhlaup í öxl. — Meiðsli á hendi með
þeim hætti, að sleggjuhögg tók framan af 2 fingrum og marði 3.
fingurinn. — Telpa brenndist mikið á andliti, báðum handleggjum og
hönduin og brjósti — lenti í bensinbáli. — Með ljá var slegið í fót á 11
ára telpu, neðan við miðjan legg, og tók í sundur sinar og vöðva.
Mið/j. Slys voru alls talin 59 á árinu, flest smávægileg. Lux. humeri
(habitualis) kom einu sinni fyrir. Beinbrot voru alls 9: Fract. colli
l’emoris 1 (gömul kona datt úti á hálku). — Fract. condyli femoris
1 (miðaldra kona datt úr stiga). — Fract. malleoli ext. 1 (eldri mað-
ur datt með hesti). — Fract. costae et contusio reg. lumbalis 1 (mið-
aldra maður stökk út úr bíl, sem ók út af veginum). — Fract. radii
3, fract. metacarpi 1, fibulae 1. Því miður get ég ekki gefið nægar
upplýsingar um orsakir sumra slysanna, þar sem ég var fjarverandi
helming ársins og skilríki um orsakir ekki fyrirliggjandi. Enginn
hefir látizt af slysförum á árinu.
Blönduós. Alls leituðu læknis á árinu 25 manns vegna slysa. Vulnus
sclopetarium laetale 1. Fract. claviculae 2, radii 2, nasi 1, phalangis
complicata 1. Lux. humeri 1. Compressio thoracis 1. Distorsio carpi
1. Ambustiones 3. Vulnerationes 12. Skotsárið hlaut aldraður maður
á Blönduósi. Ætlaði hann ásamt tengdasyni sínum að lóga nautgrip,
en skotið hljóp úr byssunni í holhönd honum og' tætti sundur æðarn-
ar þar, svo að honum blæddi þegar til ólífis. — Bóndi á Laxárdal
skar sig djúpt inn í thenar-vöðva á ryðguðum torfljá, og hafðist
sárið illa við, svo að höndin varð ekki jafngóð. -— Smástúlka brennd-
ist í andliti og hlaut af lýti nokkurt. — Að öðru leyti urðu ofan-
greind ineiðsli ekki að varanlegu meini.
Sauðárkróks. Fract. colli femoris. 1: Öldruð komna féll úr stiga. —
Fract. Collesi 3: Allt rosknar konur, féllu á hendi. — Fract. femoris
1: 7 ára drengur, féll úr rólu. -— Fract. claviculae 1: Miðaldra maður,
féll af hesti. — Fract. humeri 2: Annað bylta af hesti. Hitt fall á frosna
jörð. — Vulnera capitis 4: 2 byltur af hesti, 1 högg af hestfæti, 1 bylta
á frosna jörð. — Vulnera scissa & contusa manus & antibrachii 3: 1
skurður á hendi við fláningu, 2 mör og sár og ígerð eftir á, vegna
vanhirðu. —- Contusiones, sem leiddu til bólgu og ígerða. Osteomye-
litis ulnae 1: Kvenmaður rakst á nagla, sem stakkst inn í handlegg