Börn og menning - 01.05.1999, Side 35

Börn og menning - 01.05.1999, Side 35
BÖRN OG MENNiNG Fríða S. Haraldsdóttir: Norrænu barna.bókaverðlaunín 1999 Sænski rithöfundurinn Annika Thor hlýtur norrænu bamabókaverðlaunin í ár fyrir bækurnar En ö i havet,(1996) Nackrosdammen, (1997) Sanning eller konsekvens (1997), Havets djup (1998) og 0ppet hav (1999). Bækurnar eru gefnar út af Bonnier Carlsen. Verðlaunin verða afhent á Gotlandi 1. júlí á námskeiði norrænna skóla- safnskennara. Annika Thor hefur aðeins skrifað fjórar bækur en hróður hennar hefur aukist með hverri bók og hefur hún skipað sér á bekk meðal fremstu barnabókahöf- unda Svía. Stjórn Félags skólasafns- kennara ákvað að tilnefna í annað sinn til norrænu bamabókaverðlaunanna ljóðabækumar Gleymmér- ei (1979), Óðflugu (1991), Heimskringlu (1992) og Halastjörnuna (1997) eftir Þórarinn og Sigrúnu Eldjárn. Ljóðin hafa verið þýdd á dönsku af Bimi Sigurbjörnssyni. Forlagið gaf bækurnar út. Ljóða- bækurnar eru sígild verk innan íslenskra barna- bókmennta og í miklu dálæti hjá börnum. Þær spegla rímleikni, hnyttni og hugmyndaauðgi skáldsins. Gamlar kveðskaparhefðir öðlast nýtt líf þegar höfundurinn leikur sér að orðum, býr til ný og færir gamlar sagnir í nýjan búning. Myndir Sigrúnar em gáskafullar og höfða til ímyndunarafls barnsins. Það er ákaflega skemmti- legt að kynna börnum þessar bækur því þau vilja ólm lesa meira. Aðrar tilnefningar til norrænu barnabókaverð- launanna í ár voru: Linnski rithöfundurinn Christina Andersson með bókina Pojken blá. Lrá Danmörku voru það bækurnar: Bprnenes Verdenshistorie eftir Nils Hartmann og mynd- skreytarana Johannes Bojesen, Charlotte Clante, Kirsten Raagaard og Lilian Brpgger. Þessar bækur hafa verið þýddar á íslensku og gefnar út hjá Skjaldborg. Frá Noregi var það rithöfundurinn Tor Áge Bringsværd með bækumar: Ruffen sjpormen som ikke kunne svpmme, Ruffen pá nye eventyr, Ruffen og den flyvende hollender. Serien Vár gamle gudelære 1 — 13 (1985-1995), Den enpyede (1996), De tvá första böckerna i MIME-serien Noa (1997) og Medusa (1998). Engin tilnefning barst frá Læreyjum. Norrænu barnabókaverðlaunin eru heiðurs- verðlaun sem Nordisk skolebibliotekarforening veitir árlega. Sænski rithöfundurinn Ulf Stark hlaut verðlaunin 1998. Nokkrar af bókum hans hafa verið þýddar á íslensku, Ekki af baki dottinn í þýðingu Aðalbjargar Jónsdóttur, Ein afstrákunum og Einn úr klíkunni í þýðingu Njarðar R Njarðvík, Ekki bara töffarar í þýðingu Kristjáns J. Jónssonar og María veimiltíta sem Hildur Jónsdóttir þýddi. Iðunn gaf bækurnar út. Því miður hafa ekki komið fleiri verk eftir Ulf Stark á íslensku en hann er afkastamikill rithöfundur. Nokkrar af sögum hans hafa einnig verið kvikmyndaðar eða leikgerðar. Greinarhöfundur er skólasajhskennari í Selásskóla og situr í dómnefnd á vegum Nordisk skolebibliotekarforening 33

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.