Börn og menning - 01.05.1999, Síða 17

Börn og menning - 01.05.1999, Síða 17
BÖRN 06 ^ENN|N6 Það má líta þannig á að leiklist og leikræn tjáning greinist í tvær áttir: Leiklist sem listgrein, þar sem stefnt er að leiksýningu með listrænan metnað að leiðarljósi. Og hins vegar leikræn tjáning sem kennsluaðferð, þar sem leiklistin er notuð í uppeldislegum tilgangi. Kennarar ættu að hafa hvort tveggja á valdi sínu. í öllum skólum eru settar upp leiksýningar við ákveðin tilefni. Einnig þekkjum við sem vinnum með leikræna tjáningu hversu öflug kennsluaðferð leiklistin getur verið. Það að setja sig í spor annarra og í aðrar aðstæður vekur oft dýpri skilning en það að heyra um eða lesa um ákveðnar aðstæður og einstaklinga. í skólakerfinu og almennt í okkar samfélagi á sér stað mikil mötun sem dregur úr sjálfstæðri hugsun og sköpunarmætti okkar. Böm eyða stöðugt lengri tíma fyrir framan tölvu og sjónvarp. Foreldrar bama vinna oftast langan vinnudag og bömin em mikið ein. Fólk hittist á hlaupum og lítill tími er fyrir eðli- leg mannleg samskipti. Þetta er lífsmynstur sem allir þekkja. Því er eðlilegt að skólinn reyni að bregðast við þessum aðstæðum, reyni að styrkja mannleg samskipti, efla sjálfstæða hugsun og sköpunarmátt og stuðla þannig að bættri líðan bamanna. Við þurfum að spyrja okkur hvemig einstakl- inga við viljum ala upp. Viljum við ala upp ein- staklinga sem eru góðir í stærðfræði,. leiknir á tölvur, góðir í stafsetningu og málfræði? Auðvitað viljum við að börnin séu fær í öllum þessum þáttum. En við megum ekki gleyma mannlega þættinum. Til hvers að vera góður í öllum þessum greinum ef einstaklingnum líður ekki vel og getur ekki komið þekkingu sinni á framfæri? Það má líka líta á leiklistarstarfið sem lið í forvörnum. Þeir einstaklingar sem hafa góða sjálfsmynd og eru öruggir með sig meðal félaganna eiga síður á hættu að týna sjálfum sér á vit vímuefna eða annarrar ógæfu. Ég tel að ef leiklist og leikræn tjáning væri stærri þáttur í skólastarfinu og unnið væri mark- visst með tjáningu frá 1. bekk í grunnskóla myndum við ala upp sjálfsöruggari og samstarfs- hæfari einstaklinga Greinarhöfundur er skólastjóri og kennari við Andakílsskóla á Hvanneyri * Börn og bœkur — Islandsdeild IBBY Ef þið viljið gerast meðlimir í Börnum og bókum, eða fáið góðar hugmyndir og viljið leggja eitthvað af mörkum til starfseminnar eða tímaritsins, þá hafið samband! Þið getið sent okkur línu: Börn og bækur - íslandsdeild IBBY Pósthólf 7191, Reykjavík Einnig getið þið hringt í formanninn, Iðunni Steinsdóttur í síma 553 2804, eða í ritstjórann, Kristínu Birgisdóttur í síma 566 7264. 15

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.