Börn og menning - 01.05.1999, Side 21

Börn og menning - 01.05.1999, Side 21
BÖRN OC /AENN|N6 Ljóð unga fólksíns Ljóðasamkeppni almenningsbókasafna, Ljóð unga fólksins, var haldin á útmánuðum í samvinnu við Mál og menningu. Þöll, samstarfshópur um barna- og unglingastarf á bókasöfnum sá um framkvæmd keppn- innar. Verðlaunaafhending fór fram á Sumargleði Bama og bóka á sumardaginn fyrsta í Norræna húsinu. Þátttakendum var skipt í tvo aldurshópa, frá níu til tólf og þrettán til sextán ára. Ógrynni ljóða bárust en 96 þeirra voru birt í bók sem Mál og menning og Þöll gáfu út og heitir Ljóð unga fólksins. I dómnefnd sátu Iðunn Steinsdóttir, for- maður nefndarinnar, Jón Kalman rithöfundur, Hildur Hermóðsdóttir frá Máli og menningu og Kristín Birgisdóttir og Kristín Viðarsdóttir fyrir hönd Þallar. Auk þess að sjá um útgáfu bókarinnar og aug- lýsingaveggspjalds, gaf Mál og menning verðlauna- höfum ljóðabækur, Parkerumboðið á íslandi gaf þeim áritaða blekpenna og frá Börnum og bókum fengu ungu skáldin veggspjald með ljóðum og myndum af þeim bemskuskáldum sem hafa birst hér í seinustu tveimur tölublöðum. Yggdrasíll Yggdrasill er tölvuleikur sem gerist á sögusviði nor- rænu goðafræðinnar. Sagan er í grófum dráttum byggð á efni Þrymskviðu, en höfundar leiksins hafa tekið sér skáldaleyfi til að laga söguna að tölvuleikjaforminu. Leikurinn er af gerð svokallaðra ævintýraleikja og sver sig þar með í ætt við leiki á borð við Monkey Island og Broken Sword, en þeir em á meðal vinsælli tölvuleikja síðari ára. Leikandinn bregður sér í hlutverk Loka Laufeyjarsonar og stýrir honum um hinn ævin- týralega heim goða, manna og jötna. I upphafi leiksins sjáum við hvar Þrymur konungur jötnanna stelur Mjölni, hamri þmmu- guðsins Þórs. Þór fær Loka til að aðstoða sig við að leita að hamrinum. Hann fellst á það og þar með er ævintýrið hafið. Myndmálið í leiknum er í teikni- myndastíl og inn á milli bregður fyrir myndasögubútum, sem eiga stóran þátt í frásögninni. Leikurinn er framleiddur af margmiðlunarfyrir- tækinu Gagarín. Hann er gerður jafnt fyrir PC og Macintosh vélar og er væntanlegur á markað hér á landi fyrir næstu jól. Hjálmar Gíslason Raddír ba.rna.boka.nna. Fyrir skömmu gaf Mál og menning út ritið Raddir barnabókanna sem hefur að geyma safn af greinum um barnabókmenntir. Silja Aðalsteinsdóttir valdi grein- arnar, skrifaði formála og sá um ritstjóm ásamt Hildi Hermóðsdóttur. Sjálf ritar Silja þrjár af níu greinum en þær heita: Islenskar barnabækur - Sögulegt yfirlit, Raddir barnabókanna — Um frásagnartækni í barna- bókum og Trú og siðferði í íslenskum barnabókum. Aðrar greinar í ritinu eru: Yfirlit yfir útgáfu íslenskra myndabóka og Setið í kjöltunni - Um myndabœkur sem bókmenntaform, greiningu þeirra og sérstöðu íslenskra myndabóka báðar eftir Margréti Tryggvadóttur, / œvintýraskóginum - Um textatengsl í Skilaboða- skjóðunni eftir Jón Yngva Jóhannsson, Útfyrir borgar- veggina -' Um þjóðlegan menningararf og sýn á íslenska náttúru í nokkrum nýlegum unglingabókum eftir Þuríði Jóhannsdóttur, Heimur Sossu eftir Brynju Baldursdóttur og Helgu Kjaran og A aldarafmæli Enid Blyton eftir Ármann Jakobsson. íslenskir bókmenntafræðingar hafa því miður lítið sinnt barnabókum fram að þessu og sárafáir hafa gert þær að sérgrein sinni. Það er því mikið fagnaðarefni að fá þetta rit upp í hendumar, jafnt fyrir höfunda barna- bóka og þá sem hafa áhuga á þessari bókmenntagrein. Við getum áreiðanlega öll tekið undir lokaorð Silju Aðalsteinsdóttur í formála ritsins: „Barnabækur eru verðugt rann- sóknarefni, ekki aðeins sem nokk- urs konar undan- fari „alvörubók- mennta“ heldur í sínum eigin rétti. Fyrst og fremst vegna þess hve auðugur garður þær em að gresja, fullur af óvænt- um tegundum og táknum. Kannski skipta engar bók- menntir meira máli.“ 19

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.