Börn og menning - 01.05.1999, Side 4

Börn og menning - 01.05.1999, Side 4
BÖRN oc /AENN1N6 Þduðer Einn daginn er ég var á leið heim úr vinnu sá ég auglýsingu frá Leiklistarskóla Mosfellsbæjar um nám- skeið í júní fyrir sex til tólf ára krakka. Ég virti fyrir mér áhugasama krakkana sem hópuðust í kringum aug- lýsinguna og hugsaði til Barna og menningar sem er einmitt að þessu sinni tileinkað leiklist. Svo virðist sem leiklist á íslandi standi nú með miklum blóma og þar á meðal leiklist fyrir börn. Leik- sýningum sem eru sérstaklega ætlaðar börnum hefur fjölgað og þeim bjóðast æ fleiri leiklistarnámskeið. Því hlýtur að vera nauðsynlegt að gefa sér tíma til að horfa á þessa þróun og velta fyrir sér hvemig til hefur tekist og hvert er stefnt. Hvert er markmiðið með leiklistarnám- skeiðum fyrir börn og með þeim sýningum sem eru ætlaðar börnum; er verið að ala upp leikara, ræðusnill- inga, efla sjálfstraustið eða þjálfa hæfileika til að upplifa galdur leikhússins og læra að njóta lista? Eða eru leiksýningar fyrir börn mestmegnis holdi klædd afþreying? Er þetta kannski ekki rétti vettvangurinn til að „ala upp“ og „þjálfa“? Eflaust er hér á ferðinni sitt af hverju tagi og kannski kominn tími til að spyrja sig hvaða þáttur vegur þyngra en annar og hvers vegna. Hér í blaðinu em ýmsir þættir leiklistarlífsins reifaðir þar sem bæði er talað um leiklist með bömum og fyrir böm; meðal annars er sagt frá leiklistamámskeiðum fyrir nemendur Andakflsskóla á Hvanneyri og Borgarholtsskóla í Grafarvogi. Borgarleikhúsið og Þjóðleikhúsið skýra frá kynningum fyrir böm og unglinga sem þau bjóða upp á og Viðar Eggertsson leikari og leikstjóri segir frá uppfærslu sinni á Bróðir minn Ljónshjarta og afdráttarlausum skoðunum sínum á leiklistarlífi bama. Einnig er spjallað við Helgu Amalds brúðuleikara um brúðuleikhús hennar Tíu fmgur, þar sem til dæmis magnaðar persónur úr ull toga áhorfendur með sér inn í annan heim. Þegar við í ritnefnd fómm á stúfana til að leita að efni um leiklist sáum við fljótlega að af nógu var að taka. Meira að segja varð efnið svo mikið að vöxtum að bók- menntaumfjöllun sem er fastur liður í blaðinu, varð að víkja. í næsta blaði verður bætt úr því og lítur út fyrir að haustblaðið verði sneisafullt af greinum um barna- og unglingabækur. Undanfarin ár hafa börn og unglingar getað sótt ýmis konar námskeið í leiklist, myndlist og tónlist. Hins vegar leíkur a.ð leíka er ekki ennþá hefð fyrir bókmenntanámskeiðum fyrir þennan aldurshóp þar sem texti er kmfínn og gæti þannig hjálpað ungum lesendum að upplifa skáldskap, fá sterkari tilfinningu fyrir rituðu máli og ýtt undir hugmyndaflug þeirra. Þannig lestur á texta hlýtur að einhverju leyti að skila sér á leiklistamámskeiðum því þar þurfa krakkarnir að túlka textann til að geta tekist á við hlutverkið. Leiklist er eflaust mjög spennandi listform fyrir krakka og virðist henta þeim vel. Á leiklistamámskeiðum kveðja bömin hvunndagslífið og breytast í hvers kyns hetjur. Ég þekki stelpu sem ákvað fjögurra ára gömul að verða leikkona eftir að hafa séð Ronju ræningjadóttur tvisvar á fjölum Borgarleikhússins. Þegar ég spurði hana hvemig persónur hún vildi leika, stóð ekki á svari og hún horfði á mig hissa: „Nú, auðvitað Ronju!“ Lengi á eftir var hún Ronja í öllum leikjum, hvort sem hún var í barbí, tölvuleik eða úti að hjóla með vinum sínum. Á vissum aldri virðist leiklist vera í sterkum tengslum við hlutverkaleiki bama og þá liggur kannski beinast við að verða leikari þegar maður er orðinn stór - svo maður geti haldið áfram að leika sér. Vegna þeirrar hliðstæðu sem hægt er að sjá í hlutverkaleikjum og leiklist bama er kennsla í leiklist vænlegur kostur til að efla með þeim sjálfstraust og góða framsögn. Einnig læra þau að túlka textann og sjá þannig út fyrir hann - uppgötva galdur hans. Leikrit geta sprottið upp víða; ekki bara í leikhúsi heldur í skólum, strætóskýlum, sjónvarpi, útvarpi og í sumar verður einmitt Útvarpsleikhúsið í Rfldsútvarpinu með svokallað Sumarleikhús bamanna annað árið í röð. I fyrra var Lísa í Undralandi flutt í sex þáttum og í sumar verður flutt leikgerð Illuga Jökulssonar á þríleik Guðrúnar Helgadóttur, Sitji guðs englar, Saman í hring, Sænginni yfir minni í alls tólf þáttum. Það em spennandi tímar í leiklistarlífi fyrir böm. Þeir sem em nú að alast upp hafa meira val en fyrri kynslóðir, og er það vel. - En það erum við fullorðna fólkið sem höfum um það að segja hvaða sýningar bömin sjá. Því er um að gera að horfa jákvæðum augum á það sem er að gerast í leiklistinni og bjóða þeim upp á sem fjölbreyttust verk sem auðga anda þeirra og sýna þeim inn í annan - en jafnframt sinn eigin heim. Kristín Birgisdóttir 2

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.