Börn og menning - 01.05.1999, Síða 13

Börn og menning - 01.05.1999, Síða 13
BY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY IBBY FRÉTTI BÖRN 06 mENN|N6 l£BY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRE IBBY FRETTIR IR IBBY FRÉTTIR IBBY FRETTI Hin árlegu IBBY-Asahi verðlaun, sem veitt eru til styrktar lestrarhvetjandi verkefnum, komu í hlut „Library on wheels for non-violence and peace“ (LOWNP), voru stofnuð af Palestínsku friðar- rannsóknarstofnuninni og hafa aðsetur í Samiramis í grennd við Jerúsalem. Bókabíll heimsækir palestínsk börn, bæði kristin og múslima, sem búa í afskekktum þorpum og flótta- mannabúðum, þar sem hvorki er að finna skóla, bókabúðir né bókasöfn. Auk þess að lána bækur og dreifa ýmsu fræðsluefni eru börnunum gefnir litir, blýantar og pappír. Fjárstuðningur til daglegs reksturs kemur frá samtökum víða, s.s. Finnlandi, Frakklandi, Englandi, Hollandi og Belgíu. Verðlaunin nema nú einni milljón jena (u.þ.b. hálfri milljón ísl. króna) og tillaga um að veita þau LOWNP kom frá svissnesku og þýsku IBBY-deildunum. IBBY-deiIdirnar á Norðurlöndum hafa tekið ákvörðun um að sameina krafta sína og tilnefna sameiginlega til IBBY-Asahi verðlaunanna framvegis. Sumargleði Barna og bóka — íslandsdeildar IBBY var að venju haldin sumardaginn fyrsta, 22. apríl í Norræna húsinu. Voru þar veittar árlegar Viðurkenningar afhentar á Sumargleði Barna og bóka viðurkenningar félagsins fyrir menningarstarf í þágu barna og unglinga. Guðrún Helgadóttir rit- höfundur var heiðruð fyrir bækur sínar, Helga Arnalds brúðuleikari fyrir leikhús sitt Tíu fingur og hjónin Anna Pálína Árnadóttir og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson fyrir plötu sína Berrössuð á tánum. Einnig voru veitt verðlaun í samkeppninni Ljóð ungafólksins, sem haldin var á vegum almennings- bókasafna með þátttöku níu til sextán ára barna. Urval ljóða úr keppninni komu út á bók, sem Mál og menning og Þöll gáfu út og seld verður í bókabúðum. Nokkur ungu skáldanna lásu upp úr verkum sínum og Anna Pálína og Aðalsteinn Ásberg sungu nokkur lög, hvort tveggja við mikinn fögnuð. í síðustu tveimur tölublöðum Barna og menningar hafa birst bernskuljóð nokkurra okkar ágætustu ljóðskálda með ljósmyndum af þeim ungum. Þótti tilvalið að gera þessu efni betri skil á litskrúðugu veggspjaldi, sem Börn og bækur hafa dreift ókeypis á bókasöfn, skóla og víðar. Aðalfundur Barna og bóka var haldinn fimmtudaginn 29. apríl síðastliðinn. Ur stjórn samtakanna gengu Margrét Gunnars- dóttir og Helga Kr. Einarsdóttir en í stjórn voru kosnar í þeirra stað Kristín Helga Gunnarsdóttir og Margrét Sveinsdóttir. Fráfarandi stjómarmeðlimum voru þökkuð vel unnin störf. Auk hefðbundinna aðalfundastarfa kom fram sú tillaga að Börn og bækur stæðu fyrir bókaspjalli á kaffihúsum bæjarins nokkrum sinnum næsta vetur. Með því móti yrði félagið gert að opnari og virkari vettvangi umræðna um barna- og unglinga- bókmenntir. Var tillögunni vel tekið og ákveðið að hrinda henni í framkvæmd. £3uIU.31IJ Iflfll BIJJ.3U3 Aflfll UI1J.3U1 Aflfll BIU3UJ Aflfll UI113UJ Aflfll UIJUL3UJ Aflfll Aflfll UI113UJ Aflfll UIJUL3U J A99I UI113UJ Aflfll UI113UJ Aflfl ----------------------------------------- 11 ------------------------------------------------------- ClBBY FRÉTTIR ÍBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IR IBBY FRÉTTIR IBBY IBBY FRÉTTI

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.