Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Side 88
8fi
fram úr rúmi), radii 3 og malleoli 1. — Skorin sár 16, engin stórvægi-
leg. Marmeiðsli og distorsiones 39. Eitt þeirra var 19 ára gömul stúlka,
er meiddist mjög. Hún klemmdist á milli hlassins á bíl, er ólc fram
hjá henni á Olfusárbrúnni og handriðsins á brúnni. Meiðslin ytri
voru ekki næsta mjög áberandi og ekkert bein brotið, og bvergi
blæddi um náttúrleg op, en líðan hennar var svorill og fór síversnandi,
svo að álíta varð, að sprungið hefði í innri liffærum. Hún var flutt á
Landsspítalann og nokkru síðar gerður á henni skurður og tekið
hægra nýrað, er hafði rifnað. Hlassið var torfhlass, sennilega illa
hlaðið eða hafði haggazt í ferðinni, því að það hafði náð lit fyrir
bílhlerann, þeim megin, sem að stúlkunni vissi. — Annað var karl-
maður með 2—3 þuml. rifu í höfuðleðrið. Hann rakst upp í þverbita
á bílhúsi, er bíllinn hentist upp úr hvarfi í veginum við óvarlegan
akstur. — Enn eitt var á tvítugum unglingi, er meiddist mjög á hægra
læri, er hann „setti í gang“ bátmótor. Sveifin snerti framanvert
þykkalærið og reif allmjög linu partana undir húðinni, en særði
húðina lítið sem ekki. — Corpora aliena 12, flest í conjunctiva og
smávægileg. — Brunasár 10. Eitt þeirra var á 11 ára gömlum dreng,
utast á aug'anu og commissura lateral. palbebrae. Drengurinn stóð
í smiðju og horfði á, er smiðurinn rak glóðheitt járnið. Hrökk af því
teningslagað brot, ca. 3X^X2 mm. að stærð í augað, inn undir
commissuruna í milli hennar og conjunctiva og sat J>ar, er drengur-
inn kom til mín. Sjónin skemmdist ekki. — Annað var á 21 árs
gamalli stúlku. Hún var snemma morguns að kveikja upp í stónni
og þótti seint loga eldurinn. Hún skvetti á steinolíu, og gýs þá frain-
an í hana strókur logandi lofttegunda, er brenndi andlit, báðar hend-
ur og handleggi upp undir axlir (handléggirnir voru berir). Bruninn
varð reyndar í þetta sinn hvergi dýpri en á II. stigi — stórar blöðrur
— og urðu hvergi ör til muna, né skemind á sjón, en sýndi þó, að æði
hættulegt er að skvetta á steinolíu til að lífga eld í eldstæðum. —
Enn eitt var á cornea. Ung stúlka var að „krulla“ sig og rak járnið
i röndina á cornea. En bruninn var þó ekki djúpur og greri án
skemmdar á sjón. — Tvítugur unglingur brenndi sig illa á steinolíu.
Hann hafði fengið smávægilegt sár á fótlegg við meiðsli. Hann hafði
búið um sárið með steinolíu og það svo rækilega, að ca. helmingur
af innfleti fótarins var í sári. Slík slys eru ekki óalgeng hér í héraði.
Grímsnes. Af slysförum voru helztar: 1 drukknun, 4 brunar, 3 bein-
brot (fract. fibul., clavicul., humeri), auk annara smærri, svo sem
skurðsára, distorsiones og contusiones. — Drukknunin vildi þannig
til, að þriggja ára gamall drengur var að leika sér einn úti við annan
páskadag á Söndunum við Geysi. Stór opin sundlaug er þar við íþrótta-
skólann, nokkra rnetra frá ibúðarhúsinu. Drengsins var fljótt saknað,
og var talið, að liðið hefði % klukkustnnd frá því að drengurinn
hvarf, þar til hann fannst í lauginni. Voru nú lífgunartilraunir
reyndar, fyrst af föður barnsins og svo af mér, sem náði þangað
ekki fyrr en 2 tímum eftir slysið, vegna fjarlægðar. Reyndust jiær
árangurslausar. — Brunarnir vildu til við hveri, sem mikið er af í
héraðinu. — Piltur frá Laugarvatni var að horfa á Gejrsisgos, steig
óvart ofan í hverholu og brenndist upp að hné. — Roskin kona var