Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1974, Side 104
102
AUGNLÆKNINGAFERÐIR
Sumarið 1974 ferouðust 6 augnlæknar um landið og skoðuðu sjúklinga
á alls 28 stöðum, sjá að öðru leyti eftirfarandi yfirlit.
Augnlæknar Fjöldi staða Fjöldi augnsjúkdóma Fjöldi augnsjúklinga
Eiríkur Bjarnason 8 1580 867
Guðmundur Björnsson 4 1201 1019
Hörður Þorleifsson 3 878 724
Loftur Magnússon 4 ? 1204
öli Björn Hannesson 4 1357 703
Pétur Traustason 5 1398 850
V. ONÆMISAÐGERÐIR
Tafla XV
Frumbólusettir gegn bólusótt voru 3093. Kunnugt var um árangur á
2431, og kom bóla út á 2020 þeirra, eða 83,1%. Endurbólusettir voru
2617. Kunnugt var um árangur á 2406, og kom út á 1968 þeirra, eða
81,8%. Aukabólusetning fór fram á 44. Kunnugt var um árangur á 12, og
kom út á 12, eða 100,0%. Um aðrar ónæmisaðgerðir vísast til viðeig-
andi taflna.
VI. BARNSFARIR OG MEÐFERÐ UNGBARNA
Tafla XIII, 1, 2, 3.
Á árinu fæddust samkvæmt tölum Hagstofunnar 4276 lifandi og 34 and-
vana börn.
Skýrslur fæðingarstofnana, sjúkrahúsa og ljósmæðra geta 4233 fæddra
barna.
195 (4,6%) börn vógu minna en 2500 g við fæðingu. Vansköpuð voru 102
börn af 4233, eða 2,4%. Á sjúkrastofnunum fæddust 4127 börn, eða
97,5% fæddra.