Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Qupperneq 93
91
son læknir hefði farið utan, en í hans stað væri Ólafur læknir Jó-
hannson. Þanri 20. okt. kom Hallgrímur aftur og tók við störfum
af Ólafi.
Dala. Héraðslæknir var fjarverandi, vegna framhaldsnáms er-
lendis, frá í okt. 1935 til aprílloka 1936, og gegndu héraðinu á meðan
kandidatarnir Kristján Hannesson til 15. marz og Agnar Johnson
eftir það.
Blönduós. í veikindaforföllum mínum gegndi Friðrik Einarsson
stud. med. héraðslæknisstörfum frá 5. október til 16. des.
Ólafsff. Ég var fjarverandi úr héraðinu frá því fyrst í janúar og
þangað til í júní. Af þeim tíma starfaði ég 3 mánuði við Grenaa Amts-
sygehus í Danmörku. Einn mánuð fékk ég að vinna þar sem auka-
maður, 2 seinni mánuðina sem víkar fyrir lækna, sem voru fjar-
verandi. Þá fór ég til Berlín og gekk þar á spítala 3 vikna tíma. Hitt
af tímanum fór í ferðir. Meðan ég var í burtu, víkarieraði cand. med.
Viðar Pétursson fyrir mig.
Svarfdæla. Nýtt ljósmóðurumdæmi hefir verið stofnað í héraðinu,
Hríseyjarumdæmi, og þar skipuð yfirsetukona.
Akureijrar. Fvrstu 4 mánuði ársins var Steingrímur Matthíasson
fjarverandi og gegndi yfirlæknisstörfum við amtssjúkrahúsið í Tönder
á Suður-Jótlandi, en kom heim um mánaðamótin apríl—maí. Var
síðan heima í 2 mánuði eða til mánaðamóta júní—júlí. Fór þá aftur
utan og gegndi eigi læknisstörfum upp frá því, en sótti um lausn frá
embætti frá 31. des. 1936. Mestan hluta ársins gegndi því Árni læknir
Guðmundsson héraðinu í forföllum héraðslæknis. Við burtför Stein-
gríms Matthíassonar í lok júnímánaðar varð og laust spítalalæknis-
starfið við sjúkrahús Akureyrar. Var það við lok septembennánaðar
veitt Guðmundi Karli Péturssyni, aðstoðarlækni við handlæknisdeild
Landsspítalans í Reykjavík, og tók hann við störfum 9. nóv. 1936.
Öxarfj. Ég fór til Reykjavíkur 24. okt. í gistivist Landsspítalans og
kom heim 28. jan. 1937. Héraðsins gætti fvrir mig á meðan stud.
med. & chir. Snorri Ólafsson.
Hornaff. Ég var á árinu um 3 mánaða tíma í gistivist Landsspítalans
og hafði mikið gott af þeirri veru.
Mýrdals. Héraðslæknir Guðni Hjörleifsson veiktist á áliðnum vetri,
lá um tíma heima, en var siðan fluttur á Landsspítalann og dó þar.
Gunnar Cortes þjónaði héraðinu fram til 1. okt., er það var veitt nú-
verandi héraðslækni.
3. Sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir.
A. Sjúkrahús. Töflur XVI—XVII.
Sjúkrahús og sjúkraskýli teljast á þessu ári samkvæmt töflu XVI
43 alls. Hefir þeim fjölg'að um 3 á árinu. (Sjúkrahúsið í Stykkis-
hólmi og sjúkraskýlin á Fáskrúðsfirði og Berufirði).
Rúmafjöldi sjúkrahúsanna telst 1140 og koma þá 9,8 rúm á hverja
1000 íbúa. Almennu sjúkrahúsin teljast 35 með samtals 641 rúmi
eða 5,5%0 og hefir fjölgað um nærri 50 rúm. Á heilsuhælum eru rúm-
in talin 284 eða 2,4%c.
Læknar láta þessa getið: