Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Page 83
81
hennar; bólga, ígerð í beini. — 2 manneskjur kræktu önglum í hend-
ur sér. — Phlegmone diffus. manus et antibrachii ei'tir áverka við ýmsa
vinnu 3. — Combustio 1: Vildi þannig til: Roskin kona sveið svið,
kveikti í fötum sínum og brann mikið á baki, lendum, kvið og lærum.
Hofsós. Af traumata hafa komið fyrir noltkur liðhlaup.
Svarfdæla. Maður fórst á Ytri-Vík, Arskógsströnd. — 3 piltar voru
að fara út í brimi. Hvolfdi hjá þeim bátnum í brimgarðinum, og fórst
einn þeix-ra, en hinir kröfsuðu sig í land. Er talið líklegt, að sá hafi
rotazt, sem fórst, en rannsókn fór ekki fram. Önnur slys voru: Fract.
diaphyseos femoris 1. Fyrir slysinu varð stúlka, er hafði verið fötluð frá
barnæsku, — var úti á túni í hjólastól og var í brekku, er stóllinn valt
um og hún úr honuin, og hlauzt brotið af. — Fract. claviculae 1, radii
typica 1, malleoli int. 1, malleoli int. c. fract. fibulae 1: Allar af
byltum, bæði öklabrotin af byltum á sama svellbunkanum með fárra
daga millibili. — Fract. costarum 1: Af byltu í stiga. — Lux. humeri
1: Af byltu í stiga. — Vulnus contusum frontis cum depressione lam.
ext. ossis frontis: Skot hljóp úr byssu, er maðurinn var með og ætl-
aði að fara að prófa, og lenti skáhalt á enninu. — Vulnus contusum
capitis: Kona á áttræðisaldri fékk aðsvifsaðkenningu, er bún var að
hátta að kvöldi til, svo að hún féll, lenti með hnakkann á mið-
stöðvarofni og' hjóst á 2 stöðum inn í bein. — Vulnera dilacerata
femoris & cruris d.: Piltur var að aka heyi, hesturinn fældist, piltur-
inn flæktist í aktaugunum, dróst yfir gaddavírsgirðingu og fékk þar
2 nokltuð djúp sár og' fjölda af grynnri rispum. — Rupt. vaginae:
Kerling um sextugt, vitgrönn og fákunnandi, fékk að fara í berjamó
stundarkorn á virkum degi í öndverðum sept. og kom heim með
„fossandi blóðlát", að kallað var, svo að þegar var símað eftir lækni.
Fannst við rannsökn djúp sprunga í aftari vaginalvegg til hægri, er
byrjaði rétt innan við introitus og náði alla leið upp í lacunar h. m.
við atrofiska portio. Þóttist hún í fyrstu ekki vita, hvernig á þessu
stæði, en loks kom þó upp úr kafinu, að á heimleiðinni frá berja-
mónum hafði hún komið við á eyðihýli, skammt frá heimili hennar.
Var þar karlmaður einn við heyskap frá öðru heimili. Gæddi hún
honum á berjum, lögðust eftir það saman i fjárhúsgarða, og urðu
þær afleiðingar, er raun bar vitni. — Önnur vulnera contusa 8.
Haemarthros cubiti et contusiones (af byltu). Aðrar contusiones 11.
Distorsiones 5. Combustio (lítilsháttar). Corp. alienum oesophagi
(síldarbein). Corp. al. oculorum 7.
Akureyrar. Vulnera contusa 10, incisa 5, dilacerata 17, sclopetaria
1. Ambustiones 7. Flest minni háttar bruni I. og II. stigs, oftast or-
sakað af því, að börn fara sér að voða við ílát með heitu vatni í,
þegar fullorðnir hafa sett ílátin gálauslega frá sér. Þó eru 2 bruna-
tilfelli sökum óvarkárni með olíu við uppkveikju elds. Fract. costae
13, metacarp. 3, tibiae 1, colli femor. 1, humeri 1, Collesi 10. Fract.
antibrachii 2, malleolaris 4, claviculae 1, digiti 1. Luxatio hum. 4,
digiti 1. Subluxatio radii perannularis 1. Distorsiones 8. Enginn ofan-
greindra sjúklinga beið bana.
Höfðahverfis. Lux. humeri 1 (habitualis). Kom það fyrir í knatt-
spyrnu, að maður rakst á öxl sjúldingsins og þurfti ekki meira með.
11