Börn og menning - 01.05.1999, Side 23
BÖRN OC /AENN|N6
✓
I vetur hefur ýmislegt áhugavert verið á fjölum
leikhúsanna fyrir börn. Þar á meðal er glœsileg
uppfærsla á sögu Astrid Lindgren, Bróðir minn
Ljónshjarta í leikstjórn Viðars Eggertssonar.
Viðar þarfvart að kynnafyrir lesendum blaðsins.
Ljósm. Bára Hann er meðal okkar fremstu leikhúsmanna og hefur
komið að mörgum eftirminnilegum sýningum sem
leikari, leikstjóri og leikhússtjóri. Viðar stofnaði EGG-leikhúsið árið 1981 og
muna eflaust margir eftir verkum sem þar hafa verið sett upp, til dœmis
áhrifamiklu verki Arna Ibsen Skjaldbakan kemst þangað líka og leikriti eftir
Herbert Acternbach sem heitir Ella.
Eg hitti Viðar og við spjölluðum um sýninguna, stöðu leiklistar fyrir börn og
unglinga, strákasýningar, barnaleikritastíl og margt fleira.
Að fara alla leð
Bróðir minn Ljónshjarta fjallar um tvo bræður, Snúð
og Jónatan. Snúður er dauðvona og Jónatan hug-
hreystir hann með sögum af landinu Nangíjala þar
sem allt er gott. Örlögin haga því þannig að þeir
hverfa þangað báðir og Snúður kemst að raun um að
þar er bæði til gott og illt eins og annars staðar. Kirsu-
berjadalur stendur fyrir hið góða en Þymirósadalur
hið illa. Að lokum sigra þeir hið illa en Jónatan
brennist lífshættulega af eldi drekans Kötlu og þeir
bræður fara til enn annars lands - þar sem allt er
gott...
Af hverju var þessi leikgerð að Bróður mínum
Ljónshjarta valin til sýningar frekar en einhver
önnur?
Við skoðuðum auðvitað margar leikgerðir. Yfirleitt
eru þær upprunnar í Svíþjóð eða einhversstaðar í
Skandínavíu. Þessi leikgerð er eftir Evu Skjold, sem
er reyndur leikstjóri í Svíþjóð. Hún var ítarlegust og
er auðsjáanlega unnin af manneskju sem þekkir
möguleika leikhússins. Leikgerðin er mjög trú
verkinu, fylgir sögunni eins vel og hægt er miðað við
þær aðstæður sem leikhúsið hefur. Meginhugsunin í
sögunni glatast aldrei auk þess sem uppfærslan er
byggð upp á hliðstæðum og yfirfærir umhverfi Snúðs
á Nangíjala. Allt sem Snúður sér út um gluggann, eða
það sem hann er að hugsa um eða tala um heima hjá
sér, fær nýja mynd í Nangíjala. í þeirri einföldu
leikmynd sem heimili Snúðs er má til dæmis sjá
hliðstæðu í mynd af riddara sem hangir á veggnum
og vísar til tímans í Nangíjala, Snúður gengur við
hækju sem minnir á hestinn hans síðar meir og
skylmingaleikurinn í húsagarðinum vísar til orust-
unnar í Þyrnirósadal. Þegar Jónatan kemur fyrst inn á
sviðið fer hann með börnunum í eins konar flugleik,
enda mikið um dúfur í Nangíjala. - Ef hægt væri að
stoppa myndina í húsagarðinum og sjá hvað hver
væri að gera, þá myndirðu til dæmis sjá að vondu
strákarnir í húsagarðinum eru hermennirnir í
Þymirósadal og presturinn sem jarðsyngur Jónatan er
sami leikarinn og leikur Matthías í Kirsuberjadal.
Ogþá er móðirin vœntanlega dúfnadrottningin?
Já, auðvitað er hún aðalhetjan í Nangíjala. Þarna
förum við svona bil beggja í túlkun á þessu umdeilda
atriði hvað Nangíjala er. Við stillum upp hliðstæðum
þessara tveggja heima, Jónatan stekkur með Snúð út
úr brennandi húsi, síðar í Nangíjala stökkva þeir aftur
saman eftir að Jónatan verður fyrir eldi Kötlu. Allt
ævintýrið gerist þannig í hugarheimi Snúðs þar sem
hann deyr á eldhúsbekknum heima hjá sér. En við
getum líka ímyndað okkur hinn valkostinn, að hann
fari til Nangíjala.
21