Börn og menning - 01.05.1999, Side 10

Börn og menning - 01.05.1999, Side 10
BÖRN 06 aaENN|N6 Sigurþór Albert Heimisson: Heímsókn í leíkhús0 Undanfarin fjögur ár hefur Grunnskólum Reykjavíkur verið boðið að senda nemendur í heimsókn í Borgarleikhúsið. Þessum heimsóknum er œtlað að kynna hinn einstœða heim leikhússins og það fjölbreytta starfsem þarferfram. Nemendur fá innsýn í starf leikara og dansara ogfræðslu um hversu margt þarfað koma til svo ein leiksýning komist áfjalirnar. Hver bekkur kemur tvisvar sinnum á jafn mörgum skólaárum. Fyrri heimsóknin í fyrri heimsókninni fara nemendurnir í ferðalag um völundarhús leikhússins. A sama degi koma tveir bekkir, um það bil 50 nemendur. Þeir fá stutta fræðslu um sögu Leikfélags Reykjavíkur og Islenska dans- flokksins, og kynningu á því hvað má og má ekki í leikhúsi. Síðan fara þeir í fylgd einhverrar ævintýra- persónu á bakvið sviðið. í þessari ferð fá nemendumir að koma inn á svæði sem venjulegir leikhúsgestir sjá yfirleitt aldrei. Þeir skoða baksviðið og hliðarsviðin, sjá hvar leikmyndirnar em smíðaðar inni á smíða- verkstæði og hvemig þær eru síðan málaðar í málara- salnum og hvar þær em geymdar á milli sýninga. Nemendumir fara líka niður í kjallarann þar sem leikmunagerðin er til húsa og sjá hvemig þeir sem þar starfa þurfa að útbúa ótrúlegustu hluti sem nota þarf í leiksýningum. Þaðan liggur leiðin inn á saumastofuna þar sem saumakonumar búa til búningana sem leikarar og dansarar klæðast á sýningum. Þar kennir margra grasa. Það þarf að búa til búninga fyrir fjölbreyttar persónur leikbókmenntanna. Ræningjabúning fyrir Ronju, sjóræningjabúning fyrir pabba Línu, ljónsbún- ing fyrir OZ, brúðukjól fyrir Coppelíu og skikkjur fyrir kónga og drottningar. Þessu næst er haldið upp á þriðju hæð þar sem matsalur leikhússins er og allir fá sér nesti. Eftir fjömgar umræður og á mettan maga er hópnum skipt eftir bekkjum. Annar bekkurinn fer með leikara og fræðist um starf leikarans. Börnin og leikarinn ræða hvað þarf til að ein leiksýning komist á svið. Hversu lengi leikararnir æfa áður en fmmsýnt er og þar fram eftir götunum. Hver nemandi fær síðan að prófa. Þau koma bak við skilrúm til leikarans og fá þar hárkollu og höfuðfat og læra eina setningu sem þau eiga að segja í hlutverki viðkomandi persónu. Eitt fær lögguhúfu og segir: „Komdu strax niður af þakinu Lína Langsokkur“. Annað fær síða svarta hárkollu og indíána- fjöður og segir: „Ég elska John Smith“ o.s.frv. Að sjá bekkjar- félagana, að ekki sé talað um kennarann, reyna sig þannig í hlutverkunum vekur ómælda kátínu. 8

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.